Fréttir

true

Ríkið styður Handverk og hönnun

Ríkisstjórnin ákvað fyrir helgina að veita fimm milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til sjálfseignarstofnunarinnar Handverks og hönnunar. Hlutverk hennar er að stuðla að eflingu handverks og listiðnaðar, auka gæðavitund með ráðgjöf og upplýsingagjöf; auka skilning á menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks og listiðnaðar með fjölbreyttri kynningarstarfsemi; og kynna íslenskt handverk og íslenskan listiðnað. Handverk…Lesa meira

true

Landsmenn voru á faraldsfæti um helgina

Um helgina var prýðilegt sumarveður hvarvetna um vestanvert landið. Jafnan er fyrsta helgin í júlí ein stærsta ferðahelgi ársins og greinilegt að margir nýttu sér góða veðrið og þá aðstöðu sem víða er búið að byggja upp. Hér er horft yfir tjaldsvæðið í Stykkishólmi en þar eins og víðar var fjöldi fólks saman kominn yfir…Lesa meira

true

Reynt að koma í veg fyrir söfnun jarða á fárra hendur

Alþingi samþykkti í síðustu viku frumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um jarðamál en með því á að tryggja yfirsýn og gegnsæi um eignarhald á landi. Þetta er fyrsta skrefið í þá átt að gera stýringu mögulega á því hversu mikið land safnast á fárra hendur. „Með lögunum er hægt að stuðla að því að landnýting verði…Lesa meira

true

Líkfundur í Haffjarðardal

Björgunarsveitir fundu í dag lík sem talið er vera af karlmanni á sextugsaldri sem saknað hefur verið í Hnappadal á Snæfellsnesi frá því 30. desember á liðnu ári. Svæðið var komið meira og minna undir snjó þegar leit hófst fyrir áramótin, en engu að síður fór fram víðtæk leit dagana á eftir og af og…Lesa meira

true

Team Rynkeby hefur ferð sína um landið

Team Rynkeby á Íslandi mun hjóla 850 km í kringum landið á tímabilinu 4.-11. júlí til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna, SKB. Hópurinn mun hjóla fallegar hjólaleiðir í öllum landshlutum. Team Rynkeby er stærsta evrópska góðgerðarverkefnið þar sem þátttakendur hjóla á hverju ári 1200 km leið frá Danmörku til Parísar til styrktar langveikum börnum og fjölskyldum…Lesa meira

true

Eygló Lind 70 ára

Hinn síungi Borgnesingur, Eygló Lind Egilsdóttir, fagnaði 70 árunum síðastliðinn laugardag. Sló hún til heljarinnar veislu í tilefni dagsins. Haldið var opið hús um miðjan dag í Stöðulsholtinu í Borgarnesi hjá dóttur hennar, Sonju Lind, þar sem vinum og fjölskyldu Eyglóar var boðið að þiggja veitingar og samgleðjast með Eygló sem hefur varið stórum hluta…Lesa meira

true

Hleyptu af stað hringferð um landið

Verkefninu Upplifðu Ísland! var nýlega hleypt af stað, en verkefnið er átak sem á að hvetja landsmenn til að ferðast innanlands. Farið verður í fjögurra daga hringferðir umhverfis Ísland í þægilegri smárútu. Gist verður á hótelum Icelandair á Höfn í Hornafirði, Egilsstöðum og á Akureyri. Leiðsögumaður verður með í för og stoppað verður á fjölmörgum…Lesa meira

true

Aldís og Stefán fyrst í mark í Álmanninum

Keppt var í Álmanninum 2020 á Akranesi í gærkvöldi og þau Aldís Birna Róbertsdóttir og Stefán Karl Sævarsson fögnuðu sigri í einstaklingskeppni. Í liðakeppni bar liðið Hrepparar sigur úr býtum. Álmaðurinn er þríþraut þar sem keppt er í hjólreiðum, fjallahlaupi og sjósundi. Hjóluðu keppendur af stað frá íþróttahúsinu við Jaðarsbakka að Akrafjalli. Þá hlupu þau…Lesa meira

true

Nám til stúdentsprófs og garðyrkjufræði

Í síðustu viku var undirritaður endurnýjaður samningur milli Menntaskóla Borgarfjarðar (MB) og Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ). Eldri samningurinn byggði á samstarfi um sameiginlega náttúrufræðibraut með búfræðisviði til stúdentsprófs þar sem nemendur taka fyrstu tvö árin í Menntaskóla Borgarfjarðar og síðari tvö árin á Hvanneyri til búfræðiprófs. Nemendur útskrifast þá eftir fjögurra ára nám með sameiginlega gráðu…Lesa meira

true

Gerðu fýluferð norður

Káramenn þurftu að sætta sig við eins marks tap er þeir heimsóttu Ólafsfirðinga í KF í gærkvöldi í 3. umferð annarrar deildar karla í knattspyrnu. Skagamenn byrjuðu hins vegar betur í leiknum. Þeir skoruðu eina mark fyrri hálfleilks á 17. mínútu. Þar var á ferðinni Jón Vilhelm Ákason. Síðari hálfleikur var áhugaverður en engu líkara…Lesa meira