Fréttir

true

Búast má umferðartöfum vegna fjárrekstrar síðdegis

Nú stendur yfir smölun á Holtavörðuheiði. Björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði vekur athygli á því að síðdegis í dag, á milli klukkan 17 og 20 megi búast við umferðartöfum við Fornahvamm í Norðurárdal, þegar smalar reka fjársafnið yfir þjóðveg 1. „Sýnum tillitsemi svo allt gangi vel,“ segja Heiðarsmenn. Meðfylgjandi mynd er frá sama fjárrekstri síðasta haust.Lesa meira

true

Guðlaug við Langasand opnuð að nýju í dag

Frá því er greint á vef Akraneskaupstaðar að frá og með deginum í dag varður Guðlaug við Langasand opnuð að nýju. Lauginni var lokað síðsumars vegna sóttvarna. Guðlaug verður opin virka daga nú í september frá klukkan 16-20 en á laugardögum og sunnudögum frá klukkan 10-18.Lesa meira

true

Ístak breikkar fyrsta áfanga Vesturlandsvegar á Kjalarnesi

Í gær var skrifað undir verksamning milli Vegagerðarinnar og Ístaks hf. um lagningu fyrsta áfanga í breikkun Hringvegar um Kjalarnes, milli Kollafjarðar og Hvalfjarðar. Í þessum fyrsta áfanga verksins verður 4,1 km vegarins breikkaður frá Varmhólum að Vallá. Núverandi vegur verður 2+1 vegur með aðskildum akbrautum. Í verkinu felst gerð hringtorgs við Móa, tvenn undirgöng…Lesa meira

true

Andlát – Séra Brynjólfur Gíslason

Séra Brynjólfur Gíslason, fyrrverandi sóknarprestur í Stafholti í Borgarfirði, lést mánudaginn 7. september síðastliðinn, 82 ára að aldri. Hann var fæddur á annan jóladag árið 1938 á Kirkjubæjarklaustri á Síðu, sonur hjónanna Gísla Brynjólfssonar, prests og prófasts þar og síðar fulltrúa í landbúnaðarráðuneytinu, og Ástu Þóru Valdimarsdóttur húsfreyju. Brynjólfur lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla…Lesa meira

true

Gríðarlegur munur á matvöruverði á landsbyggðinni

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði á þriðjudaginn matvöruverð í 15 minni matvöruverslunum á landsbyggðinni. Í ljós kom að í um helmingi tilfella var yfir 80% munur á hæsta og lægsta verði á þeim vörum sem verð var kannað á. Á 56 vörutegundum af þeim 103 sem kannaðar voru, var 60-140% munur á hæsta og lægsta verði og…Lesa meira

true

Myndband – Grindhvalir hættulega nálægt landi

Starfsfólk hvalaskoðunarfyrirtækisins Láka Tours á Snæfellsnesi fékk ábendingu um grindhvali í grennd við Stykkishólm frá ferðalangi í gær. Tveir leiðsögumenn á vegum fyrirtækisins könnuðu málið, þar sem myndir ferðalangsins sýndu grindhvalina hættulega nálægt landi. Komu þeir að grindhvalavöðunni í Álftafirði á fjöru og voru hvalirnir mjög nálægt landi, en sýndu engin merki um að eitthvað…Lesa meira

true

Vilja frumvarp um netverslun með áfengi aftur á dagskrá

Samtök íslenskra handvergsbrugghúsa skora á dómsmálaráðherra að leggja frumvarp sitt um netverslun með áfengi fram á nýjan leik og að tryggja íslenskum handverksbrugghúsum rétt til að selja gestum sínum vörur á staðnum. Fulltrúar samtakanna afhentu Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur áskorunina síðastliðinn þriðjudag. Í tilkynningu frá samtökunum segir að frumvarp um íslenska netverslun með áfengi og heimild…Lesa meira

true

Öryggisnúmer á sumarhúsum geta bjargað lífum

Eigendum sumarhúsa hér á landi býðst að sækja um svokölluð öryggisnúmer sem fest eru með plötum á útvegg húsa og sömuleiðis innandyra. Þetta er þó valkvæð þjónusta sem hver og einn ákveður hvort hann kaupir. Sótt er um öryggisnúmer til Landssambands sumarhúsaeigenda sem úthlutar þeim. Við úthlutun neyðarnúmers er húsið samhliða skráð í gagnagrunn viðbragðsaðila…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit fær jafnlaunavottun

Hvalfjarðarsveit hefur hlotið heimild Jafnréttisstofu til nota jafnlaunamerkið. Er það staðfesting á því að innan stofnana sveitarfélagsins séu laun starfsfólks sem vinnur sömu störf eða jafn verðmæt störf sambærileg alveg óháð kyni. „Mikilvægum áfanga er náð og þakkar sveitarstjórn öllum þeim sem að vinnunni komu og óskar starfsfólki sveitarfélagsins til hamingju með niðurstöðuna,“ segir í…Lesa meira

true

Veik von Skallagríms orðin að engu

Ljóst er að Skallagrímur kemst ekki í úrslitakeppni 4. deildar karla í knattspyrnu, eftir tap á útivelli gegn KFB í gær, 5-3. Fyrir leikinn áttu Borgnesingar veika von um að komast í úrslitakeppnina, en hefðu þurft að sigra síðustu tvo leiki tímabilsins, helst með talsverðum mun, auk þess að treysta á hagstæð úrslit annarra leikja.…Lesa meira