Fréttir

true

Tap í baráttuleik

Víkingur Ó. tapaði fyrir Keflavík með tveimur mörkum gegn einu þegar liðin mættust í Inkasso deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var suður með sjó. Ólafsvíkingar lentu í smá brasi á leið sinnit til Keflavíkur því ekið var á rútu þeirra þar sem hún stóð kyrrstæð á bílastæði í Borgarnesi. Þurftu liðsmenn Víkings að…Lesa meira

true

Sex vikur án sigurs

Skagamenn máttu játa sig sigraða gegn Stjörnunni á útivelli, 3-1, þegar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Var þetta fjórða tap ÍA í röð, en síðasti sigurleikur liðsins kom á móti Fylki laugardaginn 6. júlí. Skagamenn voru nálægt því að komast yfir strax í upphafi leiks þegar Hörður Ingi Gunnarsson…Lesa meira

true

Teknar út á sunnudögum

Þessar fallegu dráttarvélar eru í eigu Hinriks Hinrikssonar frá Helgafelli, sem býr í Stykkishólmi. Hefur hann sjálfur gert vélarnar upp. Þær eru svo teknar út á sunnudögum og tyllir Hinrik íslenska fánanum á þær til skrauts. Bragginn í baksýn er nýttur sem handverkshús og glerlistakona sem hefur þar aðsetur.Lesa meira

true

A4 oftast með lægsta verð á notuðum námsbókum fyrir framhaldsskólanema

Verslunin A4 er oftast með lægstu verðin á notuðum námsbókum fyrir framhaldsskólanema samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var 15. ágúst síðastliðin. A4 var með lægstu verðin í 23 tilfellum af 42, Penninn Eymundsson í 12 tilvikum og Heimkaup.is í sex tilvikum. Mikill verðmunur er á nýjum og notuðum bókum og geta framhaldsskólanemendur sparað…Lesa meira

true

Flestir kennaranemar í launað starfsnám á lokaárinu

Liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að fjölga kennurum er að frá og með þessu hausti býðst nemendum á lokaári í meistaranámi til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi launað starfsnám. Samkvæmt upplýsingum frá háskólunum gengur mjög vel að finna starfsnámstöður fyrir kennaranema, 96% þeirra sem eftir því sækjast hafa þegar fengið stöðu. „Við höfum fengið…Lesa meira

true

Fjalla um möguleika dreifbýlis í þátttöku í fjórðu iðnbyltingunni

Fimmtudaginn 5. september næstkomandi verður haldin ráðstefna um fjórðu iðnbyltinguna samtímis á sex stöðum á landinu; í Borgarnesi, Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Reyðarfirði og Selfossi. Öllum erindum ráðstefnunnar verður streymt milli staða auk þess sem hægt verður að fylgjast með í gegnum netið fyrir þá sem sjá sér ekki fært að mæta. „Megininntak ráðstefnunnar eru þau…Lesa meira

true

Járngerðarhátíð verður á Eiríksstöðum um mánaðamóti

Járngerðarhátíðin verður haldin á Eiríksstöðum í Dölum dagana 30. ágúst og 1. september næstkomandi. Eiríksstaðir ásamt Hurstwic bjóða gestum að koma á hátíðina þar sem þeim gefst tækifæri til að kynnast lífi fólks á víkingaöld með því að sjá, snerta, prófa og gera hluti á þann hátt sem fólk gerði fyrir þúsund árum. Á hátíðinni…Lesa meira

true

Heitir nú Brim hf.

Á hluthafafundi í HB Granda hf. í gær var borin upp tillaga um að breyta nafni félagsins í Brim. Var tillagan samþykkt með 91% atkvæða. Þar með falla úr almennri málnotkun nöfn beggja fyrirtækjanna sem mynda þetta stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, það er Grandi í Reykjavík og Haraldur Böðvarsson & Co á Akranesi.  Lesa meira

true

Arnarvarpið gekk sérlega vel við sunnanverðan Breiðafjörð

Arnarstofninn hefur stækkað jafnt og þétt undanfarna áratugi eftir að hafa verið í bráðri útrýmingarhættu á fimmtíu ára tímabili frá 1920-1970. Á vef Náttúrustofu Vesturlands kemur fram að í ár komust fleiri arnarungar á legg en nokkru sinni og gekk arnarvarpið sérlega vel við sunnanverðan Breiðafjörð. Arnarstofninn er vaktaður af Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrustofu Vesturlands og…Lesa meira

true

Ráðist verður í breytingar á samþykktum og hluthafasamkomulagi MB

Sveitarstjórn Borgarbyggðar ræddi á fundi sínum í gær þá stöðu sem upp er komin í stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar og ítarlega var fjallað um í síðasta Skessuhorni. Ekki fór fram formlegur fundur í gær í hópi hluthafa Menntaskóla Borgarfjarðar, eins og sagt var í frétt Skessuhorns, heldur funduðu fulltrúa úr byggðarráði og níu stærstu hluthafar í…Lesa meira