Fréttir

true

Keppni hætt í mörgum deildum og flokkum

Íslandsmótinu í körfuknattleik er lokið í 2. deild karla og kvenna, 3. deild karla, unglingaflokki karla, stúlknaflokki, drengjaflokki, 10., 9., 8., og 7. flokkum drengja og stúlkna sem og í minnibolta 9, 10 og 11 ára drengja og stúlkna. Enginn deildar- eða Íslandsmeistari verður krýndur í þessum deildum og flokkum. Mótanefnd og stjórn Körfuknattleikssambands Íslands…Lesa meira

true

Lestrarklefinn ætlar að frumbirta texta

Lestrarklefinn auglýsti á dögunum eftir textum til að frumbirta á vefsíðu sinni. Hugmyndin er að birta texta eftir nýja, gamla, reynda eða óreynda höfunda í þeim tilgangi að koma nýjum höfundum á framfæri. „Þetta er einstakt tækifæri fyrir marga til að stíga út fyrir þægindarammann og þekktari höfunda að viðra nýja texta,“ segir í auglýsingunni.…Lesa meira

true

Landsréttur staðfestir dóm um Reykjadalsá

Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness frá 23. janúar síðastliðnum. Í héraðsdómi var vísað frá dómi máli sem Stangaveiðifélag Keflavíkur höfðaði gegn Fiskistofu og Fiskræktar- og veiðifélagi Reykjadalsár í Borgarfirði. Fyrir héraðsdómi krafðist félagið að felld yrði úr gildi stjórnvaldsákvörðun Fiskistofu frá 15. janúar 2019 þar sem felldur var úr gildi samningur sem meirihluti stjórnar…Lesa meira

true

Samþykkja að selja félagsheimilið Valfell

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var tekin fyrir sala á félagsheimilinu Valfelli í Borgarhreppi. Byggðarráð hafði áður lagt til að félagsheimilið yrði selt en einnig að eigendum lögbýlisins Brennistaða verði veitt tækifæri til að nýta forkaupsrétt á eigninni og lagði þá ákvörðun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar. Sveitarstjórn staðfesti fyrri afgreiðslu byggðarráðs með átta atkvæðum.…Lesa meira

true

Viðvörun vegna hríðarveðurs

Í dag gengur í suðvestan 13-20 m/s og dregur ört úr frosti. Heldur hægari vindur sunnan- og austantil á landinu. Gul viðvörun er víða í gildi en á Vestfjörðum er hún appelsínugul. Veðurfræðingar benda á að það muni ganga í suðaustan- og austan hvassviðri eða storm í nótt með snjókomu, slyddu eða rigningu. Veðrið hér…Lesa meira

true

Skimun ÍE bendir til að veiran sé ekki útbreidd

Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir sagði í morgun í Ríkissjónvarpinu að fyrstu niðurstöður skimunar hjá Íslenskri erfðagreiningu (ÍE) bendi til þess að um eitt prósent þeirra sem komu í skimun í gær sé smitað af COVID-19. Þórólfur tók það fram að rýna þurfi betur í þessar niðurstöður, en vísbending sé um að veiran sé ekki orðin útbreidd…Lesa meira

true

Átján í sóttkví á Vesturlandi en enginn smitaður

Í gær voru 17 ný tilfelli smitaðra af Covid-19 veirunni greind hér á landi og hefur því 161 veikst. Tekin hafa verið sýni úr 1868 einstaklingum. Hér á Vesturlandi eru átján manns í sóttkví vegna veirunnar en enginn hefur greinst með hana. Þetta og fjölmargt fleira um þróun og útbreiðslu veirunnar má lesa á upplýsingavefnum…Lesa meira

true

Uppfærð frétt – Víða verður lokað í grunn- og leikskólum mánudaginn 16. mars

Eins og fram kom í fjölmiðlum í gær, föstudag, hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið og loka m.a. framhaldsskólar og háskólar í a.m.k. fjórar vikur frá og með 16. mars. Sömuleiðis var þeim tilmælum beint til sveitarfélaga sem annast rekstur leik- og grunnskóla að…Lesa meira

true

Þrenn lög sem eiga að minnka höggið vegna kórónaveirunnar

Ríkisstjórnin mun fara með í gegnum flýtiafgreiðslu á Alþingi þrenn lög sem öll hafa það að markmiði að draga úr því höggi sem atvinnulífið verður óhjákvæmilega fyrir vegna áhrifa kórónaveirunnar. Mega fresta greiðslu opinberra gjalda Í fyrsta lagi hefur nú þegar verið samþykkt á þingi tillaga fjármálaráðherra um að bjóða fyrirtækjum að fresta greiðslu opinberra…Lesa meira

true

Nú reynist vel að hafa byggt upp fjarnámsskóla

Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bifröst segir að skólastarfið á Bifröst truflist lítið þrátt fyrir „lokun“ háskóla. „Fjarnámið er stóra skýringin og ástandið sannar gildi fjarnámsins. Vinnuhelgi sem átti að vera núna er öll færð á Teams fundi sem hefur gengið vel upp að því ég best veit. Skrifstofa skólans starfar í fjarvinnu eins og…Lesa meira