Fréttir

true

Ráðist í gerð nýs vegar frá Hvanneyri að Hvítárbrú

Fyrr í sumar voru hjá Vegagerðinni opnuð tilboð í endurgerð Grímarsstaðavegar í Andakíl í Borgarfirði, en hann liggur frá Hvanneyrarvegamótum og að gömlu Hvítárbrúnni. Vegur þessi var þjóðleið milli landshluta allt þar til Borgarfjarðarbrú var vígð haustið 1981. Eftir það, og reyndar nokkru áður einnig, var hann án viðhalds. Í frétt Skessuhorns frá apríl 2017…Lesa meira

true

Alexandrea Rán bætti eigið Íslandsmet

Borgnesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir gerði sér lítið fyrir og sló eigið Íslandsmet þegar hún keppti fyrir hönd Íslands á Evrópumeistaramótinu í klassískum bekk lyftinga sem haldið var í Lúxemborg á föstudag. Alexandrea Rán bætti eigið met um 2,5 kíló og er því nýja Íslandsmetið hennar í bekkpressu 77,5 kíló. „Þetta var undir því sem ég…Lesa meira

true

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins með súpufund á morgun

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins halda opinn fund á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 13. ágúst kl. 12:00, í Frístundarmiðstöðinni við golfvöllinn á Akranesi. „Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins, dómsmálaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ritari Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og þingmennirnir Haraldur Benediktsson, Bryndís Haraldsdóttir og Vilhjálmur Árnason ræða stjórnmálaviðhorfið og…Lesa meira

true

Skráning hafin í Hreppslaugarhlaupið

Hið árlega Hreppslaugarhlaup verður fimmtudaginn 15. ágúst. Hlaupið hefst kl. 18:00 við Hreppslaug í Skorradal. Að hlaupi loknu er boðið í sund í hina gömlu og margrómuðu Hreppslaug. Nánari upplýsingar og skráning er á hlaup.is Vegalengdir í hlaupinu verða 14,2 km, 7 km og 3 km með tímatöku. Drykkjarstöð verður í lengra hlaupinu. Verðlaun verða…Lesa meira

true

Héraðið var forsýnt í Árbliki og á Hvammstanga í gær

Héraðið, ný íslensk kvikmynd eftir leikstjórann Grím Hákonarson, verður frumsýnd í bíóhúsum landsins á miðvikudaginn. Eins og kunnugt er var myndin að stórum hluta tekin upp á Erpsstöðum í Dölum, en auk þess á Hvammstanga og Blönduósi. Héraðið fjallar um samskipti Ingu, miðaldra kúabónda, við kaupfélagið og kerfið. Hún reynir að fá aðra bændur í…Lesa meira

true

Fjórði jafnteflisleikur Víkings í röð

Víkingur Ólafsvík gerði enn eitt jafnteflið þegar liðið tók á móti Leiknir R. á Ólafsvíkurvelli í 16. umferð fyrstu deildar karla í knattspyrnu á föstudaginn. Heimamenn byrjuðu mun sterkari og sóttu hart að gestunum frá Breiðholti á upphafsmínútunum. Það voru hins vegar Leiknismenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins. Á 27. mínútu átti Árni Elvar Árnason…Lesa meira

true

Þriðji tapleikur ÍA í röð

ÍA tapaði fyrir Breiðabliki í 16. umferð Pepsi Max deildar karla þegar liðin mættust á Akranesvelli í gær. Er þetta þriðja tap Skagamanna í röð sem færast nær neðri hluta deildarinnar eftir fantagóða byrjun á tímabilinu. Gestirnir komu heimamönnum í opna skjöldu strax í byrjun með því að skora tvö mörk á fyrst sjö mínútum…Lesa meira

true

Fleiri buðu í lengingu Norðurgarðs

Á síðasta degi júlímánaðar voru hjá Vegagerðinni opnuð tilboð í lengingu Norðurgarðs Ólafsvíkurhafnar. Hafnarstjórn Snæfellsbæjar hafði endurauglýst útboð þar sem einungis barst eitt tilboð, 80% yfir kostnaðaráætlun, þegar það var auglýst í vor. Að þessu sinni reyndist áhugi verktaka mun meiri og sjö tilboð bárust. Reyndust þau öll yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar sem hljóðar upp á…Lesa meira

true

Atvinnuleysi var 4,4% á öðrum ársfjórðungi

Á öðrum ársfjórðungi 2019 reyndist án vinnu hér á landi vera 9.400 sem jafngildir 4,4% atvinnuleysi. Á sama tíma voru um 6.200 störf laus á íslenskum vinnumarkaði samkvæmt starfaskráningu Hagstofunnar, eða um 2,7% starfa. Atvinnulausir voru því um einn og hálfur um hvert laust starf samanborið við tveir á móti einu starfi á fyrsta ársfjórðungi…Lesa meira

true

María ráðin í nýtt starf verkefnastjóra kynningarmála

María Neves hefur verið ráðin í nýtt starf verkefnastjóra atvinnu-, markaðs- og menningarmála hjá Borgarbyggð. Alls bárust 14 frambærilegar umsóknir um starfið, að því greint er frá á vef sveitarfélagsins. „Eftir úrvinnslu umsókna var ákveðið að ráða Maríu Neves í starfið. María lauk BA prófi í Miðlun og almannatengslum frá Háskólanum á Bifröst árið 2018…Lesa meira