
Skessuhorn verður gefið út næstu þrjá miðvikudaga, þ.e. 17., 24. og 31. júlí. Starfsfólk fer eftir það í viku sumarfrí og kemur því EKKI út blað miðvikudaginn 7. ágúst, en hefðbundin útgáfa verður eftir það.Lesa meira

Skessuhorn verður gefið út næstu þrjá miðvikudaga, þ.e. 17., 24. og 31. júlí. Starfsfólk fer eftir það í viku sumarfrí og kemur því EKKI út blað miðvikudaginn 7. ágúst, en hefðbundin útgáfa verður eftir það.Lesa meira

Valdís Þóra Jónsdóttir og Stefán Orri Ólafsson fögnuðu sigri í meistaraflokkum kvenna og karla á meistaramóti Golfklúbbsins Leynis 2019, en mótinu lauk á laugardag. Valdís lék best allra í mótinu, spilaði á samtals átta höggum undir pari á fjórum keppnishringjum. Hún fór hringina fjóra á samtals 280 höggum og sigraði í meistaraflokki kvenna, en Hulda…Lesa meira

Hvalaskoðunarbáturinn Láki fór með ferðamenn í lundaskoðun og sjóstangveiði miðvikudaginn 10. júlí síðastliðinn. Það sem var óhefðbundið við þessa ferð er að einungis kvenmenn voru í áhöfn skipsins. Josephine Mayr var í sinni fyrstu ferð sem skipstjóri þennan dag og Sandra Hörbst var með henni í áhöfn. Þá sigldu þær með farþega að Melrakkaey í…Lesa meira

Eins og fram kom í fréttum í liðinni viku kærði Akraneskaupstaður þá ákvörðun Skipulagsstofnunar að setja breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes í umhverfismat. Vegagerðin hugðist einnig kæra. Samkvæmt tilkynningu sem var að berast frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi hafa nú átta sveitarfélög til viðbótar fylgt í kjölfarið. Það eru sveitarfélögin Borgarbyggð, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Helgafellssveit,…Lesa meira

Bilun kom upp í búnaði fjarskiptafyrirtækisins Mílu á Akranesi á þriðja tímanum í dag. Bilunin hefur áhrif á fjarskipti á Akranesi og nærliggjandi svæðum, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Mílu. Undirbúningur viðgerðar er hafinn.Lesa meira

„Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Mýrasýslu lýsir fullum stuðningi við þau sjónarmið sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, Haraldur Benediktsson, setur fram í grein fyrir stuttu þar sem segir: „Sú hugmynd er hér sett fram að áskilja það í innleiðingu orkupakka 3 að setja lagaákvæði um að slík tenging verði aðeins með samþykki þjóðarinnar í sérstakri atkvæðagreiðslu. Sæstrengur…Lesa meira

Eins og áður hefur verið greint frá hafa staðið yfir framkvæmdir á Snæfellsnesvegi um Fróðárheiði síðan í vetur. Verið er að leggja nýjan veg frá Valavatni að vegamótum Útnesvegar Ólafsvíkurmegin. Verkið er í höndum verktakafyrirtækisins Borgarverks ehf. og ganga framkvæmdir vel, að því er fram kemur á Facebook-síðu Snæfellsbæjar. Áætlað er að fyrsta áfanga verði…Lesa meira

Í Samráðsgátt stjórnvalda var síðastliðinn föstudag birt drög að frumvarpi þar sem lagt er til að aflaheimildum í grásleppu verði úthlutað til skipa sem eru með rétt til að veiða grásleppu samkvæmt gildandi lögum. Í núgildandi fyrirkomulagi grásleppuveiða er veiðunum stjórnað á grundvelli leyfa og með dagatakmörkunum, en lagt til að veiðistjórn verði breytt úr…Lesa meira

Skallagrímsmenn máttu sætta sig við 4-0 tap þegar þeir mættu Álftnesingum í 3. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Bessastaðavelli. Heimamenn fengu óskabyrjun þegar Brandon Nathaniel Wellington kom þeim yfir strax á 1. mínútu leiksins. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og heimamenn því yfir í hléinu. Arnar Már Björgvinsson…Lesa meira

Snæfell vann 5-1 stórsigur á KB þegar liðin mættust í 4. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var í Stykkishólmi og var leikurinn fjörugur svo ekki sé meira sagt. Snæfellingar komu boltanum þrisvar sinnum í netið í fyrri hálfleik, en öll voru mörkin dæmd af. Gestirnir úr KB skoruðu á 22. mínútu með glæsilegu…Lesa meira