Fréttir

true

Ók af stað með dæluna í stútnum

Liðsmenn í Slökkviliði Borgarbyggðar voru kallaðir út á sjötta tímanum í gærkvöldi vegna olíumengunar við eldsneytisdælur Orkunnar á Brúartorgi í Borgarnesi. Einn viðskiptavinur hafði gleymt að taka dæluna úr stútnum áður en hann ók af stað eftir að hafa dælt olíu á bílinn. „Olíugildrur eru á bílastæðunum við dælurnar og þær tóku við megninu af…Lesa meira

true

Þrettán prósent þeirra sem hér býr hefur erlent ríkisfang

Alls voru 46.717 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi 1. júlí síðastliðinn og hefur þeim fjölgað um 2.561 frá 1. desember 2018 eða um 5,8%. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem búsettir eru hér á landi um 0,4%. Erlendir ríkisborgarar eru því 13% mannafla, en alls voru 360.384 búsettir í landinu 1. júlí. Flestir…Lesa meira

true

Öll sveitarfélög á Vesturlandi auk Vegagerðar lögðu inn kæru

Frestur til að kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, þann úrskurð Skipulagsstofnunar að láta væntanlega breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes fara í mat á umhverfisáhrifum, rann út á mánudaginn. Öll sveitarfélögin tíu á Vesturlandi kærðu úrskurðinn en auk þess Vegagerðin. Akraneskaupstaður var fyrstur til að tilkynna um væntanlega kæru en í kjölfarið tilkynnti Vegagerðin um slíkt…Lesa meira

true

Helena og Aníta hættar hjá ÍA

Þær Helena Ólafsdóttir, þjálfari kvennaliðs ÍA og Aníta Lísa Svansdóttir aðstoðarþjálfari hafa óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Knattspyrnufélags ÍA. Helena og Aníta tóku við þjálfun ÍA haustið 2016 og hafa því verið við stjórnvölinn hjá meistaraflokki kvenna í tæp þrjú ár. „Knattspyrnufélag ÍA óskar…Lesa meira

true

IceDocs hefst á Akranesi í kvöld

Heimildamyndahátíðin Icelandic Documentary Film Festival hefst á Akranesi í kvöld, miðvikudaginn 17. júlí, og stendur fram á sunnudag. Á hátíðinni verða sýndar 50 heimildamyndir alls staðar að úr heiminum, þar af 30 í fullri lengd. Lagt er upp úr fjölbreyttri dagskrá, léttum myndum og þungum auk barnamyndum. „Við ætlum að hafa sérstaka barnadagskrá á morgnana…Lesa meira

true

Skógarbændur stefna á ferð um Snæfellsnes og Skógarströnd

Sumarferð Félags skógarbænda á Vesturlandi verður að þessu sinni farin 7. ágúst, hringferð um innanvert Snæfellsnes og Skógarströnd. „Rútan fer frá Búðardal um kl. 8:50 að Lindartungu í Kolbeinsstaðarhreppi og fer þaðan kl. 09:30, en þar getur fólk geymt bíla sína. Stefnt er að því að vera komin aftur að Lindartungu um klukkan 17. Fyrsti…Lesa meira

true

Landsliðið í hestaíþróttum kynnt

Landslið Íslands í hestaíþróttum, sem keppir á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Berlín 4.-11. ágúst, var kynnt í gær. Sigurbjörn Bárðarson landsliðsþjálfari fór yfir val á knöpum og hestum liðsins. Þar var litið til árangurs á þremur WorldRanking-mótum og var Íslandsmótið í byrjun mánaðarins það síðasta af þeim mótum. Þá var sömuleiðis litið til árangurs knapa…Lesa meira

true

Vegurinn lagfærður að Akrafjalli

Fyrir helgi var byrjað að lagfæra veginn frá Akrafjallsvegi, meðfram Berjadalsá og að Akrafjalli. Að sögn Sævars Freys Þráinsson bæjarstjóra á Akranesi er verkið unnið á kostnað bæjarfélagsins en í góðri sátt við hlutaðeigandi landeigendur. Fjöldi fólks fer daglega að fjallinu til útivistar og umferð því talsverð. Vegurinn er grófur og ósléttur á köflum. Verður…Lesa meira

true

Inn vildi boltinn ekki

Skagakonur máttu sætta sig við 0-1 tap gegn Augnabliki þegar liðin mættust í áttundu umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi í gærkvöldi. Gestirnir úr Kópavogi voru betri í fyrri hálfleik og skoruðu eina mark leiksins á 19. mínútu. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir tók sprett upp vinstri kantinn, sendi á fjærstöng þar sem…Lesa meira

true

Jafnt suður með sjó

ÍA og Grindavík gerðu 1-1 jafntefli þegar liðin mættust suður með sjó í tólftu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Bæði lið fengu sín færi í upphafi leiks. Skagamenn komust í dauðafæri þegar þeir hirtu boltann af Grindvíkingum í öftustu línu en tókst ekki að nýta það. Heimamenn fengu síðan dauðafæri eftir…Lesa meira