Fréttir

true

Arion banki býður einstaklingum greiðsluhlé vegna Covid-19

Arion banki hefur ákveðið að koma til móts við þá einstaklinga sem sjá fram á erfiðleika við að standa skil á afborgunum íbúðalána vegna Covid-19. Þessum einstaklingum býðst að gera hlé á afborgunum lánanna í allt að þrjá mánuði til að auðvelda þeim að takast á við fyrirsjáanlegar áskoranir. Í tilkynningu frá bankanum segir að…Lesa meira

true

Borgnesingar lágu gegn toppliðinu

Skallagrímsmenn mættu ofjörlum sínum þegar þeir heimsóttu topplið Hattar austur á Egilsstaði í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímsmenn náðu að hanga í Hetti í fyrri hálfleik en í þeim síðari tóku heimamenn öll vold á vellinum í síðari hálfleik og sigruðu að lokum örugglega, 85-66. Heimamenn höfðu yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta…Lesa meira

true

Sjö í sóttkví á Vesturlandi en engin smitaður

Vefsíðan www.covid.is er komin í loftið en þar má finna upplýsingar frá Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra um sjúkdóminn COVID-19. Á síðunni eru ýmsar upplýsingar og svör við algengum spurningum. Svo sem hvernig hægt sé að forðast smit, hvernig einangrun í heimahúsi virkar og fleira í þeim dúr. Á síðunni er einnig hægt að fylgjast…Lesa meira

true

Snæfellingar burstaðir

Snæfellingar steinlágu gegn sterku liði Breiðabliks, 114-69, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Kópavogi í gærkvöldi. Blikar réðu ferðinni frá fyrstu mínútu og náðu snemma öruggri forystu. Snæfellingar áttu slakan upphafsfjórðung á meðan Breiðablik lék á als oddi. Heimamenn leiddu með 34 stigum gegn tólf eftir fyrsta leikhluta. Snæfellingar…Lesa meira

true

Breytingar framundan á rekstri Gamla Kaupfélagsins

Veitingastaðnum Gamla Kaupfélaginu á Akranesi verður lokað í núverandi mynd 1. maí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Gamla Kaupfélagsins á sunnudagskvöld. Í framhaldi af lokun staðarins stefna rekstraraðlar að því að opna nýjan möguleika í veitingaþjónustu á Akranesi, að því er fram kemur í tilkynningunni. Sömuleiðis hyggjast þeir efla sig í veislu-…Lesa meira

true

Arion banki hlaut árangursverðlaun

Áran, íslensku árangursverðlaunin í markaðssetningu, var afhent í liðinni viku. Verðlaunin hlaut Arion banki fyrir herferðina Arion appið – þægilegri bankaþjónusta. Árangursverðlaununum er ætlað að beina sjónum að herferðum sem skilað hafa framúrskarandi árangri en það eru stjórnir ÍMARK og SÍA sem veita þau. Bankinn fékk verðlaunin fyrir auglýsingaherferð þar sem kostir Arion appsins eru…Lesa meira

true

Kanna hvort sóttkví sé virt

Sá kvittur hefur komist á kreik að ekki virði allir sóttkví sem þeir hafa verið skikkaðir í til að hefta útbreiðslu COVID-19 kórónaveirunnar hér á landi. Lögreglan á Vesturlandi rannsakaði ábendingu þess efnis í vikunni og að sögn Ásmundar Kr. Ásmundssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns átti hún ekki ekki við rök að styðjast. Að virða ekki sóttkví vísvitandi…Lesa meira

true

Árétting – Fyrirtækjakynningu frestað

Fyrirtækjakynningu á vegum Rótarýklúbbs Borgarness, sem fara átti fram í Hjálmakletti laugardaginn 14. mars, hefur verið frestað fram á haust. Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi Rótarýklúbbs Borgarness í síðustu viku. „Ákveðið var að grípa til þessara varúðarráðstafana vegna þeirra aðstæðna sem eru í samfélaginu vegna kórónaveirunnar,“ segir í tilkynningu frá Rótarýklúbbi Borgarness. Til…Lesa meira

true

Velferðarstefna Vesturlands er komin út

Í dag er útgáfudagur Velferðarstefnu Vesturlands. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa í auknum mæli farið í stefnumótunarvinnu fyrir landshlutann og eru velferðarmál hluti af þeim verkefnum. Við vinnslu velferðarstefnunar var skipaður starfshópur aðila í velferðarmálum á Vesturlandi. Í honum sitja fulltrúar frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, dvalar- og hjúkrunarheimilum, æskulýðs-, tómstunda- og forvarnarfulltrúar, frá stjórnsýslunni, stjórn SSV…Lesa meira

true

Frumvarp til að tryggja að sveitarstjórnir geti starfað við neyðarástand

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp um breytingu á sveitarstjórnarlögum sem ætlað er að skapa sveitarfélögum svigrúm til að bregðast við neyðarástandi og tryggja að sveitarstjórnir verði starfhæfar. Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra geti veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild að til víkja frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga til að sveitarstjórn sé starfhæf við…Lesa meira