Fréttir

true

Færri fasteignaviðskipti

Í nýliðnum júnímánuði var 38 fasteignasamningum þinglýst á Vesturlandi. Þar af voru ellefu samningar um eignir í fjölbýli, 16 samningar um eignir í sérbýli og ellefu samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.063 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28 milljónir króna. Af þessum 38 samningum voru 15 samningar um eignir á Akranesi. Þar…Lesa meira

true

Núningur án stórátaka

Síðasta vika var erilsöm hjá Lögreglunni á Vesturlandi en gekk þó áfallalaust fyrir sig, að sögn Jóns S Ólasonar yfirlögregluþjóns. Mest var að gera í tengslum við bæjarhátíðina Írska daga á Akranesi en engin alvarleg mál komu þó inn á borð lögreglu um eða eftir helgina. Að sögn Jóns var margt fólk sem mætti á…Lesa meira

true

Sést hefur til steypireyða á Flákanum

Töluvert margir hvalir hafa verið á ferðinni á Flákanum svokallaða á Breiðafirði undanfarið, bæði hnúfubakar en einnig steypireyðar. Meðfylgjand mynd tók Alfons Finnsson, fréttaritari Skessuhorns og sjómaður, laust eftir kl. 14:00 á miðvikudag. Hann var þá á skaki í fylgd hnúfubaka á Flákakantinum, um 13 sjómílur norður af Ólafsvík. „Þeir eru búnir að vera í…Lesa meira

true

Fjölmenni var á Írskum dögum

Fjölmenni kom saman um liðna helgi þegar Írskir dagar voru haldni með pompi og prakt á Akranesi. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstóri setti hátíðina á fimmtudag í sannkölluðu skýfalli fyrir utan Stjórnsýsluhúsið við Stillholt. Leikskólabörn og leikskólastarfsfólk ásamt öðrum gestum voru samankomnir í pollagöllum og með regnhlífar uppspenntar til að hlusta á bæjarstjórann auk þess sem…Lesa meira

true

Tori hætt hjá ÍA

Bandaríski markvörðurinn Tori Ornela og Knattspyrnufélag ÍA hafa komist að samkomulagi um starfslok hennar hjá félaginu. Frá þessu er greint á vef KFÍA. Tori hefur verið einn af lykilmönnum ÍA bæði í ár og í fyrra. Hún hefur leikið fimm leiki með ÍA í sumar og lék alla deildarleiki liðsins í Inkasso deildinni á síðasta…Lesa meira

true

Kennir fólki á öllum aldri lýðheilsu

Anna Bjarnadóttir íþróttafræðingur og íþróttakennari á Akranesi situr sjaldan auðum höndum. Hún stundar reglulegar göngur hingað og þangað um náttúru Íslands, sér um hreyfingu eldri borgara eða leikfimi, og reynir að fara sem mest um á hjóli eða gangandi innan bæjar á Akranesi. Það hefur alltaf blundað íþróttamaður í Önnu sem var mikið í frjálsum…Lesa meira

true

Varað við erlendum verktökum sem flakka um og bjóða malbikun heimreiða

Varað er við flokki erlendra verktaka sem ekur þessa dagana um sveitir í Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit og býður malbikun á heimreiðum og afleggjurum. Forsendur fyrir vinnu þeirra og viðskiptum eru í besta falli vafasamar. Á mánudaginn í þessari viku kom fulltrúi þeirra heim á bæ í Lækjarkoti, lögbýli skammt ofan við Borgarnes. Hjónin Trausti Eiríksson…Lesa meira

true

Fjölmenn Ólafsvíkurvaka

Fjölmenni var á Ólafsvíkurvökunni sem fram fór um helgina í blíðskaparveðri og var margt i boði fyrir alla aldurshópa. Hátíðin hófst á föstudaginn með Crossfit fyrir börnin og Hrafn Jökulsson stóð fyrir skákkennslu. Dorgveiðikeppni var einnig í boði og þar á eftir var boðið upp á grillaðar pylsur. Fjörinu var síðan haldið áfram í Sjómannagarðinum…Lesa meira

true

„Fyrst og fremst er náttúran á Snæfellsnesi undurfögur“

„Ég hafði einu sinni keyrt hringinn út frá Stykkishólmi og var ekkert að stoppa og skoða landslagið þá. Ég meira að segja ók held ég Fróðarheiði og svo til baka,“ segir Þórhildur Sif Loftsdóttir um hversu vel hún þekkti Snæfellsnes áður en hún kom til starfa fyrir Svæðisgarðinn Snæfellsnes núna í sumar. Þórhildur er alin…Lesa meira

true

Frestur rennur út eftir helgi til að kæra niðurstöðu um umhverfismat

Skipulagsstofnun gaf 11. júní síðastliðinn út þann úrskurð að breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli sæta mati á umhverfisáhrifum. Það mun þýða verulega seinkun þess að hefja megi framkvæmdir. Samkvæmt lögum um umhverfisáhrif má kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og rennur sá frestur út mánudaginn 15. júlí næstkomandi. Gert er ráð fyrir að gera…Lesa meira