Fréttir

true

Kynna í hádeginu fyrstu aðgerðir til að aflétta samkomuhöftum

Boðað hefur verið blaðamannafundar ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningarhúsinu í hádeginu í dag. Þar verður tilkynnt hvernig afléttingu samkomuhafta verður háttað. Athygli er vakin á að fundurinn verður í beinni útsendingu hjá Ríkisfréttastofunni. Af þessum sökum verður ekki upplýsingafundur um COVID-19 klukkan tvö í dag, eins og verið hefur undanfarnar vikur.Lesa meira

true

Vegagerðin býður út endurgerð Faxabrautar og grjótvörn

Í byrjun síðustu viku auglýsti Vegagerðin útboð á endurbyggingu Faxabrautar á Akranesi, endurgerð götunnar og bætt grjótvörn. Óskað er eftir tilboðum í endurbyggingu vegkaflans frá Jaðarsbraut að Akraneshöfn, ásamt gerð grjótvarnar og tilheyrandi lagnavinnu. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupstaðar og veitufyrirtækja. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2021. Í verkinu felst…Lesa meira

true

Skessuhorn búið til prentunar í dag

Starfsfólk Skessuhorns er nú mætt á vaktina eftir mjög svo innilegt páskaleyfi. Í dag verður tölublað vikunnar búið til prentunar og því dreift á morgun til lesenda. Þeir sem vilja koma á framfæri efni í næsta blað, geta sent tölvupóst á skessuhorn@skessuhorn.is eða pantað auglýsingar á auglysingar@skessuhorn.is Minnum einnig á síma 433-5500.Lesa meira

true

Lítil breyting íbúafjölda á fjórum mánuðum

Íbúar á Vesturlandi voru 16.672 þann 1. apríl síðastliðinn og hafði einungis fjölgað um sex einstaklinga síðastliðna fjóra mánuði, frá 1. desember 2019. Íbúum fjölgaði í þremur sveitarfélögum í landshlutanum á tímabilinu, um 7,7% í Skorradalshreppi, um 2,4% í Eyja- og Miklaholtshreppi og um 1,9% í Snæfellsbæ. Í öðrum sveitarfélögum stendur íbúatala ýmist í stað…Lesa meira

true

Engin ný smit á Vesturlandi fjórða daginn í röð

Lögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að birta tölur um smitaða af Covid-19 veirunni á Vesturlandi. Gleðilegt er að engin ný smit hafa verið greind síðustu daga í landshlutanum. Alls hafa 39 smitast af veirunni og 20 þeirra eru enn í einangrun. Átta eru í einangrun á starfssvæði heilsugæslunnar á Akranesi, sjö á…Lesa meira

true

Leita við strönd höfuðborgarsvæðisins að Söndru Líf

Fjórða daginn í röð leita björgunarsveitir, lögregla, Landhelgisgæslan og fleiri að Söndru Líf Þórarinsdóttur Long, 27 ára. Hennar hefur verið saknað frá því á skírdag en bíll hennar fannst mannlaus á Álftanesi. Í dag verður leitað með strandlengjunni frá Gróttu og suður fyrir Álftanes. Þeir sem telja sig geta gefið upplýsingar um ferðir hennar eru…Lesa meira

true

Engin mót yngri landsliða í körfunni

Stjórn körfuknattleiksins, FIBA Europe, hélt stjórnarfund í liðinni viku og ræddi framhald mótahalds í sumar. Stjórnin komst að þeirri niðurstöðu að engin mót yngri landsliða fari fram í sumar á þeirra vegum. Það þýðir að Evrópukeppnir U16, U18 og U20 liða fara ekki fram árið 2020 í öllum deildum. Alls eru um 16 mót á…Lesa meira

true

Auknar lántökur OR sem greiðir engu að síður út arð til eigenda

Á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) síðastliðinn miðvikudag voru samþykktar aðgerðir til að bregðast við þeim afleiðingum sem Covid-19 faraldurinn hefur í för með sér fyrir atvinnulífið. „Með aðgerðunum vill OR sýna samfélagslega ábyrgð í verki og auka fjárfestingar í verkefnum sem hafa mikil áhrif í samfélaginu með það að leiðarljósi að viðhalda atvinnustiginu í landinu.…Lesa meira

true

Reikna má með að samkomuhald verði í lágmarki allt þetta ár

Nú er gert ráð fyrir að takmarkanir verði settar á fjöldasamkomur í sumar vegna Covid-19 faraldursins. Áfram mun fólk þurfa að halda tveggja metra fjarlægð, jafnvel út þetta ár. Þetta eru meðal skilaboða sem sóttvarnalæknir boðaði nú um helgina en vafalítið mun verða farið eftir tilmælum embættisins. Eftir 4. maí næstkomandi er engu að síður…Lesa meira

true

Engin nýsmit annan daginn í röð

Annan daginn í röð er engin fjölgun nýsmitaðra af Covid-19 veirunni á Vesturlandi samkvæmt nýjum upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Alls hafa 39 einstaklingar greinst með smit, 77 eru nú í sóttkví og 22 eru í einangrun. Það þýðir að 17 hafa lokið einangrun. Flestir greindir einstaklingar eru í umdæmi heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi, eða…Lesa meira