Fréttir

true

Samið við VÍS um tryggingar

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 8. apríl síðastliðinn að ganga að tilboði VÍS í tryggingar sveitarfélagsins. Byggðarráð hafði áður samþykkt tilboðið, en sveitarstjórn vísað því aftur til umræðu í byggðarráði. Eins og áður hefur verið rakið á síðum Skessuhorns úrskurðaði kærunefnd útboðsmála í febrúar að Borgarbyggð mætti ekki gera þá kröfu í útboðsskilmálum að…Lesa meira

true

Vestlendingar gera það besta úr aðstæðunum

Samkomubann hefur staðið í rúmlega mánuð og haft töluverð áhrif á daglegt líf okkar flestra. Skessuhorn heyrði í nokkrum íbúum á Vesturlandi og ræddi við þá um hvaða áhrif þetta ástand hefur á þeirra líf. Heilt yfir voru viðmælendur blaðsins jákvæðir og bjartsýnir og reyna að gera það besta úr þessum aðstæðum. Sjá Skessuhorn sem…Lesa meira

true

Fólki er að berast fjárkúgun í hótunarpósti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bendir á að á síðustu dögum hafi borist tilkynningar frá fólki sem fengið hefur ógnandi og grófa pósta þar sem reynt er að kúga fé af því. Sendandinn þykist hafa komist í tölvu viðtakanda og hafi yfirtekið tölvuna og náð myndefni af brotaþola þar sem hann/hún sé að skoða klámsíður. Ef greiðsla…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst með nám fyrir alla í sumar

Háskólinn á Bifröst ætlar að koma til móts við óskir um aukið námsframboð í sumar og skólinn opnaður öllum. Með því er verið að bregðast við ósk menntamálaráðherra um sumarnám í háskólum. Boðið verður upp á sumarnámskeið fyrir alla landsmenn frá 18. maí til 3. júlí í fjarnámi. Nýnemar geta hafið háskólanám strax í maí…Lesa meira

true

Staða íþróttafélaga mótast af afkomu fyrirtækja

„Áður en samkomubann var sett á og allt það stefndi þegar í erfitt ár rekstrarlega. Reksturinn gekk illa í fyrra, mjög illa meira að segja, og alveg rétt að segja það bara eins og það er. Félagið tapaði miklum peningum á rekstrinum. En á móti kemur að félagið er ekki mjög skuldsett, sem betur fer,“…Lesa meira

true

Afborganir námslána verða lækkaðar

Tekjutengd afborgun námslána lækkar þegar bæði vextir og endurgreiðsluhlutfall á eldri námslánum LÍN verða lækkuð á næstunni. Ábyrgðarmenn á um 30.000 lánum verða felldir brott til að tryggja jafnræði og uppgreiðsluafsláttur hækkaður upp í allt að 15% þegar tillögur um að bæta stuðning við greiðendur námslána verða innleiddar. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hrinda í framkvæmd…Lesa meira

true

„Vellíðan í lífi, leik og starfi er forsenda velgengni“

„Ef það hefur einhvern tímann verið þörf, þá er það núna,“ segir Aldís Arna Tryggvadóttir, umdæmisstjóri Streituskólans á Vesturlandi, um hversu mikilvægt það sé að huga vel að andlegri heilsu. Streituskólann stofnaði Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir árið 2002 sem fræðslu-, mannræktar- og lækningasetur. Hann var þá fyrstur hér á landi til að tala um kulnun…Lesa meira

true

Vinna við Esjubraut hafin að nýju

Gatnaframkvæmdir við Esjubraut á Akranesi hófust að nýju í dag. Götunni hefur því verið okað fyrir umferð. Eins og áður hefur verið greint frá var gert hlé á framkvæmdum í febrúar vegna frosts í jörðu og óhagstæðrar veðurspár. Þá var opnað tímabundið fyrir umferð um götuna milli Smiðjuvalla og Þjóðbrautar og áformað að halda vinnu…Lesa meira

true

Vigdís Finnbogadóttir er níutíu ára í dag

Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands fagnar í dag, 15. apríl, 90 ára afmæli sínu. Vigdís var kjörin forseti Íslands árið 1980 og gegndi því embætti í fjögur kjörtímabil, eða til ársins 1996. Vigdís varð fjórði forseti Íslands eftir lýðveldisstofnun. Hún var jafnframt fyrsta konan í heiminum sem valin var í lýðræðislegum kosningum til að…Lesa meira

true

Fimm dagar án smits

Ekkert nýtt Covid-19 smit greindist á Vesturlandi undanfarinn sólarhring, fimmta daginn í röð. Enn hafa því 39 smit greinst í landshlutanum, að því er fram kemur í tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu. Í dag eru 49 manns í landshlutanum í sóttkví en voru 109 á föstudaginn langa. Þá voru 28 í…Lesa meira