Fréttir

true

Tíunda Flemming púttmótið

Flemming-pútt, opið púttmót, fór fram föstudaginn 24. júlí á Hvammstanga. Þátttaka var ágæt, völlurinn sæmilegur en veðrið hefði mátt vera betra. Að venju voru leiknar 2×18 holur, alls 36. Er þetta í tíunda sinn sem mótið er haldið, en fyrst mótið var haldið að loknu Landsmóti UMFÍ 50 +, sem haldið var í fyrsta sinn…Lesa meira

true

Segja þjóðina vera stjórnarskrárgjafann en ekki stjórnmálaflokka

Stjórnarskrárfélagið hefur birt umsögn um frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og jafnframt sent frá sér yfirlýsingu um málið. „Stjórnarskrárfélagið hefur í fyrri umsögnum um tillögur að stjórnarskrárbreytingum, sem komið hafa frá formönnum stjórnmálaflokkanna á Alþingi undanfarið, hvatt til þess að lýðræðisleg vinnubrögð yrðu tekin upp og unnið að lögfestingu…Lesa meira

true

Munu vakta tjaldsvæðin um helgina

Lögregla mun fara á helstu tjaldsvæði landshlutans um Verslunarmannahelgina og hafa eftirlit með því að þar sé farið eftir settum reglum, sérstaklega með tilliti til sóttvarna. Að sögn lögreglu verður þar gengið úr skugga um að fjöldi gesta sé undir 500 á hverjum stað og að hreinlætisaðstaða og annað sé í lagi. Verður þetta eftirlit…Lesa meira

true

Verið að leggja lokahönd á nýja grunnsýningu

Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á nýja grunnsýningu Byggðasafnsins í Görðum á Akranesi. Samhliða gerð sýningarinnar hefur húsið verið tekið til gagngerra endurbóta að innan sem utan, aðgengi bætt með tveimur hjólastólalyftum og farið í gegnum nær allan safnkostinn og hann skrásettur samkvæmt ýtrustu kröfum samtímans. Færri munir eru til sýnis á safninu…Lesa meira

true

„Hér er slegið alla daga, allt sumarið“

Klukkan er hálf níu að föstudagsmorgni 24. júlí. Síðla sumars er sól hátt á lofti og nánast heiðskír himinn en golan er köld. Þykkt skýjateppi liggur yfir Akrafjalli. Blaðamaður gengur inn um hlið kirkjugarðsins í Görðum á Akranesi, við hlið byggðasafnsins og hins lúna kútters Sigurfara. Í garðinn hafa fjölmargir verið lagðir til hinstu hvílu…Lesa meira

true

Ekkert Skessuhorn gefið út í næstu viku

Frá og með hádegi í dag fer starfsfólk Skessuhorns í viku sumarleyfi. Skrifstofan verður því lokuð til og með þriðjudagsins 4. ágúst. Fyrsta blað eftir sumarleyfi kemur út miðvikudaginn 12. ágúst.Lesa meira

true

Væta í kortunum um versló

Í dag og á morgun má búast við hægri breytilegri átt og stöku skúrum. Síðan fer að rigna og hvessa aðfararnótt föstudags. Á föstudagsmorgun gæti vindhraði verið kominn um og yfir 20 m/s með suðurströnd landsins og hviður allt að 25 m/s undir Eyjafjöllum og 35 m/s í Öræfum. Þá mega ferðalangar gera ráð fyrir…Lesa meira

true

Garðagrund lokuð vegna viðhalds

Garðagrund á Akranesi verður lokað milli gatnamóta Þormóðsflatar og austari botnlanga Bjarkargrundar næsta mánuðinn, meðan unnið verður að götuviðhaldi. Áætlað er að gatan verði opnuð að nýju föstudaginn 21. ágúst. Á meðan framkvæmdum stendur verður aðkoma að Jörundarholti og Grundahverfi um Innnesveg og Leynisbraut. Víkurbraut verður botnlangi en hægt að komast þaðan inn á Espigrund.…Lesa meira

true

Fyrsti sjúkrabíllinn af nýrri gerð og merkingu kominn á Akranes

Sjúkraflutningar á Akranesi fengu nú í vikunni afhentan sjúkrabíl af Bens gerð úr 25 bíla útboði á vegum Sjúkrabílasjóðs RKÍ og Sjúkratrygginga. Þetta var jafnframt fyrsti sjúkrabíllinn sem er afhentur af þessum 25 bílum sem til landsins komu, en fjórir þeirra eru nú komnir til landsins. Að sögn Gísla Björnssonar, yfirmanns sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands,…Lesa meira

true

Tryggðu sér jafntefli í uppbótartíma

Skagakonur gerðu jafntefli við Fjölni, 1-1, þegar liðin mættust í 7. umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Grafarvogi í gærkvöldi. Sara Montoro kom Fjölni yfir strax á 10. mínútu leiksins og og fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik. Heimakonur leiddu raunar með einu marki allt þar til á lokamínútu leiksins.…Lesa meira