Fréttir

true

Tökum fullt tillit í umferðinni!

Nú þegar skólar byrja á ný eftir sumarfrí er mikilvægt að ökumenn aki með gát nærri skólum og taki fullt tillit til þeirra fjölmörgu barna sem þar eru á ferð. Sum hver eru nýliðar og ekki endilega með allar reglurnar á tæru á meðan önnur eru orðin veraldarvön og finnst þau ekki endilega þurfa að…Lesa meira

true

Skagakonur lutu í gras

Skagakonur töpuðu gegn Haukum, 4-1, þegar liðin mættust í 14. umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Hafnarfirði í gærkvöldi. Leikurinn byrjaði fjörlega. Haukar áttu skot í stöngina og út áður en ÍA náði forystunni á 12. mínútu leiksins. Rangstöðugildra Hauka brást þegar hár bolti var sendur inn fyrir vörnina á Erlu Karitas…Lesa meira

true

Hefja nám í tölvuleikjagerð á Ásbrú

Fyrsta skólasetning nýrrar námsbrautar Menntaskólans á Ásbrú í Reykjanesbæ fór fram í gær, að viðstaddri Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Þar komu saman nemendur í fyrsta árgangi tölvuleikagerðarbrautar skólans en nýbreytni er að boðið sé upp á slíkt nám á framhaldsskólastigi hér á landi. Alls 44 nemendur hófu námið nú og komust færri að en…Lesa meira

true

Sandholt í Ólafsvík tekið í gegn

Frá því er greint á fréttasíðu Snæfellsbæjar í liðinni viku að framkvæmdir standa nú yfir í Sandholti í Ólafsvík. Í vikulokin var búið að skipta um jarðveg, leggja nýja holræsa- og vatnslagnir og ljúka við jarðvinnu vegna síma- og rafstrengja. Styttist því í að gatan verði klár undir malbikun. Það er TS vélaleigan sem annast…Lesa meira

true

Fín veiði í Grímsá

„Þetta gekk ágætlega í Grímsá og hollið veiddi 28 laxa,“ sagði Ari Little Jósefsson en hann var að koma úr hörkuholli sem var við veiðar í Grímsá í vikunni sem leið. Áin hafði þá gefið 360 laxa. „Við fengum líka talsvert af sjóbirtingi svo við erum sáttir,“ bætti hann við. Dídí Carlson var einnig við…Lesa meira

true

Gat kom á sjókví í Tálknafirði

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi föstudaginn 16. ágúst um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Laugardal í Tálknafirði. Gatið uppgötvaðist við þrif og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið um 7cm x 12cm og á 2m dýpi. Voru um 179.000 laxar í kvínni með meðalþyngd 280 gr. Við köfunareftirlit sem átti sér…Lesa meira

true

Innlegg hækkar um 10% milli ára

Frá því var greint hér á vefnum í síðustu viku að vegið landsmeðaltal sex af sjö afurðastöðvum sem taka dilka til slátrunar í haust hafi verið 429 krónur. Nú hefur Fjallalamb gefið út sitt verð, síðast afurðastöðva, en auk þess tilkynnti Norðlenska um hækkun á áður birtri verðskrá sinni og hækkar reiknað meðalverð fyrirtækisins úr…Lesa meira

true

Hyggjast kortleggja matarsóun hér á landi

Umhverfisstofnun hefur afráðið að hrinda af stað ítarlegri rannsókn á umfangi matarsóunar á Íslandi. Í þessari viku verður byrjað að hringja út til ríflega eitt þúsund heimila sem lenda í slembiúrtaki og heimilisfólk beðið að taka þátt í rannsókninni. Þátttakendur verða beðnir að vigta mat og matarúrgang sem fer til spillis á heimilinu í eina…Lesa meira

true

Skipulagsstofnun leggur til takmarkaða stækkun kjúklingabús

Skipulagsstofnun kvað í liðinni viku upp úrskurð um frummatsskýrslu vegna stækkunar kjúklingabús Matfugls á Hurðarbaki í Hvalfjarðarsveit. Matfugl hyggst stækka búið í allt að 192 þúsund eldisrými, en þau eru 80 þúsund í dag. Stefnt er að byggja allt að fjögur, hundrað metra löng eldishús sem komi til viðbótar þeim tveimur húsum sem fyrir eru…Lesa meira

true

Óbyggðanefnd telur Snæfellsjökul vera þjóðlendu

Óbyggðanefnd kvað í síðustu viku upp úrskurði í þjóðlendumálum á Snæfellsnesi, nánar tiltekið í málum 1-4/2018. Niðurstöður nefndarinnar eru m.a. þær að Snæfellsjökull og landsvæði sunnan og austan hans séu þjóðlendur. Síðarnefnda svæðið, þ.e. landsvæði sunnan og austan Snæfellsjökuls, var jafnframt úrskurðað afréttur jarða í fyrrum Breiðuvíkurhreppi. Einnig var Eyrarbotn úrskurðaður þjóðlenda og jafnframt í…Lesa meira