Fréttir

true

Flestir kennaranemar í launað starfsnám á lokaárinu

Liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að fjölga kennurum er að frá og með þessu hausti býðst nemendum á lokaári í meistaranámi til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi launað starfsnám. Samkvæmt upplýsingum frá háskólunum gengur mjög vel að finna starfsnámstöður fyrir kennaranema, 96% þeirra sem eftir því sækjast hafa þegar fengið stöðu. „Við höfum fengið…Lesa meira

true

Fjalla um möguleika dreifbýlis í þátttöku í fjórðu iðnbyltingunni

Fimmtudaginn 5. september næstkomandi verður haldin ráðstefna um fjórðu iðnbyltinguna samtímis á sex stöðum á landinu; í Borgarnesi, Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Reyðarfirði og Selfossi. Öllum erindum ráðstefnunnar verður streymt milli staða auk þess sem hægt verður að fylgjast með í gegnum netið fyrir þá sem sjá sér ekki fært að mæta. „Megininntak ráðstefnunnar eru þau…Lesa meira

true

Járngerðarhátíð verður á Eiríksstöðum um mánaðamóti

Járngerðarhátíðin verður haldin á Eiríksstöðum í Dölum dagana 30. ágúst og 1. september næstkomandi. Eiríksstaðir ásamt Hurstwic bjóða gestum að koma á hátíðina þar sem þeim gefst tækifæri til að kynnast lífi fólks á víkingaöld með því að sjá, snerta, prófa og gera hluti á þann hátt sem fólk gerði fyrir þúsund árum. Á hátíðinni…Lesa meira

true

Heitir nú Brim hf.

Á hluthafafundi í HB Granda hf. í gær var borin upp tillaga um að breyta nafni félagsins í Brim. Var tillagan samþykkt með 91% atkvæða. Þar með falla úr almennri málnotkun nöfn beggja fyrirtækjanna sem mynda þetta stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, það er Grandi í Reykjavík og Haraldur Böðvarsson & Co á Akranesi.  Lesa meira

true

Arnarvarpið gekk sérlega vel við sunnanverðan Breiðafjörð

Arnarstofninn hefur stækkað jafnt og þétt undanfarna áratugi eftir að hafa verið í bráðri útrýmingarhættu á fimmtíu ára tímabili frá 1920-1970. Á vef Náttúrustofu Vesturlands kemur fram að í ár komust fleiri arnarungar á legg en nokkru sinni og gekk arnarvarpið sérlega vel við sunnanverðan Breiðafjörð. Arnarstofninn er vaktaður af Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrustofu Vesturlands og…Lesa meira

true

Ráðist verður í breytingar á samþykktum og hluthafasamkomulagi MB

Sveitarstjórn Borgarbyggðar ræddi á fundi sínum í gær þá stöðu sem upp er komin í stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar og ítarlega var fjallað um í síðasta Skessuhorni. Ekki fór fram formlegur fundur í gær í hópi hluthafa Menntaskóla Borgarfjarðar, eins og sagt var í frétt Skessuhorns, heldur funduðu fulltrúa úr byggðarráði og níu stærstu hluthafar í…Lesa meira

true

Möns fær fimm stjörnur á Trip Advisior

Möns vagninn á Arnarstapa hlaut fyrir skömmu frábæra viðurkenningu frá Trip Advisor en álitsgjafar á vefnum gefa matarvagningum fimm stjörnur af fimm mögulegum. Guðjón Jóhannesson rekur Möns vagninn ásamt foreldrum sýnum, þeim Herdísi Þórðardóttur og Jóhannesi S Ólafssyni frá Akranesi. „Við höfum verið með vagninn hérna á Arnarstapa frá árinu 2016,“ segir Guðjón og segir…Lesa meira

true

Listahátíðin Plan-B Festival gekk vonum framar

Listahátíðin Plan-B Art Festival var haldin í þriðja sinn um síðustu helgi í Borgarnesi og gekk hátíðin vonum framar í ár að sögn skipuleggjenda. Sýnt var á alls ellefu stöðum víðsvegar um bæjarplássið og nágrenni og voru listamenn á um þriðja tug sem tók þátt í hátíðinni. Plan-B hófst með opnun samsýningar í aðalsýningarrými hátíðarinnar…Lesa meira

true

Poppa upp stemningu fyrir 25 ára afmælishátíð Danskra daga

Lokahönd var í gærkveldi lögð á undirbúning fyrir Danska daga sem fara fram í Stykkishólmi um helgina. Engu verður til sparað þar sem bæjarbúar fagna þess að hátíðin er nú haldin í 25. skipti. Danskir dagar hafa alla tíð verið haldnir á sama tíma árs og voru upphaflega hugsaðir sem átak til að lengja ferðamannatímann.…Lesa meira

true

Grásleppuveiðin gekk vel í Stykkishólmi

Grásleppuveiði hefur gengið vel í Stykkishólmi í sumar. Feðgarnir Lárus Franz Hallfreðsson og Einar sonur hans á Ögra SH eru byrjaðir að taka upp netin. Létu þeir vel af vertíðinni. Sömu sögu hafði Emil Þór Guðbjörnsson að segja, en hann var að landa upp úr Maí SH þegar ljósmyndari Skessuhorns átti leið um nýverið. Aðgerðaborðið…Lesa meira