Fréttir

true

Afturköllun á frétt! Hægt verður að sækja um bætur vegna tjóns á korni

Matvælastofnun hefur afturkallað tilkynningu sem send var út í morgun og meðfylgjandi frétt byggði á. Eftir að frétt hefur verið svo lengi í loftinu, sem þessi, er hún ekki tekin út, heldur er hér áfram. Meðfylgandi tilkynning var að berast frá MAST: „Birting fréttar um greiðslur vegna ágangs gæsa og álfta var ótímabær þar sem…Lesa meira

true

Nýr sendir á Purkhólum mun gjörbreyta fjarskiptum

Nokkuð er síðan lokið var við að setja upp nýjan Tetra fjarskiptasendi á Purkhólum í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Verkið er í umsjón Neyðarlínunnar og á að koma í veg fyrir að svokölluð dauð svæði verði í fjarskiptum á utanverðu Snæfellsnesi, meðal annars á fjölförnum ferðamannastöðum á borð við Djúpalónssand. Þá var nauðsynlegt að setja sendinn upp…Lesa meira

true

Fundu aldrei taktinn

Ólafsvíkingar máttu sætta sig við 2-0 tap á útivelli gegn Leikni R., en liðin mættust í fimmtu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Heimamenn voru betri í fyrri hálfleik en leikmenn Víkings Ó. náðu sér ekki á strik. Leiknir fékk fleiri færi framan af leiknum og vildu meina að löglegt mark hefði verið…Lesa meira

true

Endurkomusigur í bikarnum

Skagakonur eru komnar áfram í Mjólkurbikar kvenna eftir frábæran endurkomusigur á Þrótti R. á Akranesvelli á föstudagskvöld, 3-2. Gestirnir úr Reykjavík byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir strax á 2. mínútu. Lauren Wade fékk sendingu inn fyrir vörn Skagakvenna og kláraði vel framhjá Tori Ornela í markinu. Þróttur réði gangi mála á vellinum…Lesa meira

true

Óvænt tap í Eyjum

ÍA tapaði óvænt gegn botnliði ÍBV í Pepsi Max deild karla í gær, 3-2. Leikið var á Hásteinsvelli í Vestmanneyjum. Skagamenn sóttu stíft í upphafi leiks og komust yfir strax á 6. mínútu. Gilson Correia var að dóla með boltann sem aftasti maður. Tryggvi Hrafn Haraldsson nýtti sér það, hirti boltann af honum og skoraði.…Lesa meira

true

Næturlokanir í göngunum

Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir umferð þrjár nætur í þessari viku, þ.e. aðfararnætur 5., 6. og 7. júní frá miðnætti og til klukkan 07:00 að morgni vegna þrifa og viðhaldsvinnu. Umferð er vísað um Hvalfjörð á meðan. Athygli er vakin á því að í síðustu viku voru sendar út rangar upplýsingar um lokunarnætur. Göngin verða lokuð…Lesa meira

true

Ljósleiðari kominn í Kjósina

Kjósverjar, jafnt íbúar sem sumarhúsaeigendur, fögnuðu í bliðviðrinu á uppstigningardag að vera komnir með ljósleiðara í sveitina. Við það tækifæri kynntu fjarskiptafyrirtækin Hringdu, Síminn og Vodafone íbúum tilboð í þjónustu. „Mikill kraftur er í Kjósinni. Einungis eru þrjú ár síðan tekin var fyrsta skóflustungan að stöðvarhúsi nýrrar hitaveitu. Samhliða lagningu hitaveitunnar voru sett ídráttarrör fyrir…Lesa meira

true

Gísli Hallbjörnsson heiðraður á sjómannadaginn

Í morgun var sjómannadagsmessa í Akraneskirkju þar sem séra Þráinn Haraldsson þjónaði. Gísli Hallbjörnsson vélstjóri var sæmdur heiðursmerki fyrir störf sín á sjó. Að messu lokinni var lagður blómsveigur að styttu sjómannsins á Akratorgi.  Lesa meira

true

Margrét Katrín tekin við sem kaupfélagsstjóri

Margrét Katrín Guðnadóttir, verslunarstjóri og dýralæknir, tók á föstudaginn við sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgfirðinga. „Fráfarandi kaupfélagsstjóra, Guðsteini Einarssyni, þakkar kaupfélagið fyrir langt og gæfuríkt starf undanfarin 21 ár í þágu félagsins. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir samstarfið,“ segir í tilkynningu frá KB.Lesa meira