Fréttir

true

Valdís Þóra náði sínum fjórða besta árangri

Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur úr GL lauk í dag leik á Investec South AFrican Women’s Open mótinu sem er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Í allan dag var Valdís í baráttunni um sigurinn en varð að lokum að láta sér sjöunda sætið lynda, sem engu að síður er frábær árangur. Á golfvefnum kylfingur.is er greint frá…Lesa meira

true

Sauðburður er hafinn í Ólafsvík

Fyrsta lambið í Snæfellsbæ kom í heiminn í gærmorgun, fimmtudaginn 12. mars. Það var ær í húsunum hjá frístundabóndanum Marteini Gíslasyni sem bar fallegri gimbur, sem þar með er lambadrottning. Marteinn sagði í samtali við Skessuhorn að hann hafi ekki átta von á að ærin myndi bera svona snemma. „Þegar ég mætti um morguninn í…Lesa meira

true

Bændasamtökin mæla með því að takmarka heimsóknir á bú

„Bændasamtök Íslands hafa fylgst náið með þróun mála vegna kórónuveirunnar sem nú herjar á landann og alla heimsbyggðina. Matvælastofnun hefur gefið út mikilvægar leiðbeiningar til bænda og annarra matvælaframleiðenda um það hvernig bregðast skuli við og lágmarka áhættu af völdum veirunnar. Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og Embætti landlæknis vegna…Lesa meira

true

Telja ótækt að sveitarfélag geti ekki valið við hverja er skipt

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 5. mars síðastliðinn var samþykkt að ganga að tilboði tryggingafélagsins VÍS í tryggingar fyrir sveitarfélagið. Sveitarstjórn tók málið svo fyrir á fundi í gær. Þar var ákveðið að vísa málinu aftur til umræðu í byggðarráði. Davíð Sigurðsson lagði á fundi sveitarstjórnar fram tillögu þess efnis að málinu verði vísað inn í…Lesa meira

true

Verðlaunahafar í stærðfræðikeppni grunnskólanna

Stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi föstudaginn 21. febrúar síðastliðinn. Keppnin var sem fyrr fyrir nemendur í 8.-10. bekk í öllum grunnskólum og grunnskóladeildum á Vesturlandi auk grunnskólanum á Hólmavík og Klébergsskóla á Kjalarnesi. Að þessu sinni voru 106 nemendur sem tóku þátt í keppninni og komu þeir frá sjö…Lesa meira

true

Messuhald og fermingar falla niður í vor vegna samkomubanns

Allt messuhald og vorfermingar falla niður hjá Þjóðkirkjunni. Ákvörðunin um það var tekin með almannaheill í húfi og gildir á meðan samkomubann er í gildi. Í kjölfar blaðamannafundar í morgun, þar sem ráðherrar kynntu fyrirhugað samkomubann, ákvað biskup Íslands að taka af allan vafa og slá fermingarathöfnum sem vera áttu í vor á frest. „Ekki…Lesa meira

true

Við erum almannavarnir

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, sagði á blaðamannafundi nú fyrir hádegi að markmiðið með samkomubanninu sem lýst hefur verið yfir frá miðnætti á sunnudag vegna COVID-19 faraldursins væri eftir sem áður að „verja okkar viðkvæmustu hópa og tryggja að heilbrigðiskerfið standist álagið og að samfélagið geti komið heilt út úr þessum faraldri,“ eins og Katrín komst að orði.…Lesa meira

true

Frumvarp sem heimilar frestun á greiðslu staðgreiðslu og tryggingagjalds

Meðal þeirra tillagna sem nú liggja fyrir Alþingi frá Ríkisstjórn er að bjóða fyrirtækjum að fresta greiðslu opinberra gjalda með eindaga mánudaginn 16. mars. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi þess efnis í morgun að eindagi á staðgreiðslu og tryggingagjaldi, sem er á mánudaginn 16. mars, verður færður til 16. apríl. Ráðist er í þessa…Lesa meira

true

Samkomubanni lýst yfir – Framhaldsskóla- og háskólanemar sendir heim

Samkomubanni hefur verið lýst yfir frá miðnætti á sunnudag, 15. mars næstkomandi, vegna COVID-19 faraldursins. Samkomubannið gildir í fjórar vikur frá þeim degi og takmarkast við hundrað manns. Viðburðir og samkomur þar sem fleiri en 100 koma saman verða óheimilir. Þetta kom fram í máli Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra á blaðamanna fundi núna kl. 11:00 í…Lesa meira

true

LÍN kemur til móts við námsmenn

Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur samþykkt heimild fyrir sjóðinn til að taka til greina annars konar staðfestingu skóla á ástundun nemenda en vottorðum um loknar einingar. Þetta er gert til þess að bregðast við aðstæðum nemenda sem mögulega geta ekki sinnt námi sínu vegna röskunar á hefðbundnu skólastarfi vegna COVID-19 veirunnar. „Þessar aðstæður kalla á…Lesa meira