Fréttir

true

Starfsemi Efnagreiningar hefst á Akranesi í ágúst

Áformað er að opna rannsóknarstofu Efnagreiningar ehf. á Akranesi laugardaginn 15. ágúst næstkomandi. Hjónin Elísabet Axelsdóttir og Arngrímur Thorlacius, eigendur fyrirtækisins, tóku fyrstu skóflustunguna að nýju húsnæði fyrirtækisins í Flóahverfi í apríl og undanfarið hafa þau unnið að flutningi þess frá Hvanneyri, þar sem það hefur verið starfrækt í gömlu nautastöðinni frá 2015. Skessuhorn ræddi…Lesa meira

true

Ekkert grín að reka svín

Tilkynnt var um laus svín á Vesturlandsvegi fyrir neðan Hrunsnef í Norðrárdal rétt fyrir kl. 14 á sunnudag. Tíu manns voru þar í björgunarleiðangri að reyna að koma svínunum á sinn stað að nýju. Umferðartafir urðu á meðan, en reksturinn gekk að sögn lögreglu býsna greiðlega.Lesa meira

true

Hægakstur getur sömuleiðis verið til vandræða

Hraðakstursmál eru ekki einu málin sem lúta að aksturshraða sem koma inn á borð lögreglu. Síðastliðinn föstudag var haft samband við Lögregluna á Vesturlandi og tilkynnnt um hvítan sendibíl sem væri ekið of hægt, eða á um 50 km hraða á klst. úti á þjóðveginum þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Olli hægaksturinn miklum umferðartöfum,…Lesa meira

true

Sjö af 24 einstaklingum með Covid-19 eru á Akranesi

Nú eru 24 staðfest smit af Covid-19 í landinu og þar af eru sjö á Akranesi. Þeir tengjast allir sama hópi austur-evrópsks starfsmannahóps. Tveir þeirra komu nýlega til landsins en reyndust neikvæðir við skimun á landamærum, en fóru ekki í síðari skimun eins og reglur kveða á um. Fjöldi þeirra sem eru í sóttkví á…Lesa meira

true

Steinunn Rasmus er íbúi ársins

Íbúi ársins í Reykhólahreppi var útnefndur á hátíðinni Reykhóladögum, sem fram fór um liðna helgi. Íbúi ársins að þessu sinni er Steinunn Ólafía Rasmus kennari. Steinunn hefur kennt við Reykhólaskóla í 35 ár og átt þar afar farsælan feril, en hún hefur nú látið af störfum. „Það er óhætt að segja að hún er ákaflega…Lesa meira

true

Búið að ákveða réttardaga í Borgarbyggð

Búið er að birta lista yfir réttir í Borgarbyggð í haust. Þær verða í tímaröð: Nesmelsrétt 5. september, Kaldárbakkarétt 6. sept., Oddsstaðarétt 9. sept., Brekkurétt 13. sept., Fljótstungurétt 12.-13. sept., Hítardalsrétt, Svignaskarðsrétt og Þverárrétt 14. sept., Grímsstaðarétt 15. sept., Rauðsgilsrétt 20. sept. og Mýrdalsrétt 22. sept. Þetta kemur fram í augýsingu frá Borgarbyggð og gerður…Lesa meira

true

Fjórðungs hækkun matvöruverðs eftir að Kjörbúð varð Krambúð

Á fundi byggðarráðs Dalabyggðar síðastliðinn fimmtudag var til umfjöllunar matvöruverð í einu matvöruversluninni í Búðardal. Eftir að verslun Samkaupa var breytt úr Kjörbúð og í Krambúð í maí síðastliðnum hefur verðsamanburður sýnt að vörukarfa með 52 vöruliðum hefur hækkað um 25%. Því má bæta við að í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ birti í lok júní…Lesa meira

true

Hópsmit á Akranesi

Hópsmit Covid-19 veirunnar hefur komið upp á Akranesi. Þetta staðfestir Ásmundur Kr. Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi, í samtali við Skessuhorn. Lögreglunni á Vesturlandi barst tilkynning um hópsmitið í dag. Ekki liggur fyrir hversu margir eru smitaðir, en smitrakning stendur yfir. Lögregla hvetur fólk til að fara varlega á Akranesi sem og annars staðar…Lesa meira

true

Grassteinn lagður í tæplega þúsund fermetra bílastæði

Sífellt er unnið að umhverfisbótum á Breiðinni á Akranesi. Í morgun var byrjað að leggja 940 fermetra af svokölluðum grasstein í nýtt bílastæði fyrir gesti Akranesvita. Áætlað er að verkinu verði lokið fyrir helgi. Í holurnar í steininum verður settur sandur og mold þar sem gróður mun vaxa í tímans rás. Það er fyrirtækið Íslandsgámar…Lesa meira

true

Blað á miðvikudag en síðan frívika

Skessuhorn kemur út næstkomandi miðvikudag, 29. júlí. Eftir útgáfu þess fer starfsfólk blaðsins í venjubundið viku sumarleyfi og kemur því EKKI út blað 5. ágúst.  Næsta blað eftir frí verður gefið út 12. ágúst. Þeir sem þurfa að koma á framfæri efni og/eða auglýsingum í næsta blað er bent á að hafa samband á tölvupósti …Lesa meira