
Gul viðvörun er fyrir Breiðafjörð á morgun miðvikudag, milli klukkan 11 og 22. Spáð er sunnan hvassviðri eða stormi 15-23 m/s og hvössum vindstrengjum við fjöll, 25-30 m/s, sérstaklega á Snæfellsnesi. Þá gæti orðið varasamt fyrir ökumenn að vera á ferð á farartækjum sem taka á sig mikinn vind.Lesa meira








