
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa á föstudaginn fyrir vefráðstefnu um aukið samstarf safna í landshlutanum. Ráðstefnan hefst á fræðsluerindum um safnastarf og starf safna á landsbyggðinni, en seinni hluti ráðstefnunnar er málþing safnafólks, starfsmanna menningarverkefna sveitarfélaganna og nefndarmanna menningarmálanefnda á Vesturlandi. Fræðsluerindin eru öllum opin og verða streymt á Facebook síðu SSV úr Safnahúsi Borgarfjarðar.…Lesa meira








