Fréttir

true

Miklar umferðartafir á Kjalarnesi

Miklar umferðartafir eru á Kjalarnesi vegna malbikunarframkvæmda og umferð er handstýrt. Geta liðið allt að 20 mínútur á milli þess að skipt er um akstursstefnu. „Vegfarendum er bent á hjáleið um Mosfellsheiði, Kjósarskarð og Hvalfjörð.  Athugið að hin akreinin verður malbikuð á morgun þriðjudaginn 7. júlí og má þá einnig reikna með töfum,“ segir í…Lesa meira

true

Tóku þátt í Aldursflokkameistaramóti í sundi

Um síðustu helgi fór Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi fram í Hafnarfirði. Mótið er bæði keppni á milli liða, þar sem átta fyrstu sundmenn í hverri grein og hverjum aldursflokki gefa stig, og einnig eru stigahæstu sundmenn hvers aldursflokks krýndir. Alls tóku 20 sundfélög þátt í mótinu og voru keppendur 285. Sundfélags Akraness mætti til leiks…Lesa meira

true

Nýr risi verður til á kjötvinnslumarkaði

Kjarnafæði og Norðlenska í eina sæng Eigendur kjötvinnslufyrirtækjanna Kjarnafæðis og Norðlenska hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála samruna félaganna. Um gríðarstóran samruna er að ræða á kjötmarkaði þar sem yfir 370 stöðugildi eru unnin á hverju ári hjá fyrirtækjunum. Kjarnafæði er í eigu bræðranna Eiðs og Hreins Gunnlaugssona, en Norðlenska er í eigu Búsældar,…Lesa meira

true

HMS úthlutar til byggingar 63 hagkvæmra leiguíbúða á Vesturlandi

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur úthlutað ríflega 3,6 milljörðum króna í stofnframlög til byggingar og kaupa á 600 hagkvæmum leiguíbúðum víðsvegar um landið, svokallaðra almennra íbúða. Leiguíbúðirnar verða í 15 sveitarfélögum og þar af verða 63 hér á Vesturlandi. Fjármunirnir eru hugsaðir til að styðja við framboð ódýrra leiguíbúða fyrir almenning og verða nýttir til byggingar á 438 íbúðum…Lesa meira

true

Vínlandssetur formlega opnað í Búðardal

Í gær fór fram formleg opnun á Vínlandssetrinu í Búðardal og var dagskráin liður í bæjarhátíðinni Heim í Búðardal. Húsfyllir var við vígsluna og vel það, því margir hlustuðu á opnunarathöfn í sólinni utandyra. Meðal gesta var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jacob Isbosethsen sendimaður Grænlands á Íslandi, Jeffrey Gunter sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi auk fulltrúa frá…Lesa meira

true

Hægt að spyrja spjallmennið Sæmi á heimasíðu Akraneskaupstaðar

Við stofnun Breiðar Þróunarfélags síðastliðinn fimmtudag, þar sem nýsköpun, hátækni og ýmsar rannsóknir munu m.a. fara fram, þótti við hæfi að vígja formlega nýsköpunarverkefni sem fyrirtækið Grammatek hefur unnið að síðastliðið ár í samstarfi við Akraneskaupstað. Spjallmennið Sæmi var formlega tekið í notkun á heimasíðu Akraneskaupstaðar en það gegnir því hlutverki að svara hinum ýmsum…Lesa meira

true

ÍA með stórsigur á Val á Hlíðarenda

ÍA heimsótti Val að Hlíðarenda í fyrsta leik fjórðu umferðar Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið. Valsmenn voru með sex stig fyrir leikinn eftir tvo sigra í röð en Skagamenn voru aftur á móti með þrjú eftir tvö töp í síðustu leikjum. Það voru þeir gulklæddu sem náðu forystunni snemma leiks en þar…Lesa meira

true

Bæta varaafl í fjarskiptastöðvum í kjölfar óveðurs í vetur

Neyðarlínan vinnur nú að því að gera úrbætur á 64 fjarskiptastöðvum víða um land með auknu varaafli og að fjölga færanlegum vararafstöðvum. Þar af eru 36 fastar vararafstöðvar en annars staðar eru rafgeymar eða tenglar fyrir færanlegar rafstöðvar. Tilgangurinn er að tryggja rekstraröryggi í fjarskiptum eftir mikil óveður sem gengu yfir landið í vetur. Endurbætur…Lesa meira

true

Ráðherra fylgir ráðgjöf Hafró

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár og fylgir hún að öllu ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er lögð til 9% hækkun á aflamarki ýsu, sem verður því 45.389 tonn fiskveiðiárið 2020/2021. Ástæða hækkunarinnar eru bættar nýliðunarhorfur. Jafnframt er lögð til 6% lækkun…Lesa meira

true

Hertar reglur um sóttkví Íslendinga taka gildi eftir viku

Sóttvarnalæknir lagði í síðustu viku til við heilbrigðisráðherra að breyta reglum um skimun á landamærum vegna COVID-19. Breytingin snýr eingöngu að íslenskum ríkisborgurum og þeim sem eru búsettir hér á landi. Sem fyrr verður hægt að velja á milli 14 daga sóttkvíar eða skimunar á landamærum en gert er ráð fyrir að einstaklingar úr fyrrnefndum…Lesa meira