Fréttir

true

Deluxe Snyrtistofa opnuð á Akranesi

Ný snyrtistofa var opnuð 19. ágúst síðastliðinn á Akranesi. Stofan ber heitið Deluxe Snyrtistofa og er til húsa þar sem að sólbaðsstofan Maríkó er staðsett að Smiðjuvöllum 32. „Ég vissi af rýminu og það var búið að bjóða mér að nota það síðasta árið, en ég vildi fá einhvern með mér,“ sagði Ósk Hjartardóttir, einn…Lesa meira

true

Flytja Pergolesi í Stykkishólmskirkju á laugardaginn

“Laugardaginn 31. águst nk. munu Anna Jónsdóttir sópran, Þóra Passauer kontraalt, Friðrik Vignir Stefánsson orgelleikari og Páll Einarsson sellóleikari, flytja hið undurfagra verk, Stabat Mater eftir Giovanni Battista; Pergolesi. Í verkinu skiptast á einsöngs- og tvísöngskaflar sem lýsa í tali og tónum þjáningu Maríu þar sem hún stendur við kross sonar síns og frelsara þar…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Snæfellsnesi í næstu viku

Blóðbankinn hefur komið á Snæfellsnes í allmörg ár en í næstu viku er heimsókn bílsins einmitt skipulögð. „Við verðum með blóðsöfnun í Grundarfirði við Kjörbúðina þriðjudaginn 3. september frá kl. 12:00-17:00.  Í Stykkishólmi verður bíllinn miðvikudaginn 4. september við íþróttamiðstöðina frá kl. 08:30-12:00 og við Söluskálann í Ólafsvík sama dag frá kl. 14:30-18:00. „Við hvetjum…Lesa meira

true

Síðustu leikir sumarsins

Nú þegar dagarnir eru að styttast og sumri tekið að halla, er knattspyrnuvertíðinni senn að ljúka. Þriðji flokkur karla hjá Snæfellsnessamstarfinu tóku á móti liði Vestra á Grundarfjarðarvelli síðasta sunnudag. Þar enduðu leikar 4-3 heimamönnum í vil eftir hörku viðureign. Strax þar á eftir tók fjórði flokkur karla við og tók á móti Njarðvík á…Lesa meira

true

Jósefínubók er komin út

Jósefína Meulengracht Dietrich, skáldlæða og mannfræðingur á Akranesi, hefur gefið út ljóðabók. Titill hennar er Jósefínubók og kom út í síðustu viku. Bókin hefur að geyma 101 lausavísu og kvæði sem Jósefína sjálf hefur ort í áranna rás. Læðan fer um víðan völl í kveðskap sínum; ekkert málefni er henni óviðkomandi. Þar er t.a.m. að…Lesa meira

true

„Leggjum áherslu á kjarnastarfsemi Íslandspósts og góða þjónustu á landsvísu“

Ekki hafa farið fram hjá neinum þær þrengingar sem opinbera hlutafélagið Íslandspóstur hefur gengið í gegnum á liðnum árum. Við fækkun bréfasendinga og taps á erlendum bögglasendingum, sem hefur fjölgað mikið sérstaklega frá Asíu, hefur á undanförnum árum verið brugðist við með margvíslegum hagræðingaraðgerðum og því að draga úr þjónustu, einkum á landsbyggðinni. Hið sama…Lesa meira

true

Krefjast þess að stjórnvöld setji eigendastefnu fyrir Landsvirkjun

Bæjarstjórn Akraness og sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hafa sent ríkisstjórn Íslands sameiginlega áskorun um stefnubreytingu í málefnum orkukræfs iðnaðar; „vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin í atvinnumálum á Grundartanga og leitt getur til verulegs samdráttar í starfsemi orkukræfs iðnaðar og fækkun starfa,“ eins og segir í áskoruninni. Sveitarfélögin lýsa þungum áhyggjum yfir því að rekstrarumhverfi…Lesa meira

true

Móta launaskriði í hópi hæstlaunaðra

„Komið hefur í ljós að sú aðgerð að leggja niður kjararáð hefur valdið launaskriði hjá þeim hæstlaunuðu hjá ríkinu,“ segir í ályktun miðstjórnar ASÍ. „Það var engin umræða um sanngjörn laun í tengslum við þá aðgerð. Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Á meðan við leggjum ekki skýrar línur í þessum málum skiptir…Lesa meira

true

Lord Nelson átti viðdvöl í Stykkishólmi

Seglskútan Lord Nelson átti fyrr í vikunni stutta viðkomu í Stykkishólmshöfn á hringferð sinni umhverfis landið. Lagði hún frá bryggju í Reykjavík 24. ágúst en fyrirhugað er að hringferðin umhverfis Ísland endi einnig þar 6. september, ef veður verður hagstætt. Skútan er þriggja mastra, smíðuð árið 1986. Hún var hönnuð með aðgengi fyrir fatlaða. Gert…Lesa meira

true

Opin landsliðsæfing á Akranesi síðdegis í dag

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu verður með opna æfingu á Akranesvelli. Landsliðið undirbýr sig þessa dagana fyrir leik gegn Ungverjalandi í undankeppni EM2021. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli á morgun, fimmtudaginn 29. ágúst. Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari hefur ákveðið að lokaæfing liðsins fyrir leikinn verði á Akranesi í dag. Æfingin hefst kl. 17:00 en leikmenn ætla…Lesa meira