Fréttir

true

Tilkynnt í morgun um lækkun stýrivaxta

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti í morgun þá ákvörðun sína að lækka vexti bankans um 0,25%. Meginvextir bankans, oftast kallaðir stýrivextir, verða því 3,5% og hafa lækkað um eitt prósentustig það sem af er þessu ári. Er þetta fyrsta vaxtaákvörðun sem tekin er frá því Ásgeir Jónsson tók við embætti seðlabankastjóra. Ný þjóðhagsspá gerir ráð fyrir…Lesa meira

true

„Ég hef aldrei haft það að markmiði að hætta að vinna“

Það fer ekki mikið fyrir húsinu að Kirkjubraut 30 á Akranesi. Þetta er eitt af þessum vinalegu gömlu húsum í miðbæ Akraness sem setja snotran svip á bæjarmyndina. Húsið stendur nærri Kirkjubrautinni á horninu þar sem beygt er inn í Merkigerði. Í þessu húsi hafa frá 1979 búið hjónin Brimrún Vilbergs og Jón Hjartarson. Í…Lesa meira

true

Nýjar og ferskar áherslur hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands

Nú með haustinu fer allt á fullt hjá Vestlendingum eftir stórgott sumar. Krakkar byrja í skólum, fullorðna fólkið fer í vinnuna og allir snúa að nýju í sína kunnuglegu vetrarrútínu. Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi er þar engin undantekning og hafa verkefnastjórar og annað starfsfólk Símenntunarmiðstöðvarinnar í nógu að snúast þessa dagana nú þegar haustar og styttist…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar við byggingu leikskóla

Við skólasetningu Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum síðastliðinn fimmtudag var stutt athöfn á skólalóðinni þar sem teknar voru fyrstu skóflustungur að nýju húsnæði leikskólans Hnoðrabóls. Eins og komið hefur fram í fréttum Skessuhorn hófst verkefnið í júní með því að rifin var fyrrum skólastjóraíbúð og heimavist í áfastri byggingu við hús grunnskólans. Á sömu lóð hefjast…Lesa meira

true

Stofna félag smáframleiðenda matvæla

Stofnfundur Félags smáframleiðenda matvæla verður haldinn þriðjudaginn 3. september nk. í fundarsal í húsakynnum Samtaka iðnaðarins við Borgartún 35 í Reykjavík. Áætlað er að fundurinn verði frá kl. 13 til 15. Auk þess verður hægt að tengjast fundinum í gegnum fjarfundabúnað. „Fundurinn er öllum opinn, en smáframleiðendur eru hvattir til að mæta og leggja sitt…Lesa meira

true

Datt úr aparólu

Slys varð við Malarrifsvita um tvöleytið síðastliðinn laugardag. Ferðamaður var að leika sér í aparólu í fjörunni neðan við vitann. Þegar rólan stöðvast við endann féll hann úr rólunni með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á höfuð og kenndi sér eymsla í skrokknum. Sjúkrabíll frá Grundarfirði kom og sótti manninn og ók honum á…Lesa meira

true

Ákveðnar reglur gilda um skólaböll NFFA

Nýnemaball nemenda Fjölbrautaskóla Vesturlands verður haldið á Gamla Kaupfélaginu fimmtudagskvöldið 29. ágúst. Fulltrúar frá skólanum verða með viðveru á ballinu ásamt annarri gæslu. „Við viljum minna á mikilvægi þess að foreldrar hafi eftirlit með fyrirpartýum hjá börnum sínum,“ segir í tilkynningu frá skólanum til foreldra og forráðamanna. „Einnig viljum við minna á að ölvun ógildir…Lesa meira

true

Umhverfisstofnun leggst gegn hugmyndum um skotæfingasvæði

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var lagt fram erindi Umhverfisstofnunar um mat stofnunarinnar á fyrirætlan Borgarbyggðar um að setja upp skotæfingasvæði í landi Hamars ofan við Borgarnes, nærri fólkvanginum Einkunnum. Í áliti stofnunarinnar koma fram margháttaðar athugasemdir við fyrrgreindar áætlanir. Erindi Umhverfisstofnunar varða bæði deiliskipulag og aðalskipulag á svæðinu. Umhverfisstofnun lýsir því yfir…Lesa meira

true

Aðgerðir til að styðja við húsnæðismál á landsbyggðinni

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur ákveðið að hrinda í framkvæmd tillögum til að styrkja húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni. Þess er vænst að fyrstu tillögur, þar á meðal að breytingar á lögum og reglugerðum, til að styrkja húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni verði komnar til framkvæmda á haustdögum. „Landsbyggðin hefur setið eftir þegar kemur að uppbyggingu í…Lesa meira