Fréttir

true

Hvasst samhliða úrkomu í dag

Spáð er talsverðri eða mikilli rigningu sunnan- og vestanlands og á Austfjörðum í dag og hláku um allt land seinni partinn. Gul viðvörun er vegna hvassviðris og úrkomu um mestallt landið. Spáð er sunnan- og suðaustan hvassvirði eða stormi í dag. Það verður sumsstaðar slydda eða snjókoma og síðar talsverð rigning en yfirleitt þurrt á…Lesa meira

true

Nærri sokkinn í Akraneshöfn

Litlu mátti muna í morgun að smábáturinn Abraham AK-73 sykki, þar sem hann lá bundinn við eina flotbryggjuna í Akraneshöfn. Maður sem kom að bátnum hóf þegar að ausa úr honum og gerði sömuleiðis viðvart. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar mætti á staðinn og dældi úr bátnum. Líklegt er að loki í vélarhúsi hafi gefið sig.…Lesa meira

true

Stjórnvöld kynntu aðgerðaáætlun vegna kórónaveirunnar

Forystufólk Ríkisstjórnar Íslands kynnti í gær fjölþættar aðgerðir í fyrsta áfanga stjórnvalda til að bregðast við áhrifum heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Áætlað er að aðgerðirnar í heild kosti ríkissjóð um 230 milljarða króna, eða tæplega 8% af landsframleiðslu. Aðgerðirnar eru þríþættar og miða að því að tryggja afkomu fólks og fyrirtækja, verja grunnstoðir samfélagsins og skapa öfluga…Lesa meira

true

Geir Þorsteinsson ráðinn framkvæmdastjóri KFÍA

Geir Þorsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA. Tekur hann við starfinu af Sigurði Þór Sigursteinssyni. Í tilkynningu segir: „Geir hefur áratuga reynslu á sviði stjórnunar, fjármála, reksturs og félagsmála en hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri KR auka þess að starfa sem þjálfari yngri flokka og dómari. Geir var framkvæmdastjóri Knattspyrnusambandi Íslands frá 1997-2007 og…Lesa meira

true

Upplýsingafundur fyrir ferðaþjónustuna næsta mánudag

Ferðamálastofa, Neytendastofa, Neytendasamtökin og Samgöngustofa standa fyrir upplýsingafundi fyrir ferðaþjónustuna næstkomandi mándudag, 23. mars. Farið verður yfir skyldur ferðaþjónustuaðila og rétt neytenda. Fundurinn verður alfarið með fjarfundarfyrirkomulagi og streymt á Facebooksíðu Ferðamálastofu og mun standa yfir frá klukkan 10 til 11.30. Hægt er að senda inn fyrirspurnir á meðan á fundi stendur. Einnig verður boðið…Lesa meira

true

Lín hækkar tekjuviðmið og bregst við vegna veirunnar

Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneyti, ákveðið frekari aðgerðir til að létta á áhyggjum námsmanna og greiðenda af námslánum vegna hugsanlegra aðstæðna sem komið geta upp á meðan á COVID-19 faraldrinum stendur eða í kjölfar hans. Ívilnanir fyrir greiðendur Í nýjum úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna verður kveðið á um hækkun…Lesa meira

true

Brestir þegar sýnilegir í fæðuöryggi Íslands

Skortur er nú fyrirséður á grænmeti hér á landi. Innlend framleiðsla er í lágmarki, meðal annars vegna stefnu stjórnvalda að niðurgreiða ekki meira en raun ber vitni raforku til grænmetisræktunar. Því standa gróðurhús víða um land ónotuð yfir vetrartímann. Nú eru grænmetisframleiðendur úti í heimi hættir að geta tryggt full afköst og því er fyrirséð…Lesa meira

true

Róbert tímabundið ráðinn upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar

Róbert Marshall hefur verið ráðinn til þriggja mánaða í stöðu upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar. Hann verður með aðsetur í forsætisráðuneytinu og hefur störf 1. apríl nk. Róbert er fyrrverandi alþingismaður en hefur starfað við fjallaleiðsögn, þjálfun og útivist undanfarin ár. Hann starfaði við fjölmiðla um árabil og var aðstoðarmaður samgönguráðherra áður en hann settist á þing árið…Lesa meira

true

Forsetakosningar boðaðar í lok júní

Forsætisráðuneytið hefur birt auglýsingu um framboð og kjör forseta Íslands. Kjör forseta skal fara fram laugardaginn 27. júní 2020. Framboðum til forsetakjörs skal skila til dómsmálaráðuneytisins, ásamt samþykki forsetaefnis, nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningabærir, eigi síðar en fimm vikum fyrir kjördag. Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst 1500 kosningabærra manna,…Lesa meira

true

Sérútbúinn sjúkrabíll fyrir Covid-19 smitaða

Á Akranesi hefur verið útbúinn sjúkrabíll til að flytja sýkta, eða grunaða um sýkingu, af Covid-19 veirunni. Að sögn Gísla Björnssonar yfirmanns sjúkraflutninga hjá HVE kemur þessi bíll til með að verða notaður á öllu starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands komi til flutninga á sýktu fólki. „Flutningsbíllinn er eingöngu búinn varnarbúnaði fyrir sjúkraflutningafólk og sjúkling ásamt börum…Lesa meira