Fréttir

true

Rauðberjalyng nemur land í Borgarfirði

Rauðberjalyng er fremur sjaldgæf jurt hér á landi, en fram til þessa hefur hún einkum sprottið um austanvert landið og í Öxarfirði. Þá hefur það fundist í Þrastarskógi og í furulundinum við Rauðavatn og gæti á báðum þeim stöðum verið aðflutt með skógrækt, að því er fram kemur í lýsingu Harðar Kristinssonar í Flóru Íslands.…Lesa meira

true

Skagastelpur með kærkominn sigur á heimavelli

Skagastelpur unnu kærkominn á ÍR á í gærkveldi þegar liðin áttust við í 13. umferð fyrstu deild kvenna í knattspyrnu. Bæði lið eru að berjast í neðri hluta deildarinnar og var því búist við hörku viðureign á milli liðanna. Leikið var á Akranesvelli. ÍA byrjaði leikinn af krafti og sótti ítrekað á gestina úr Breiðholtinu…Lesa meira

true

“Ég er mjög fræg, fólk horfir og bendir á mig út um allan bæ”

Þegar blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til eftirlitskisunnar Bellu var hún nýkomin heim úr hefðbundinni eftirlitsferð um Akranes. Bella flutti til Líneyjar Hendrikku Harðardóttur og fjölskyldu við Eyrarflöt á Akranesi fyrir rétt tæpum þremur árum. Hún var fljót að aðlagast nýja heimilinu og lagði strax mikla áherslu á að gefa af sér til samfélagsins. Bella…Lesa meira

true

Lásu 1760 bækur í Sumarlestrinum

Alls voru rúmlega 200 börn skráð í Sumarlesturinn á Bókasafni Akraness að þessu sinni. 150 þeirra voru virkir lesendur í sumar. „Þetta er mun meiri þátttaka en síðustu ár og erum við mjög ánægð með árangurinn,“ segir starfsfólk bókasafnsins. Alls voru lesnar 1760 bækur og blaðsíðurnar voru 114.306 talsins. Í dag, miðvikudaginn 14. ágúst, verður…Lesa meira

true

Orkumál fyrirferðarmest á fundi Sjálfstæðismanna

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru nýverið lagðir af stað í fimmtán funda ferð um landsbyggðina þar sem almenningi er boðið að hitta þá að máli. Einn slíkur fundur var haldinn í hádeginu í gær í Frístundamiðstöðinni við Garðavöll á Akranesi. Sex þingmenn flokksins mættu og hafði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra framsögu fyrir þeirra…Lesa meira

true

Vegglistaverk prýðir húsgafl í Brákarey

Um liðna helgi vann listateymið Krot og Krass að gerð listaverks á gafli skemmu Borgarverks í Brákarey í Borgarnesi. Að Kroti og Krassi standa þau Björn Loki og Elsa Jónsdóttir. Verkið tengdist Plan B listahátíðinni sem haldin var um helgina. Að sögn Sigursteins Sigurðssonar eins forsprakka hátíðarinnar er ekki vitað um nafn listaverksins, en sannarlega…Lesa meira

true

Tap hjá Skallagrími

Skallagrímur tapaði gegn KH í 16. umferð þriðju deildar karla í knattspyrnu þegar liðin mættust á Valsvelli í Reykjavík síðasta föstudag. Borgarnesliðið hefur átt erfitt tímabil til þessa og úrslit umferðarinnar því á pari við árangur liðsins í sumar. Einu mörk leiksins komu ekki fyrr en í síðari hálfleik. Mías Ólafarson skoraði þau bæði á…Lesa meira

true

Snæfell tók toppsætið á ný

Snæfellingar unnu stórsigur á KM í 12. umferð fjórðu deildar karla í knattspyrnu og hrifsuðu í leiðinni toppsætið til sín á ný frá Hvíta riddaranum. Leikið var á Stykkishólmsvelli á laugardaginn. Fyrsta mark leiksins kom hjá Hólmurum á 27. mínútu. Sigurjón Kristinsson kom þá sínum mönnum yfir. Tveimur mínútum síðar jafnaði Orats Reta Garcia metin…Lesa meira

true

Heimsmeistarar í badminton

Drífa Harðardóttir úr Badmintonfélagi Akraness ásamt Erlu Björg Hafsteinsdóttur úr Badmintonfélagi Hafnarfjarðar keppti fyrir Íslands hönd og stóðu uppi sem sigurvegarar á heimsmeistaramóti 40 ára og eldri í tvíliðaleik kvenna í badminton. Þær stöllur sigruðu Helenu Abusdal frá Noregi og Kötju Wengberg frá Svíþjóð í úrslitaeinvíginu sem fram fór á sunnudaginn. Erla og Drífa unnu…Lesa meira

true

Grindhvalavaða við Ólafsvík í gærkveldi

Grindhvalavaða var við Ólafsvík seint í gærkvöldi. Áætlað er að um hundrað hvalir hafi verið á ferð. Fjóra hvali rak á land. Þrír þeirra komust út aftur af sjálfsdáðum, en einn þeirra gaf upp öndina í flæðarmálinu. Lítill hópur fólks reyndi að koma hvalnum til bjargar, en án árangurs. Þá komu einnig félagar úr Lífsbjörgu…Lesa meira