Fréttir

true

Flemming Open púttmótið var á Hvammstanga

Undir lok júlí var Flemming púttmótið haldið á Hvammstanga. Leiknar voru tvisvar sinnum 18 holur. Að sögn Flemming Jessen mótsstjóra gekk mótshald vel, þrátt fyrir að veður hafi verið heldur leiðinlegt, vindur og kalt. „Þátttakendur í ár voru þremur færri en síðasta ári. Á meðan að á mótinu stóð gæddu þátttakendur sér á gulrótum og…Lesa meira

true

Fyrsta sæðistakan úr Aberdeen Angus blendingunum

Norskir fósturvísar af kúastofninum Aberdeen Angus voru fluttir inn frá Noregi 2017 og komið fyrir í kúm sem höfðar voru í sérstakri einangrunarstöð á Stóra Ármóti í Flóahreppi. Þriðjungurinn af þeim 33 kúm sem fósturvísunum var komið fyrir í báru kálfum sem nú eru að vaxa úr grasi, sá elsti 11 mánaða. Úr nautkálfunum sem…Lesa meira

true

Fer hringferð um landið til baráttu gegn ofbeldi á börnum

Á morgun, föstudaginn 16. ágúst, hefja UNICEF á Íslandi og crossfit kappinn Einar Hansberg Árnason hringferð um landið í baráttu gegn ofbeldi á börnum. Mun Einar fara réttsælis um landið og byrjar því för sína á Vesturlandi. Kemur við á Akranesi klukkan 10 í fyrramálið, verður klukkan 14 í Stykkishólmi, klukkan 17 í Búðardal og…Lesa meira

true

Villikattafélag starfrækt á Vesturlandi

Villikettir er góðgerðafélag sem hefur verið starfrækt frá árinu 2014. Félagið hefur það markmið að vernda villiketti á Íslandi. „Þetta byrjaði í rauninni bara því ég vissi af villiketti hér í götunni hjá mér og ég leitaði til Villikattafélagsins í Reykjavík með aðstoð við að fanga hann. Ég fékk fellibúr og náði kettinum. Hann reyndist…Lesa meira

true

Gerði upp bíl sem lokaverkefni í grunnskólanum

Tindur Ólafur Guðmundsson á Grund í Reykhólasveit útskrifaðist úr Reykhólaskóla síðastliðið vor ásamt bekkjarfélögum sínum. Hann er einn af þeim sem hneigist ekki til bóknáms en er hæfileikamaður á öðrum sviðum. Tindur hefur mikinn áhuga á bílum og tækjum, kann sitthvað fyrir sér í viðgerðum og er margfalt fróðari um hvers kyns ökutæki og vélar…Lesa meira

true

Mokveiða makríl til beitu

Mokveiði hefur verið hjá makrílbátunum á Snæfellsnesi að undanförnu eða allt að 20 tonn á dag þegar best lætur. Bárður Jóhönnusson skipstjóri á Júlla Páls var ánægður með veiðarnar þegar fréttaritari hitti hann á kajanum um helgina. Hann segir að makríllinn hafi komið fyrr í ár en á síðasta ári og bætti við að hann…Lesa meira

true

Ólafsdalshátíð verður á morgun, laugardag

Ólafsdalshátíð verður haldin í tólfta sinn í Ólafsdal við Gilsfjörð laugardaginn 17. ágúst. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna. Að morgni laugardags, kl. 11:00 verður boðið upp á tvær gönguferðir. Annars vegar að víkingaaldarskálanum sem var uppgötvaður árið 2017. Fræðst verður um minjar á leiðinni og það nýjasta varðandi uppgröftinn, undir leiðsögn Birnu…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramót í hrútadómum er framundan

Mikið hefur verið um að vera á Sauðfjársetrinu á Ströndum í sumar, margvíslegar uppákomur og viðburðir. Framundan er svo stærsta samkoma ársins, Íslandsmeistaramótið í hrútadómum, sem verður haldið sunnudaginn 19. ágúst og hefst kl. 14:00 í Sævangi við Steingrímsfjörð. Ester Sigfúsdóttir framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins segir að undirbúningur fyrir helgina gangi vel: „Það er alltaf góð þátttaka…Lesa meira

true

Danskir dagar framundan í Stykkishólmi

Fjölskyldu- og bæjarhátíðin Danskir dagar í Stykkishólmi verður haldin dagana 15. -18. ágúst. Hátíðin er ein af elstu bæjarhátíðum á landinu og hefur verið haldin hátíðlega frá árinu 1994 og fagnar hátíðin í ár því aldarfjórðungsafmæli. Líkt og í fyrra er skipulag hátíðarinnar í höndum starfsmanna safnanna ásamt fleirum. Ár hvert flykkist fólk í Hólminn…Lesa meira

true

Bætt aðgengi að Eldborg

Í sumar hafa starfsmenn á vegum Umhverfisstofnunar, auk sjálfboðaliða, unnið að stígagerð að og á hinni gömlu eldstöð Eldborg í Hnappadal á Snæfellsnesi. Eldborg er eins og margir þekkja formfagur gjallgígur sem rís 60 metra yfir hraunið í kring og er stærstur gíga í stuttri gossprungu. Sjálf Eldborg er 200 metrar í þvermál og 50…Lesa meira