
Það var líf og fjör við hinn ægifagra Glanna í Norðurá síðdegis í gær. Í sólskini og hátt í tuttugu stiga hita var fjöldi ferðafólks sem naut þess að standa á útsýnispallinum og virða fossinn fyrir sér. Á veiðistöðum fyrir ofan fossinn renndu veiðimenn fyrir fisk, en fengu ekki. En gestirnir á útsýnispallinum gátu notið.…Lesa meira








