Fréttir

true

Borgfirðingabók er komin út

Í síðustu viku kom út Borgfirðingabók, ársrit Sögufélags Borgarfjarðar, og vinna félagar nú að dreifingu hennar til áskrifenda. Meðfylgjandi texti er formáli bókarinnar: „Segja má að okkur Íslendingum sé mikil og sérstæð ábyrgð á hendur falin um allt það, er lýtur að gæzlu þjóðlegra fræða,” ritar Guðmundur Böðvarsson í formála að Borgfirzkum æviskrám. Hefur þetta…Lesa meira

true

Þrjátíu þúsund hafa sótt Ferðagjöfina

Nú hafa yfir þrjátíu þúsund einstaklingar sótt Ferðagjöfina sína, 5000 krónur, sem hægt er að nota hjá um 600 ferðaþjónustufyrirtækjum hér á landi. Allir einstaklingar 18 ára og eldri með lögheimili á Íslandi fá Ferðagjöfina. „Gjöfin er liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar kórónuveirufaraldurs og efla þannig íslenska ferðaþjónustu…Lesa meira

true

Styrkja undirstöður Kolgrafafjarðarbrúar

Verktakar vinna nú hörðum höndum við að flytja efni úr malarnámunni í Gröf í Grundarfirði og inneftir í Kolgrafafjörð. Þar er efninu svo sturtað niður með brúarstöplunum til að styrkja undirstöðurnar. Svipuð framkvæmd var árið 2017 en nú virðist töluvert grófara efni vera sett niður. Stefnt er á að setja rúmlega þrjú þúsund rúmmetra af…Lesa meira

true

Tvö staðfest smit Covid-19 og fjölmargir á leið í sóttkví

Tvö tilfelli hafa nú verið staðfest innanlands af COVID-19, samkvæmt upplýsingum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra nú í hádeginu. Í morgun greindist annað tilfelli sem talið er að tengist því sem staðfest var í gær. Var það hjá starfsmanni í atvinnuvegaráðuneytinu og hafa samstarfsfélagar viðkomandi farið í sóttkví. Fyrra tilfellið er upprunnið erlendis en um er að…Lesa meira

true

Símtöl við akstur eru dýrkeypt og dauðans alvara

Fjölmargir hafa fengið sekt fyrir að aka of hratt síðustu vikuna í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. 80 ökumenn voru stöðvaðir af laganna vörðum á ferðinni fyrir að aka of hratt og myndavélabíll Lögreglunnar á Vesturlandi náði myndum af 101 hraðakstursbroti innanbæjar á Akranesi og í Borgarnesi í vikunni. Af þeim sem voru teknir af hraðamyndavélum…Lesa meira

true

Krambúðin oftast með hæsta verðið í könnun ASÍ

Í nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á matvöru var Krambúðin oftast með hæsta verðið, í 51 tilviki af 121. Bónus var oftast með lægsta verðið, eða í 81 tilviki. Mikill verðmunur er milli verslana og í 35 tilvikum af 121 mátti finna 60% mun á hæsta og lægsta verði á ýmsum algengum vörum. Sem dæmi var…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn á toppinn

Meistaraflokkur Skallagríms í knattspyrnu karla fer vel af stað á Íslandsmótinu og hefur nú sigrað fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu. Borgnesingar tóku efsta sætið í 4. deild karla C-riðli eftir góðan útisigur gegn KM í gærkvöldi. Þeir gul- og grænklæddu heimsóttu liðsmenn Knattspyrnufélags Miðbæjar Reykjavíkur eða KM á KR-vellinum í Reykjavík. Bæði mörk leiksins…Lesa meira

true

Selur heimaræktaðan maís, gulrætur og tómata í Staldrinu

Ofan við bílastæðin þar sem lagt er við Deildartunguhver í Reykholtsdal eru tveir veitingastaðir. Annars vegar Krauma en hins vegar einn minnsti veitingastaður landshlutans og nefnist sá Staldrið. Um er að ræða matarvagn þar sem í boði eru fjórir réttir auk drykkjarfanga. Þá er auk þess selt nýtt grænmeti á pallinum en það er allt…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík féll úr bikarnum fyrir nöfnum sínum

Víkingur Ólafsvík tók á móti núverandi bikarmeisturum Víkings Reykjavík á Ólafsvíkurvelli fimmtudaginn 25. júní síðastliðinn. Leikurinn var sá síðasti í þrjátíu og tveggja liða úrslitum bikarkeppni KSÍ. Víkingar frá Reykjavík spila í Pepsí deildinni og því um erfiðan andstæðing að ræða fyrir heimamenn. Leikurinn var í járnum frá byrjun og heimamenn gáfu nöfnum sínum ekkert…Lesa meira

true

Gera sitt til að fleiri konur mennti sig í skipstjórn

Faxaflóahafnir og Tækniskólinn hafa undirritað samkomulag um að auka samstarf og aðgerðir til að jafna hlut kynjanna í skipstjórnar- og vélstjóranámi. Um margþættan ávinning verður að ræða fyrir báða samningsaðila. Meðal annars vilja Faxaflóahafnir gera störf í hafnarþjónustu fyrirtækisins aðgengilegri fyrir konur og ætla að ráða tvær konur sem stunda nám í skipstjórn eða vélstjórn…Lesa meira