Fréttir

true

Jafnt á Akranesvelli

ÍA og Grindavík skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í 21. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesvelli í gær. Skagamenn sigldu lygnan sjó um miðja deild fyrir leikinn, en Grindvíkingar þurftu á stigi að halda til að eiga minnsta möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. Bæði lið voru…Lesa meira

true

Dönsk landsliðskona í Skallagrím

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við dönsku landsliðskonuna Emilie Hesseldal. Mun hún leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deildinni á næstu leiktíð. Emilie er 28 ára gömul, 186 cm á hæð og leikur stöðu framherja. Hefur hún leikið með félagsliðum í heimalandinu Danmörku og í Portúgal við góðan orðstír, að því er fram kemur á Facebook-síðu…Lesa meira

true

Ríkisstofnun gefur ríkinu jörðina Dynjanda

Í tilefni af 75 ára lýðveldisafmæli Íslands hefur Rarik ohf. fært íslenska ríkinu jörðina Dynjanda við Arnarfjörð að gjöf. Formleg afhending fór fram á Degi íslenskrar náttúru í gær. Skráður eigandi Dynjanda var Rarik ohf, sem er opinbert hlutafélag í eigu ríkisins og stofnað 1. ágúst 2006. Félagið tók þá við rekstri Rafmagnsveitna ríkisins sem…Lesa meira

true

Umhverfisóhapp í Andakílsá aftur til rannsóknar

Ákveðið hefur verið að taka aftur upp lögreglurannsókn á umhverfisslysi sem varð í Andakílsá vorið 2017. Eins og áður hefur verið greint frá rann mikill aur úr inntakslóni í farveg Andakílsár þegar verið var að undirbúa viðhald á inntaksstíflu Andakílsvirkjunar og hreinsun á seti úr lóninu. „Orka náttúrunnar, sem á og rekur Andakílsárvirkjun, tók þegar…Lesa meira

true

Leggja til að stofnað verði embætti hagsmunafulltrúa aldraðra

Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur boðað þingsályktunartillögu um að fela félags- og barnamálaráðherra að leggja fyrir árslok 2020 fram frumvarp til laga um embætti hagsmunafulltrúa aldraðra. Þetta er í annað sinn sem þingmaðurinn boðar þessa tillögu, en hún hlaut ekki afgreiðslu á síðasta þingi og er nú lögð fram óbreytt. „Þjónusta við aldraða dreifist…Lesa meira

true

Veðurtepptir farþegar í Grundarfirði

Farþegaskipið Ocean Diamond lagðist að bryggju í Grundarfirði um helgina og samkvæmt áætlun skipsins átti það að sigla til Reykjavíkur á sunnudagskvöld að taka á móti nýjum farþegum. En veðrið spillti þessari áætlun með hvassviðri og brælu á Faxaflóa þannig að áhöfn skipsins taldi öruggast að bíða í öruggri höfn á meðan veðrið gengi yfir.…Lesa meira

true

Einn látinn eftir árekstur á Borgarfjarðarbraut

Farþegi annarrar bifreiðarinnar sem lenti í hörðum árekstri á Borgarfjarðarbraut í gær er látinn. Hinn látni var erlendur ferðamaður á ferð um landið. Þetta kemur fram í uppfærðri tilkynningu Lögreglunnar á Vesturlandi. Slysið varð rétt fyrir klukkan 11:00 í gærdag við Grjóteyri í Borgarfirði. Þrír voru í öðrum bílnum og en ökumaður einn í hinum.…Lesa meira

true

Sigur í Mosfellsbænum

Víkingur Ó. lagði Aftureldingu, 1-0, þegar liðin mættust í næstsíðustu umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Varmárvelli í Mosfellsbæ á laugardaginn. Heimamenn voru heldur sterkari í fyrri hálfleik. Þeir léku með vindinn í bakið, en nokkuð hvasst var á Varmárvelli og setti það svip sinn á leikinn. Afturelding fékk dauðafæri strax á…Lesa meira

true

Skagakonur öruggar

ÍA tryggði sæti sitt í Inkasso deild kvenna í knattspyrnu á föstudag. Skagakonur sigruðu Aftureldingu 2-0 á heimavelli í næstsíðustu umferð deildarinnar og eru þar með fjórum stigum fyrir ofan fallsæti. Skagakonur byrjuðu leikinn af krafti og komust yfir strax á 6. mínútu þegar Íris Dögg Gunnarsdóttir, markvörður Aftureldingar, varð fyrir því óláni að skora…Lesa meira

true

Tóku þátt í Tallin maraþoninu

Tallin maraþonið var hlaupið sunnudaginn 8. september í höfuðborg Eistlands. 17 Íslendingar voru skráðir til keppni, þar af fjórir úr hlaupahópnum Flandra í Borgarnesi; Stefán Gíslason, Gunnar Viðar Gunnarsson, Ingveldur Ingibergsdóttir og Hjalti Rósinkrans Benediktsson, en Hjalti tók reyndar ekki þátt í hlaupinu. Gunnlaugur Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, hafði einnig skráð sig til leiks en tók…Lesa meira