
Skessuhorn óskar lesendum sínum nær og fjær gleðilegra páska.Lesa meira

Skessuhorn óskar lesendum sínum nær og fjær gleðilegra páska.Lesa meira

Yfir 30 þúsund manns höfðu fyrir páska sótt um hlutabætur vegna minnkaðs starfshlutfalls. Þetta kemur fram í tölum frá Vinnumálastofnun. Flestar eru umsóknirnar úr ferðaþjónustu en yfir 12 þúsund starfsmenn í greininni hafa sótt um bætur. Úr verslun og vöruflutningum hafa yfir sex þúsund umsóknir borist. Dreifing umsækjenda milli landshluta er að mestu í samræmi…Lesa meira

Skessuhorn efnir til Innileiks um páskahelgina. Lesendur geta nú tekið sig til og sent ritstjórn besta brandarann sem það kann og freistað þess að vinna risastórt páskaegg! (Athugið að það má líka borða páskaegg eftir páska). Eina sem þarf að gera er að senda okkur tölvupóst með brandaranum á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is Nafn og símanúmer þarf…Lesa meira

Hugrún geðfræðslufélag hefur sett í loftið vefsíðuna gedfraedsla.is. Félagið er rekið í sjálfboðaliðastarfi af háskólanemum og snýr öll starfsemi félagsins að því að bæta geðheilsu ungmenna á Íslandi og auka aðgengi að upplýsingum um geðheilsu. Á síðunni má nálgast upplýsingar um geðheilsu, geðraskanir og úrræði. „Nú sem aldrei fyrr er sérlega mikilvægt að hlúa að…Lesa meira

Það var vor í lofti í gær, á skírdegi. Landsmenn nýttu það margir og gengu um þekktar gönguleiðir en aðrir héldu á fáfarnari slóðir. Flestir virtust gæta þess vel að halda sig fjarri öðru fólki, enda rík áhersla lögð á að fólk virði fjarlægðarmörk og tillit til samborgaranna á tímum smithættu. Meðfylgjandi myndir tók Helena…Lesa meira

Frá því að samkomubann stjórnvalda var sett á vegna kórónufaraldursins hafa stjórnendur og starfsfólk Slysavarnafélagsins Landsbjargar rýnt fjárhagsáætlun ársins með það að markmiði bregðast við minnkandi tekjustreymi. Það skýrist m.a. vegna lokunar söfnunarkassa Íslandsspila, lokunar Slysavarnaskóla sjómanna, fækkun námskeiða Björgunarskólans, samdrætti í sjúkrakassasölu og fleiru. „Þegar hefur verið hægt að bregðast við á ýmsa lund…Lesa meira

Fjöldi greindra smita af Covid-19 er einu fleiri í dag en gær, eða 39 einstaklingar á Vesturlandi. Í upplýsingum frá aðgerðageymi Almannavarna Vesturlands kemur fram að alls eru 109 í sóttkví í landshlutanum og 28 af þeim sem smitast hafa eru enn í einangrun. Það þýðir að ellefu eru lausir úr einangrun og búnir að…Lesa meira

Starfsmannafélag Slökkviliðs Snæfellsbæjar er þakklátt fyrir það frábæra og vandasama starf sem á sér stað hjá heilbrigðisstarfsmönnum landsins þessa dagana. Birgir Tryggvason slökkviliðsmaður segir í samtali við Skessuhorn að slökkviliðsmennirnir hafi heyrt af söfnuninni til styrktar gjörgæslunni. „Við erum að sjálfsögðu með í söfnuninni enda um frábært framtak að ræða – og að sjálfsögðu „Hlýðum…Lesa meira

Gengið hefur verið frá samningum milli Dalabyggðar og rekstraraðila um rekstur Vínlandsseturs í Búðardal. Reksturinn munu tvenn hjón í Dölum annast í sameiningu. Það eru annars vegar þau Anna Sigríður Grétarsdóttir og Pálmi Jóhannsson og hins vegar Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Reynir Guðbrandsson. Í Vínlandssetrinu verður landafundasýning með hljóðleiðsögn auk veitingasölu. Verkefnið á sér nokkurn aðdraganda.…Lesa meira

Vinna er hafin við gerð nýrrar ferðaleiðar um Hvalfjörð og Akranes. Verkefnið er samstarfsverkefni Markaðsstofu Vesturlands, Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar og Kjósarhrepps. Það er eitt af áfangastaðaverkefnum Vesturlands og, að sögn Thelmu Harðardóttur hjá Markaðsstofu Vesturlands, er áætlað að leiðin verði opnuð árið 2021. „Ferðaleiðin verður mikil markaðsleg búbót fyrir svæðið og verður hönnuð bæði með íslenskan…Lesa meira