Fréttir

true

Fólk þarf að forðast að bera smit hundasjúkdóms til landsins

Matvælastofnun beinir þeim tilmælum til fólks sem er að koma frá Noregi að gæta ýtrustu varkárni til að koma í veg fyrir að sjúkdómur í hundum þar í landi berist til Íslands. Smitið, sem lýsir sér í blóðugum uppköstum og niðurgangi, hefur valdið bráðum dauða þrátt fyrir meðhöndlun. Fólk sem hefur verið í mikilli snertingu…Lesa meira

true

Slökkviliðið án körfubíls frá því í vor

Hinn 42 ára gamli Scania körfubíll Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðasveitar hefur staðið ónothæfur frá því í vor þegar úttekt Vinnueftirlitsins leiddi í ljós að búnaði í honum er ábótavant. Nú er búið að leggja númer bílsins inn til geymslu. Körfubílar eru dýr tæki en nýr bíll er talinn kosta um 80 milljónir króna. Það er…Lesa meira

true

Rætt um framtíð Þríhyrningsins

Nýverið bauð Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grundarfjarðarbæjar til óformlegs spjallfundar um útivistarsvæðið í Þríhyrningi sem er opið svæði sem afmarkast af Grundargötu, Borgarbrautar og Hlíðarvegs í Grundarfirði. Ágætis mæting var á fundinn og voru menn sammála um að bæta svæðið svo að það myndi nýtast bæjarbúum sem best. Hugmyndir eru uppi um að nýta svæðið fyrir…Lesa meira

true

Ljósleiðaravæða landstærsta sveitarfélag Vesturlands

Lagning ljósleiðara um dreifbýli í Borgarbyggð er nú hafin, en dreifbýli sveitarfélagsins er það eina á Vesturlandi sem eftir á að koma ljósleiðara um. Sökum landstærðar er nú búið að skipta verkefninu niður í 18 sjálfstæða áfanga. Hugsunin með áfangaskiptingu er margþætt og m.a. til þess að íbúar geti fylgst með framkvæmdum, afmörkun hvers svæðis…Lesa meira

true

Fyrirlestur um fuglaskoðunarskýli og stígagerð

“Arkitektúr og náttúra – jákvæð áhrif hönnunar á náttúruna,“ er yfirskrift opins fyrirlestrar sem fluttur verður við LbhÍ á Hvanneyri mánudagskvöldið 23. september nk. kl. 20:30 Hann er haldinn af tilefni heimsóknar gestakennarans Tormod Amundsen. Fyrirlesturinn tekur um 40 mínútur og fer fram á ensku. Á eftir verða umræður um efnið. Þá mun Sigurjón Einarsson…Lesa meira

true

Slæmt veður í leitum

Bændur um vestanvert landið hafa fengið venju fremur slæmt veður til smalamennsku síðustu daga; úrkomusamt, hvasst og kalt. Gránað hefur til fjalla síðustu daga og víða jafnvel orðið sporrækt. Í gær stóðu smalamennskur sem hæst t.d. á Arnarvatnsheiði, Tvídægru og Holtavörðuheiði og er að heyra á mönnum að aðstæður hafi verið með versta móti. Fé…Lesa meira

true

Búið að opna fyrir umferð um Borgarfjarðarbraut

Lögregla hefur nú lokið störfum á vettvangi bílslyss sem varð á Borgarfjarðarbraut við Grjóteyri um klukkan 11 í morgun. Þar lentu tveir bílar í árekstri og slösuðust tveir af fjórum í bílunum alvarlega. Umferð hefur nú verið hleypt á veginn að nýju.Lesa meira

true

Borgarfjarðarbraut lokuð vegna umferðaslyss

Laust fyrir klukkan 11 í morgun varð mjög harður árekstur tveggja bíla á Grjóteyrarhæð. Tveir slösuðust alvarlega og voru fluttir á Landspítalann með sjúkrabílum. Einn var fluttur á Heilsugæslustöðina í Borgarnesi. Þrír voru í öðrum bílnum en ökumaður var einn í hinum bílnum. Lögregla, sjúkralið ásamt lækni mættu á vettvang. Í tilkynningu frá Lögreglunni á…Lesa meira

true

Landssöfnun á birkifræi stendur yfir

Nú er hafin landssöfnun á birkifræjum en að henni standa Landgræðslan, Olís og Hekluskógar. Söfnunin er liður í verkefni sem snýr að endurheimt birkiskóga, en þeir eru mikilvægur þáttur í uppgræðslu lands og kolefnisbindingu. Söfnunarpokar eru fáanlegir á Olís-stöðvum á Akureyri, Álfheimum, Norðlingaholti, Borgarnesi, Reyðarfirði, Selfossi, Höfn, Hellu, Fellabæ (Egilsstaðir) eða á Húsavík. Þessar sömu…Lesa meira