Fréttir

true

Fengu dekk af flutningabíl framan á bíl sinn

Óhapp varð á veginum á móts við Höfn í Melasveit í dag. Hjól losnaði undan flutningabíl með þeim afleiðingum að það lenti af miklum þunga framan á litlum fólksbíl. Fólksbíllinn lenti utan vegar og er gjörónýtur. Mildi þykir að fólkið í bílnum slapp ómeitt frá þessu óheppi, en var að vonum talsvert skelkað. Meðfylgjandi mynd…Lesa meira

true

Ný heimasíða Borgarbyggðar í loftið

Á sveitarstjórnarfundi í gær var nýr vefur Borgarbyggðar opnaður. Þjónustuaðili við gerð og hönnun heimasíðunnar er Stefna ehf. Vefurinn er unninn með hliðsjón af ábendingum íbúa, kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins. „Við gerð nýju síðunnar var unnið út frá því að stytta leiðir að upplýsingum og gera síðuna aðgengilegri fyrir notendur ásamt því að bæta…Lesa meira

true

Bókakynning í Vatnasafninu í Stykkishólmi

Um liðna helgi var upplestur í Vatnasafninu í Stykkishólmi. Bergþóra Snæbjörnsdóttir hóf dagskrána með upplestri en að honum loknum hélt Kristín Anna tónleika með stuðningi frá Ragnari Kjartanssyni. Bergþóra las upp úr nýrri skáldsögu sinni sem kemur út í haust, en hún vann að ritun bókarinnar meðan hún dvaldi í rithöfundaíbúð Vatnasafnsins árið 2018. Mun…Lesa meira

true

Vinnur sem bílamálari fyrir sportbílaframleiðandann McLaren

Katrín Jóna Ólafsdóttir er uppalin í Stykkishólmi en flutti á Akranes þegar hún var í fimmta bekk grunnskóla. Eftir nám þar fór hún í Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem hún fór á félagsfræðibraut en fann fljótlega að bóknám ætti ekki við hana. „Ég skoðaði þá iðnnám og ætlaði að fara í vélvirkjun og tók grunninn fyrir…Lesa meira

true

Tæknin mun breyta flestum störfum en skapa ný tækifæri

Síðastliðinn fimmtudag fór fram áhugaverð ráðstefna samtímis á sex stöðum á landinu. Til umfjöllunar voru tækifæri og áskoranir sem hinar dreifðu byggðir landsins standa frammi fyrir samhliða því sem kallað er fjórða iðnbyltingin. Ekki var um venjulega málstofa að ræða því samtímis fór hún fram með dagskrá á sex stöðum og auk þess send út…Lesa meira

true

Smalar geta átt von á rigningu og roki á morgun

Veðurstofan spáir vaxandi auslægri átt í nótt með rigningu um allt land. Fremur óhagstætt veður verður fyrir bændur og búalið sem víða eru upp til fjalla og heiða við smalamennskur fyrir réttir næstu daga. Spáð er 10-20 m/s vindi í fyrramálið og talsverðri rigningu um tíma sunnan- og suðaustanlands. Norðlægari þegar líður á daginn og…Lesa meira

true

Skagaleikflokkurinn setur upp Litlu hryllingsbúðina

Skagaleikflokkurinn stefnir að því að færa söngleikinn Litlu hryllingsbúðina á fjalirnar í haust. Boðað hefur verið til áheyrnaprufa og kynningarfundar á morgun, laugardaginn 14. september í húsnæði Sementsverksmiðjunnar við Mánabraut. Þar mun Valgeir Skagfjörð, leikstjóri verksins, kynna verkefnið og stýra áheyrnarprufum. Þar geta söngelskir og leikþyrstir látið ljós sitt skína og reynt að hreppa hlutverk…Lesa meira

true

Skúrinn flytur í húsnæði Bensó

Veitingamennirnir Sveinn Arnar Davíðsson og Arnþór Pálsson, sem eiga og reka Skúrinn og Skúrinn Pizza Joint í Stykkishólmi, ætla að flytja starfsemina í húsnæði Bensó. Þar verður opnaður veitingastaður með sjoppu að flutningum loknum. „Þarna verðum við með fjölbreyttan mat; hamborgara, vefjur, kjúklingavængi og pizzur. Síðan verðum við með sjoppu með nammibar, seljum ís, tóbak,…Lesa meira

true

Nýr skjár á Akranesvelli

Nýr upplýsingaskjár verður vígður á Akranesvelli í dag. Um er að ræða 144,5 tommu LED skjá sem leysir af hólmi gömlu skortöfluna og leikklukkuna sem áður var á sama stað. Nýi skjárinn mun upplýsa áhorfendur um stöðu knattspyrnuleikja og hvað leiktímanum líður, en honum fylgja einnig fleiri notkunarmöguleikar. Hægt verður að sýna þar myndir af…Lesa meira

true

Elsta dæmi um útdauða tegundar af völdum ofveiði

Í síðustu viku birtist vísindagrein í ritinu Molecular Biology and Evolution, þar sem færðar eru sönnur á að á Íslandi var sérstakur stofn rostunga sem dó út skömmu eftir landnám. Niðurstaðan er fengin með DNA-rannsókn á hvatberum úr tönnum, beinum og hauskúpum 34 rostunga, sem fundist hafa á Íslandi, 800 til 9000 ára gömlum. Þeir…Lesa meira