Fréttir

true

Þorpið í Flatey er verndarsvæði í byggð

Bókhlaðan í umsjá Þjóðminjasafnsins   Þorpið í Flatey verður eftirleiðis skilgreint sem verndarsvæði í byggð. Í því felst að það ber að varðveita í sem upprunalegastri mynd. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, undirrituðu staðfestingu þess efnis við hátíðlega athöfn síðastliðinn laugardag. Við sama tækifæri afhenti Reykhólahreppur íslenska ríkinu bókhlöðuna í…Lesa meira

true

Ólafsdalshátíð haldin í tólfta sinn

Nokkur fjöldi gesta sótti Ólafsdal í Dölum heim síðastliðinn laugardag þegar árleg hátíð Ólafsdalsfélagsins var haldin í tólfta sinn. Veðurguðirnir voru ekki að sýna sínar bestu hliðar á Vesturlandi um helgina þannig að aðlaga þurfti framkvæmd og skipulag hátíðarinnar í samræmi við það. Áður en formleg dagskrá hófst var boðið upp á gönguferð að víkingaaldarskálanum…Lesa meira

true

Flugslys í Svefneyjum

Flugslys varð í Svefneyjum á Breiðafirði síðdegis síðastliðinn fimmtudag. Flugvél í flugtaki fékk á sig vindhviðu undir vænginn með þeim afleiðingum að flugmaðurinn missti stjórn á vélinni. Vélin fór fram af flugbrautinni og lenti ofan í fjöru þar sem hún steyptist fram fyrir sig og endaði á hvolfi. Flugmaður og farþegi reyndust ómeiddir og komust…Lesa meira

true

Háþrýstiþvottur í gripahúsum getur borið smit

Starfsfólk Matvælastofnunar hefur komist að þeirri niðurstöðu að háþrýstiþvottur á umhverfi nautgripa hafi að líkindum verið ein af smitleiðum STEC smitsins í Efstadal II í fólk. Stofnunin vekur athygli bænda og annarra framleiðenda á því að úði frá háþrýstiþvotti á smituðu umhverfi geti dreift smitefnum og valdið sjúkdómi í dýrum og mönnum. „Á Íslandi og…Lesa meira

true

„Ég lít á Ólafsvík sem heimili mitt“

Fadel A Fadel er borinn og barnfæddur Egypti. Í heimalandinu lauk hann sinni skólagöngu og útskrifaðist sem íþróttafræðingur á tíunda áratugnum. Hann býr nú í Ólafsvík ásamt Adam, fjórtán ára syni sínum, er er í fjarbúð því eiginkonan Nevin Amin býr og starfar í Katar. Eftir að hafa lokið námi höguðu tilviljanir því svo að…Lesa meira

true

Fjallað um upphaf skólaársins í Skessuhorni í dag

Í Skessuhorni sem kom út í dag er púlsinn tekinn á skólum í landshlutanum. Rætt er við forsvarsmenn grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla á Vesturlandi. Samhliða því að grunnskólar hefjast bætast mörg hundruð ungir einstaklingar í umferðina. Ökumenn eru sérstaklega hvattir til að taka tillit til þeirra og aka varlega. Sjá Skólablað Skessuhorns.Lesa meira

true

Bókin Undir kelduna – saga Hvalfjarðarganga

Síðastliðinn fimmtudag var boðað til útgáfuhófs í Jónsbúð á Akranesi. Tilefnið var útgáfa bókarinnar Undir kelduna saga Hvalfjarðarganga 1987-2019. Það er bókaútgáfan Svarfdælasýsl sem gefur bókina út en höfundur er Atli Rúnar Halldórsson. Að bókaforlaginu standa sex systkin, Halldórsbörn frá Jarðbrú í Svarfaðardal. Þetta er önnur bók forlagsins, en sú fyrri kom út fyrir tveimur…Lesa meira

true

Eldur í fjölbýlishúsi á Akranesi

Núna á sjötta tímanum var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út vegna elds í fjölbýlishúsi við Kirkjubraut 12 á Akranesi. Eldur hafði kviknað út frá gaskút við grill á lokuðum svölum á þriðju hæð í byggingunni. Sökum þess að svalirnar eru yfirbyggðar barst reykur inn í íbúðina svo þurfti að reykræsta hana. Slökkvistarf gekk greiðlega…Lesa meira

true

Gæsaveiðin hófst á miðnætti

Gæsaveiði var heimil frá og með miðnætti aðfararnótt 20. ágúst en tímabilið stendur til 15. mars næstkomand. Gildir það bæði um veiðar á grágæs og heiðargæs. Margir skotveiðimenn hafa beðið gæsaveiðitímabilsins með eftirvæntingu og dæmi um að menn hafi haldið til veiða þegar klukkan sló miðnætti og verið við veiðar í nótt. Að jafnaði stunda…Lesa meira

true

Kór Akraneskirkju á menningarnótt

Kór Akraneskirkju mun taka þátt í Sálmafossi á menningarnótt laugardaginn 24. ágúst í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Þar verður fjölbreytt tónlistardagskrá frá kl. 15 – 21 þar sem kórtónlist og orgeltónlist mun hljóma. Kórsöngur mun verða á heila tímanum og mun Kór Akraneskirkju syngja kl. 16 undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar.Lesa meira