
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Ef lögin verða samþykkt verður Vegagerðinni gert heimilt, að undangengnu útboði, að eiga samvinnu við einkaaðila um fjármögnun, hönnun, undirbúning og framkvæmdir við sex afmörkuð verkefni ásamt viðhaldi og rekstri í tiltekinn tíma. Þá verður heimilt að fjármagna samvinnuverkefni…Lesa meira








