Fréttir

true

Makrílveiðar fóru vel af stað hjá skipum HB Granda

Víkingur AK kom til Vopnafjarðar síðdegis í gær með um 790 tonn af makríl. Þetta er önnur veiðiferð skipsins á vertíðinni, en áður hefur Venus NS landað tvívegis á Vopnafirði þannig að makrílvinnsla skipa HB Granda er komin í fullan gang fyrir austan. ,,Vertíðin fer betur af stað nú en í fyrra,“ segir Hjalti Einarsson,…Lesa meira

true

Óska tilnefninga um framúrskarandi unga Íslendinga

Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI Íslandi. Þau eru fyrst og fremst hvatningarverðlaun til ungs fólks sem er að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni. „Þetta er hvatning og viðurkenning fyrir ungt fólk sem kemur til með að hafa áhrif í framtíðinni,“ segir í tilkynningu frá JCI Íslandi. „Framtíðarsýn JCI Íslands…Lesa meira

true

Kellingar hylltu heiðursborgara

Hin árlega söguganga fór fram á Írskum dögum á Akranesi fyrr í mánuðinum. Gangan var á vegum Bókasafns Akraness og Skagaleikflokksins. Að þessu sinni voru óvenju margir þátttakendur, eða um 100 talsins, að sögn Hallberu Jóhannesdóttur, sem er ein af ,,Kellingunum,” eins og þær kalla sig. Stansað var á nokkrum stöðum sem tengjast Braga Þórðarsyni…Lesa meira

true

Bjóða að nýju út lengingu Norðurgarðs

Vegagerðin og Snæfellsbær auglýsa í Skessuhorni vikunnar að nýju útboð á lengingu Norðurgarðs í Ólafsvík. Verkið var boðið út í vor en einungis eitt tilboð barst og reyndist það um 80% yfir kostnaðaráætlun. Var því ákveðið að bjóða verkið út að nýju og rýmri tímafrestur gefinn við að ljúka því. Samkvæmt útboðsauglýsingu skal lengingu Norðurgarðs…Lesa meira

true

Benda á ábyrgar smitvarnir í tengslum við dýr

Að gefnu tilefni vill Matvælastofnun hvetja alla til að stunda ábyrga hegðun varðandi snertingu við dýr, umhverfi þeirra og afurðir. Almennt hreinlæti og handþvottur er lykilatriði til að koma í veg fyrir að matvæli og fólk smitist. „Undanfarnar vikur hefur fólk sýkst af eiturmyndandi E. coli (STEC) bakteríu á bænum Efstadal 2 og tengist það…Lesa meira

true

Markaregn og dramatík

Kári tapaði gegn Þrótti frá Vogum í dramatískum markaleik þegar liðin mættust í tólftu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Akraneshöllinni í gærkvöldi. Eitt mark var skorað í fyrri hálfleik og þar var á ferðinni Miroslav Babic, sem kom gestunum af Suðurnesjum yfir á 21. mínútu leiksins. Hlynur Sævar Jónsson jafnaði metin…Lesa meira

true

Lítur á þetta sem sumarleik og bendir á að aðrir séu á Face-appinu

Björn Bjarki Þorsteinsson, fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð og núverandi framkvæmdastjóri Brákarhlíðar í Borgarnesi, varpaði fyrr í vikunni fram á facebook síðu sinni þeirri hugmynd, að hvetja Harald Benediktsson bónda á Vestra-Reini og fyrsta þingmann Norðvesturkjördæmis til að gefa kost á sér til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Björn Bjarki segir umræðu að undanförnu í röðum Sjálfstæðismanna…Lesa meira

true

Meira fæst fyrir fiskinn

Útflutningsverðmæti sjávarafurða var 239,8 milljarðar á síðasta ári. Er það 17,8% meira en árið 2017, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar. Flutt voru út rúmlega 670 þúsund tonn af sjávarafurðum á árinu 2018, sem er 61 þúsund tonni meira en árið áður. Frystar sjávarafurðir voru 42,7% af útflutningsverðmætinu, ísaðar 13,8% og mjöl/lýsi 27%.…Lesa meira

true

Um hálft hundrað dauðra grindhvala á Löngufjörum

Þyrluflugmaður og bandarískir ferðamenn sem hann flaug með fundu um hádegisbil í gær um fimmtíu dauða grindhvali á svokallaðri Gömlueyri, á Löngufjörum suður af Snæfellsnesi. Hvalirnir höfðu legið dauðir í sandinum í nokkra daga ef marka má myndir sem ferðamennirnir tóku. Ekki er akfært á þennan stað, en hægt að komast þangað fótgangandi og á…Lesa meira

true

Stækka kirkjugarðinn á Borg

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í liðinni viku var samþykkt beiðni sóknarnefndar Borgarkirkju á Mýrum um framkvæmdaleyfi fyrir stækkun kirkjugarðsins á Borg. Byggðarráð samþykkti að veita leyfið og auk þess að einnar milljónar króna fjárheimild í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, vegna framkvæmda í kirkjugörðum, renni til verkefnisins. Akstur jarðvegs í garðstæðið er hluti af því framlagi.Lesa meira