Fréttir

true

Tilfelli á Vesturlandi orðin fimm

Nú hafa fimm einstaklingar á Vesturlandi verið greindir með Covid-19 veirunni. Þrír þeirra eru í Borgarnesi og tveir í Stykkishólmi. Samkvæmt upplýsingum frá aðgerðateymi Almannavarna Vesturlands verða upplýsingar um fjölda smitaðra í landshlutanum framvegis tilkynntar einu sinni á dag. Nú eru 263 íbúar í landshlutanum í sóttkví. Í gær bættist 21 í hóp smitaðra á…Lesa meira

true

Frestun valkvæðra skurðaðgerða

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á erindi landlæknis og staðfest fyrirmæli embættisins um að öllum valkvæðum skurðaðgerðum og öðrum ífarandi aðgerðum, t.d. greiningarrannsóknum, verði hætt frá 23. mars til 31. maí næstkomandi. Á þetta við hvort sem um ræðir aðgerðir framkvæmdar innan eða utan spítala, af opinberum aðila eða einkaaðila.Lesa meira

true

Uglukletti í Borgarnesi lokað

Leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi hefur verið lokað þar sem einn starfsmaður á leikskólanum hefur verið greindur með Covid-19 smit. Er brugðið á þetta ráð til að hefta mögulega útbreiðslu kórónuveirusmits. Fram kemur í frétt Borgarbyggðar að verið sé að vinna í rakningu smits. „Þar sem starfsmaðurinn var ekki í beinum samskiptum við börnin er ekki…Lesa meira

true

Narfeyrarstofu lokað í bili

Veitingastaðnum Narfeyrarstofu í Stykkishólmi hefur verið lokað um óákveðinn tíma, frá og með mánudeginum 23. mars. Ástæðan er vitaskuld heimsfaraldur COVID-19 og allt sem honum fylgir, samkomubann í fjölmörgum löndum og ferðabann víða um heim. „Á þeim 19 árum sem við höfum verið að reka veitingahúsið Narfeyrarstofu í Stykkishólmi hefur aldrei verið uppi viðlíka staða…Lesa meira

true

Auglýst eftir fólki í Bakvarðasveit Brákarhlíðar

Stjórnendur dvalar- og hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi telja skynsamlegt að koma á fót Bakvarðasveit fyrir heimilið í ljósi stöðunnar sem uppi er í samfélaginu. „Fari svo að mikið brottfall verði í hópi starfsmanna gæti orðið nauðsynlegt að fá aðstoð við að manna störf við aðhlynningu, í eldhúsi og í þrifum á heimilinu. Við leitum að…Lesa meira

true

Hertar reglur taka gildi í kvöld um samkomubann

Heilbrigðisráðherra ákvað í gær hertar reglur um samkomubann vegna Covid-19 faraldursins. Tillögurnar byggja á ráðgjöf sóttvarnalæknis. Frá miðnætti í kvöld, mánudag, er miðað við að mest tuttugu mega koma saman, en fyrri reglur settu mörkin við hundrað. Þá verður sundlaugum, söfnum og skemmtistöðum lokað og öll starfsemi sem krefst nándar innan tveggja metra er bönnuð.…Lesa meira

true

Aðgerðastjórn fundar daglega

Hér á Vesturlandi er starfandi aðgerðastjórn vegna Covid-19 faraldursins og heyrir hún undir Almannavarnanefnd Vesturlands. Emil Sigurðsson er starfsmaður aðgerðastjórnar í hálfu starfi. Í aðgerðastjórn sitja Þórir Bergmundsson svæðissóttvarnarlæknar á Vesturlandi, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE, en auk þeirra fulltrúar frá lögreglu, björgunarsveitum og Rauða krossi Íslands. „Við fundum nær daglega í aðgerðastjórn vegna Covid-19…Lesa meira

true

Takmarkanir á íþrótta- og æskulýðsstarfi

Vegna fjölda fyrirspurna hefur heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið tekið saman leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar þegar kemur að íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Leiðbeiningarnar eru eftirfarandi: „Kennsla í leik- og grunnskólum fer nú fram í…Lesa meira

true

Aðgerðir í þágu ferðaþjónustu sérstaklega

Ávísanir til landsmanna vegna ferðalaga innanlands, kröftugt alþjóðlegt markaðsátak og afnám gistináttaskatts út næsta ár eru meðal þeirra aðgerða í þágu íslenskrar ferðaþjónustu vegna COVID-19 sem ríkisstjórnin kynnti á laugardag. Stjórnvöld vilja leggja kapp á að Ísland verði með fyrstu löndum til að byggja aftur upp eftirspurn í ferðaþjónustu. Í því skyni er þegar hafinn…Lesa meira

true

Smitaðir nú einnig á Vesturlandi

Nú hafa einstaklingar smitaðir af Covid-19 veirunni greinst í öllum landshlutum öðrum en Austurlandi. Tveir hafa nú greinst hér á Vesturlandi og 210 eru í sóttkví. Annað tilfelli smits er í Stykkishólmi, en viðkomandi kom nýlega frá Spáni. Sá fór beint í sóttkví og síðan í einangrun eftir að hann greindist.  Hann er því ekki…Lesa meira