Fréttir

true

Kvöddu mótið með stæl

Skallagrímsmenn unnu stórsigur á KM, 5-0, þegar liðin mættust í 4. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Skallagrímsvelli og var þetta síðasti leikur Borgnesinga í deildinni þetta sumarið. Á miðvikudaginn töpuðu Borgnesingar gegn KFB og þar með varð veik von Skallagríms um sæti í úrslitakeppni 4. deildar að engu. En þeir mættu…Lesa meira

true

Tap suður með sjó

Káramenn máttu játa sig sigraða gegn Njarðvíkingum, 2-0, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu. Leikið var suður með sjó á sunnudag. Njarðvíkingar fengu óskabyrjun, þegar Kenneth Hogg kom heimamönnum yfir strax á 5. mínútu leiksins. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og staðan því 1-0 í hléinu. Það var síðan…Lesa meira

true

Slasaðist alvarlega í bifhjólaslysi

Maður á þrítugsaldri slasaðist alvarlega í mótorhjólaslysi á Útnesvegi við Saxhól í gær. Mbl.is greinir frá. Talið er að hjólið hafi lent í lausamöl með þeim afleiðingum að ökumaðurinn féll af hjólinu og hafnaði utan vegar. Kallað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem sótti manninn á slysstað og flutti á Landspítalann í Fossvogi. Maðurinn var…Lesa meira

true

Grindhvalir strönduðu í Álftafirði

Í gær barst Náttúrustofu Vesturlands tilkynning um grindhvali sem höfðu strandað í Álftafirði á Snæfellsnesi. Þegar starfsfólk kom á vettvang voru níu hvalir fastir en tíundi hvalurinn synti laus fyrir utan. „Það voru átta dauðir þegar við komum og einn lifandi sem við náðum að koma út aftur,“ segir Róbert Arnar Stefánsson, líffræðingur og forstöðumaður…Lesa meira

true

Biðu lægri hlut í fjörugum leik

Skagamenn biðu lægri hlut gegn HK, 3-2, þegar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Leikið var í Kópavogi í gær. Leikurinn byrjaði fjörlega, bæði lið sýndu prýðilega sóknartilburði framan af fyrri hálfleik og ísinn var svo brotinn á 23. mínútu. Jón Arnar Barðdal gerði þá vel í vítateig ÍA, sendi boltann út…Lesa meira

true

Tilraunaveiðar í Andakílsá lofa góðu um endurheimt lífríkis árinnar

Síðastliðinn föstudag höfðu 610 laxar veiðst í Andakílsá í sumar. Það gera tíu laxar á stangardag sem líklega er langbesta veiðin per stöng á öllu landinu. Til samanburðar eru innan við tveir laxar að meðaltali á stangardag í Haffjarðará, sem þó er fengsælasta á Vesturlands það sem af er þessu sumri. Þessi árangur í Andakílsá…Lesa meira

true

Óbreyttar reglur til 6. október um skimanir á landamærum

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja án breytinga gildandi reglur um skimanir á landamærum. Framlengingin gildir til 6. október nk. Í því felst m.a. að þeir sem koma til landsins skulu fara í tvær skimanir; við komu og aftur fimm dögum síðar og vera í sóttkví á milli þeirra. Í…Lesa meira

true

Tryggja fjármögnun nýs fjarskiptasæstrengs

Á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn föstudag var samþykkt tillaga samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra þess efnis að tryggja fjármögnun nýs fjarskiptasæstrengs milli Íslands og Írlands (IRIS). Stefnt er að því að taka nýja strenginn í gagnið fyrir lok árs 2022 og árið 2023 hið síðasta. Farice áætlar stofnkostnað við strenginn um 50 milljónir evra, eða…Lesa meira

true

Þrjú verkefni frá öndvegisstyrki SSV

Úthlutunarnefnd svokallaðra öndvegisstyrkja á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi hélt fund í liðinni viku. Til ráðstöfunar í sjóðnum voru á þessu ári 20 milljónir króna, en að uppistöðu er það fé sem safnast í sjóð vegna menningarstyrkja í landshlutanum sem ekki er vitjað eða falla niður. Eftir fyrstu yfirferð umsókna fyrr í sumar var fjórum…Lesa meira

true

Milljarður króna greiddur í lokunarstyrki

Um eitt þúsund íslensk fyrirtæki, sem skylt var að loka eða stöðva starfsemi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, hafa fengið greiddan lokunarstyrk fyrir alls um einn milljarð króna. Þetta kemur fram í uppfærðum upplýsingum fjármálaráðuneytisins yfir stöðu aðgerða stjórnvalda vegna heimfaraldursins. „Stjórnvöld hafa frá því í mars gripið til ýmissa aðgerða í því skyni að verja grunnstoðir…Lesa meira