Fréttir

true

Hvalfjarðargöng lokuð aðfararnætur 5., 6.  og 7. júní.

„Unnið verður við þvott og þrif ásamt annarri viðhaldsvinnu í Hvalfjarðargöngum aðfaranætur 5., 6. og 7. júní. Göngin verða lokuð á meðan á þessari vinnu stendur frá miðnætti til kl. 07:00 og umferð verður vísað um veg 47 Hvalfjarðarveg,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Sérmerktir dósasöfnunargámar Björgunarfélags Akraness

Í fjölda ára hefur dósasöfnun verið ein af fjáröflunarleiðum Björgunarfélags Akraness. Á fyrstu árum Hjálparsveitar skáta á Akranesi var gengið skipulega í hús, dósum og flöskum með skilagjaldi safnað og þær flokkaðar. Á seinni árum hefur þessi söfnun færst yfir í að íbúar koma með dósir til félagsins. Dósirnar eru ýmist settar í gám sem…Lesa meira

true

Gáfu hjartastuðtæki á golfvöllinn

Kvenfélagið Gleym mér ei og Lionsklúbbur Grundarfjarðar færðu Golfklúbbnum Vestarr hjartastuðtæki að gjöf á golfmóti G.Run sem fram fór á föstudaginn. Tækið verður staðsett á Bárarvelli, en þar sem völlurinn er nokkra kílómetra frá þéttbýlinu er mikið öryggi fólgið í að hafa slíkt tæki staðsett á vellinum.Lesa meira

true

Tveir nýir panna-vellir á Akranesi

Tveir nýir panna-vellir hafa verið teknir í notkun á Akranesi. Um er að ræða litla átthyrnda fótboltavelli þar sem hægt er að spila hraða og skemmtilega fótboltaleiki, einn á móti einum. Akraneskauptaður keypti fjóra slíka velli í samstarfi við Íþróttabandalag Akraness og Knattspyrnufélag ÍA. Fyrstu tveir voru teknir í notkun síðastliðinn miðvikudag, annar við Brekkubæjarskóla…Lesa meira

true

Íbúafjöldi á Vesturlandi stendur í stað

Á sex mánaða tímabili, frá 1. desember til 1. júní, fjölgaði íbúum á Vesturlandi um þrjá, eru nú 16.550 talsins. Hlutfallsleg mest fjölgun íbúa varð á Suðurlandi og Suðurnesjum en í engum landshluta fækkaði íbúum. Landsmenn eru nú 359.634 talsins og fjölgaði um 0,8% á síðustu sex mánuðum. Töluverð breyting er innbyrðis milli sveitarfélaga á…Lesa meira

true

Þrír íbúafundir á dagskrá í Borgarbyggð

Í kvöld klukkan 20 verður fyrsti íbúafundur af þremur sem sveitarfélagið Borgarbyggð boðar til. Verður hann haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Annað kvöld klukkan 20 verður fundur í Logalandi og á miðvikudagskvöld á sama tíma hefst fundur í Lindartungu. Fundirnir eru boðaðir með yfirskriftinni Borgarbyggð – sveitarfélag í sókn. Til umræðu er fundarefnið; “Í hvað…Lesa meira

true

Engey seld og Helga María tekin að nýju í notkun

HB Grandi hefur selt einn af þremur nýlegum ferskfisktogurum sínum, Engey RE-1, til Murmansk Trawl Fleet í Rússlandi. Verður skipið afhent nýjum eigendum á næstu dögum. Í tengslum við þessa sölu verður ísfisktogarinn Helga María AK-16, tekin aftur í rekstur, en henni var lagt í febrúar síðastliðnum. Skipverjum í áhöfn Engeyjar verður boðið pláss á…Lesa meira

true

Kaffihúsastemning í Brákarhlíð á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 4. júní, verður kaffihúsastemning á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Opnað verður kaffihús fyrir framan Tjörn milli klukkan 14:00 og 16:00 og eru allir boðnir velkomnir. Ekki nóg með það, heldur er boðið upp á frítt kaffi og með því á opnunardaginn. Á Facebook-síðu Brákarhlíðar segir að um sé að ræða…Lesa meira

true

Nýr taugasjúkdómur greinist í hrossum á Norðvesturlandi

Áunninn fjöltaugakvilli í hrossum (acquired equine polyneuropathy, AEP) sem þekktur er í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, hefur nú greinst í fyrsta sinn hér á landi. Sjúkdómurinn uppgötvaðist í Skandinavíu fyrir aldarfjórðungi en þrátt fyrir víðtækar rannsóknir er orsökin ekki þekkt. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að ekki er um smitsjúkdóm að ræða og ekkert…Lesa meira

true

Samþykkja nýtt skipulag vegna hótelbyggingar

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum í liðinni viku breytingu á deiliskipulagi að Kirkjubraut 39 og hefur tillagan verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Engar athugasemdir bárust í skipulagsferlinu. Breytingin felst í að byggt verður hótel á lóð sem áður var skilgreind sem stofnanareitur. Núverandi hús á lóðinni verður rifið. Nýtingarhlutfall lóðar er í skipulaginu aukið…Lesa meira