Fréttir

true

Borgarbyggð styður kæru Akurnesinga

Byggðarráð Borgarbyggðar fjallaði á fundi sínum í gærmorgun um úrskurð Skipulagsstofnunar þess efnis að breikkun vegar um Kjalarnes skuli fara í mat á umhverfisáhrifum. Eftirfarandi var bókað: „Byggðaráð Borgarbyggðar lýsir yfir vonbrigðum sínum með þá niðurstöðu Skipulagsstofnunar um að vegaframkvæmdir á Kjalarnesi skulu háðar mati á umhverfisáhrifum. Ekki er um nýtt vegstæði að ræða, heldur…Lesa meira

true

Ætla að skerpa á undirbúningi fyrir næstu Lopapeysu

Bæjarráð Akranes fór yfir framkvæmd Írskra daga á fundi sínum í gær. Ísólfur Haraldsson, forsvarsmaður Vina hallarinnar sem heldur Lopapeysuballið á laugardagskvöldi hátíðarinnar, mætti á fundinn. „Bæjarráð vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í að skipuleggja og taka þátt í að gera upplifun íbúa og gesta á Írskum dögum á Akranesi eins vel heppnaða…Lesa meira

true

Atvinnutækifæri hjá G.Run í Grundarfirði

Þrenns konar störf eru í boði hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Guðmundi Runólfssyni hf. í Grundarfirði. Samkvæmt auglýsingu í Skessuhorni vikunnar vantar starfsmann hjá fyrirtækinu í starf verk- og gæðastjóra og netagerðamann. Þá er einnig auglýst eftir fólki til starfa í nýrri hátæknifiskvinnslu fyrirtækisins í Grundarfirði. Sjá nánar í auglýsingunni í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira

true

Úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Heilbrigðisráðuneytið hefur úthlutað rúmum 400 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra til uppbyggingar og endurbóta á hjúkrunarheimilum á landinu. Af einstökum framlögum rennur stærsta fjárhæðin til viðbyggingar eldhúss og búnaðar á Hrafnistu, en þar stendur til að framleiða mat fyrir íbúa allra Hrafnistuheimilanna. Sömuleiðis fara framlög til endurnýjunar búnaðar í eldhúsum Eirar og hjá Öldrunarheimilum Akureyrar,…Lesa meira

true

Samið um kaup og rekstur sjúkrabíla

Þegar í stað verða keyptir 25 nýir bílar Samkomulag hefur náðst milli Sjúkratrygginga Íslands og Rauða krossins um framlengingu á samningi um kaup og rekstur sjúkrabifreiða. Þegar verður ráðist í kaup 25 nýrra sjúkrabíla samkvæmt útboði sem nú stendur yfir. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra staðfesti samkomulagið við undirritun þess í dag. Rauði krossinn mun áfram annast…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður kærir ákvörðun Skipulagsstofnunar

Bæjarráð Akraness hefur falið Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra að kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar sem ákvað 12. júní síðastliðinn að breikkun Vesturlandsvegar í 2+1 veg skuli fara í mat á umhverfisáhrifum. Frestur til að kæra ákvörðunina rennur út næstkomandi mánudag. „Framkvæmdin hefur afar jákvæð samfélagsleg áhrif vegna bætts umferðaröryggis og er ætlað að taka á lífshættulegum aðstæðum…Lesa meira

true

Tap hjá Skallagrími

Skallagrímur tapaði naumt gegn Reyni Sandgerði, með tveimur mörkum gegn þremur, í elleftu umferð þriðju deildar í gær. Spilað var á Skallagrímsvelli í Borgarnesi í blankalogni og hlýju veðri. Reynismenn byrjuðu mun betur og voru áberandi meira með boltann. Borgnesingar voru þó duglegir að mæta gestunum en alltaf náði Reynir boltanum til baka. Fyrsta mark…Lesa meira

true

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni

Maður var í Héraðsdómi Vesturlands í lok júní dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar auk greiðslu miskabóta fyrir kynferðisbrot gegn barni, sem og brot gegn áfengis- og barnaverndarlögum. Maðurinn var ákærður fyrir nauðgun, kynferðisbrot gegn barni, brot gegn áfengis- og barnaverndarlögum með því að hafa afhent 13 ára gamalli stúlku áfengi og fíkniefni og haft við…Lesa meira

true

„Vil meina að við séum besta dómarafélag á landinu“

KDA útvegar KSÍ flesta dómara af öllum félögum Þeir Halldór Breiðfjörð og Daniel Victor Herwigsson eru félagar í Knattspyrnudómarafélagi Akraness, KDA, og eiga það sameiginlegt öðrum félögum í KDA að hafa mikla ástríðu fyrir dómgæslu á fótboltaleikjum. Halldór Breiðfjörð var dómari í mörg ár fyrir Knattspyrnusamband Íslands en lagði síðan dómaratakkaskóna á hilluna á síðasta…Lesa meira

true

Tilraunamöstur komin upp á Hróðnýjarstöðum

Tvö tilraunamöstur hafa verið reist í landi Hróðnýjarstaða í Dölum en fyrirtækið Storm Orka áformar að reisa þar vindmyllugarð til raforkuframleiðslu. Storm Orka eru í eigu bræðranna Magnsúsar B. og Sigurðar E. Jóhannessona sem einnig eru landeigendur að Hróðnýjarstöðum. Á vordögum kom starfshópur frá spænska fyrirtækinu Mesawind á svæðið til að reisa möstrin en fyrirtækið…Lesa meira