
Gísli Gíslason lét á miðvikudag af störfum sem hafnarstjóri Faxaflóahafna, en hann hefur gegnt starfinu frá því í nóvember 2005. Hann sagði starfi sínu lausu í febrúar síðastliðnum og var Magnús Þór Ásmundsson valinn úr hópi 26 umsækjenda í kjölfar auglýsingar. Magnús tók við lyklavöldum á skrifstofu hafnarstjóra á miðvikudaginn. Hann er rafmagnsverkfræðingur að mennt…Lesa meira








