Fréttir

true

Miklar annir í dekkjaskiptum

Samkvæmt umferðarlögum er óheimilt að aka um á nagladekkjum eftir 15. apríl. Þar sem allra veðra er von í landi á norðlægum slóðum, hefur lögregla þó fram til þessa ekki beitt sektarákvæðum í aprílmánuði, samkvæmt upplýsingum frá FÍB. Það er eins gott eins og nú árar, því sekt fyrir eitt nagladekk er komin í 20…Lesa meira

true

Fyrsta smitið síðan á föstudag

Eitt nýtt smit greindist á Vesturlandi síðastliðinn sólarhring, skv. tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu. Er þetta fyrsta smitið sem greinst hefur  í landshlutanum síðan á föstudaginn langa. Nú hafa alls 40 smit verið greind í landshlutanum. Eitt smit hefur bæst við út frá heilsugæslunni á Akranesi frá því í gær og…Lesa meira

true

Sveitarstjóra Reykhólahrepps sagt upp

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 14. apríl að slíta samstarfi við Tryggva Harðarson sveitarstjóra. Ástæða starfsloka er ólík sýn á verkefni á vettvangi sveitarfélagsins, að því er fram kemur í samþykkt sveitarstjórnar. Ekki náðist samkomulag við fráfarandi sveitarstjóra um starfslok. Ákveðið var að auglýsa starfið og mun Árný Huld Haraldsdóttir oddviti sinna starfi sveitarstjóra…Lesa meira

true

Samið um lágmarks millilandaflug til þriggja landa

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur samið að nýju við Icelandair um flug til Evrópu og Bandaríkjanna með það að markmiði að tryggja lágmarks flugsamgöngur til og frá landinu vegna COVID-19 faraldursins. Áfram verður flogið til Boston, London og Stokkhólms til og með 5. maí. „Millilandaflug gegnir afar mikilvægu öryggishlutverki fyrir íslenska þjóð og þessar flugtengingar eru…Lesa meira

true

Mikkelsen er fyrsti handhafi verðlauna Vigdísar

Færeyski málvísindamaðurinn, kennarinn og útgefandinn Jonhard Mikkelsen hlýtur alþjóðleg menningarverðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í gær á 90 ára afmælisdegi Vigdísar. Það voru íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum sem ákváðu í sameiningu að setja verðlaunin á fót. Var…Lesa meira

true

Nýr vel búinn lögreglubíll verður staðsettur í Búðardal

Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur verið að endurnýja bílaflota embættisins eftir þörfum og nú hefur verið tekinn í notkun nýr bíll sem staðsettur verður í Búðardal. Nýja lögreglubifreiðin er Toyota Land Cruiser jeppi, búinn öllum þeim búnaði sem þörf er á við löggæslu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi. Í umdæmi…Lesa meira

true

ASÍ kynnir áherslur sínar vegna næsta efnahagspakka

Í tilkynningu, sem var að berast frá Alþýðusambandi Íslands, kemur fram að stjórnvöld hafi nú boðað kynningu á nýjum efnahagspakka vegna áhrifa COVID-19. „Alþýðusamband Íslands hefur kynnt ítarlegar áherslur sínar fyrir stjórnvöldum. ASÍ leggur áherslu á að þessi efnahagspakki tryggi meðal annars eftirfarandi þætti: Fyrir fólk, ekki fjármagn Aðgerðir stjórnvalda eiga fyrst og fremst að…Lesa meira

true

Sögurnar eru sannar og ríflega það

Þóra Grímsdóttir sagnakona á Akranesi hefur lengi haft í huga að taka upp sögurnar sem hún kann. Er hún þá helst að hugsa fyrir barnabörnin. Nú þegar margir eru fastir heima hjá sér ákvað hún að taka upp og deila nokkrum sögum á Facebook og er óhætt að segja að þær hafi slegið í gegn.…Lesa meira

true

Milljarði varið til skapandi greina auk íþrótta- og æskulýðsstarfs

Alþingi hefur samþykkt að veita hálfum millarði króna til menningarstarfs og skapandi greina, með sérstakri áherslu á sjálfstætt starfandi listamenn, og öðrum hálfum milljarði króna til íþrótta- og æskulýðsstarfs, til að mæta áhrifum COVID-19. Að auki verður 100 milljónum króna varið til varðveislu menningararfs með sérstöku framlagi í Húsafriðunarsjóð. Stuðningur þessi byggir á þingsályktunartillögu um…Lesa meira

true

Viðskiptahraðall fyrir nýjar lausnir í matvælaiðnaði og á sviði smásölu

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í viðskiptahraðalinn Til Sjávar og sveita sem fram fer haustið 2020. Óskað er eftir öflugum teymum með verkefni sem snúa að hátækni í matvælaiðnaði, nýjum lausnum í landbúnaði og haftengdum iðnaði og betri nýtingu hráefna þar sem sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi. Sérstaklega er óskað eftir nýjum tæknilausnum…Lesa meira