Fréttir

true

MTH gefur út glæpasöguna Illvirki

MTH útgáfa á Akranesi hefur gefið út glæpasöguna, Illvirki, en það er þriðja bókin um Jönu Berzelius saksóknara eftir Emelie Schepp. Í bókinni segir frá fordæmalausum og óhugnanlegum morðum sem framin eru í Norrköping. Morðinginn beitir skurðlækningatækjum og rannsóknarlögreglan, með Henrik Levin og Miu Bolander í broddi fylkingar, stendur frammi fyrir að því er virðist…Lesa meira

true

Villtust á leið úr Landbrotalaug

Par lenti í vandræðum eftir að hafa farið ofan í Landbrotalaug á Snæfellsnesi á föstudagskvöld í liðinni viku. Þegar þau komu upp úr lauginni voru fötin þeirra frosin og þau brugðu á það ráð að ganga á sundfötunum til baka að bílnum sínum. Þau villtust hins vegar á leiðinni í bílinn og kölluðu eftir aðstoð…Lesa meira

true

Íslandsmeistararnir of stór biti

Snæfellskonur biðu lægri hlut gegn Íslandsmeisturum Vals, 74-99, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Jafnt var á með liðunum í upphafsfjórðungnum. Snæfell komst í 7-2 áður en Valur náði forystunni og leiddi með örfáum stigum framan af fjórðungnum. Undir lok fyrsta leikhluta komst Snæfell yfir að…Lesa meira

true

Ingimar hættur sem oddviti Reykhólahrepps

Ingimar Ingimarsson óskaði eftir því að láta af störfum oddvita á fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps síðastliðinn þriðjudag. Í yfirlýsingu sem Ingimar lagði fram á fundinum kveðst hann ekki getað komið fram fyrir hönd sveitarstjórnar þegar kemur að vegagerð Vestfjarðarvegar skv. svokallaðri Þ-H leið, þar sem hann geti ekki stutt ákvörðun sveitarstjórnarinnar um að velja þá leið.…Lesa meira

true

Heimildamyndahátíðin Skjaldborg hlaut Eyrarrósina

Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var veitt í sextánda sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Verðlaunin komu í hlut Skjaldborgar – Hátíðar íslenskra heimildamynda á Patreksfirði. Aðstandendur hátíðarinnar voru að vonum hæstánægðir þegar þær tóku á móti viðurkenningunni og verðlaunafé, enda í þriðja sinn sem hátíðin kemst á Eyrarrósarlistann. Alls bárust…Lesa meira

true

Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar lögð fram

Markmiðið að meta þörf og auka húsnæðisöryggi Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar var samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar Akraness á þriðjudaginn. Um er að ræða heildstæða áætlun er varðar stöðu húsnæðis mála í bænum. Er hún gerð til sjö ára, frá 2020 til og með 2026. Markmið áætlunarinnar er að meta húsnæðisþörf á næstu fjórum til átta árum…Lesa meira

true

Mælir með kosningum að vori

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar var gestur í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Hann var meðal annars spurður um afstöðu sína til þess hvort kjósa eigi að vori eða hausti, en kjörtímabil núverandi ríkisstjórnar rennur eins og kunnugt er út á næsta ári. Eins og fram hefur komið í ummælum Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins er það vilji…Lesa meira

true

Sóttu sigur á endasprettinum

Skallagrímskonur lyftu sér upp í fjórða sæti Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með sigri á Grindvíkingum á útivelli í gærkvöldi. Eftir jafnan og spennandi leik sóttu Borgnesingar tíu stiga sigur á lokamínútunum með góðum endaspretti, 66-76. Liðin skiptust á að leiða í fyrsta leikhluta. Skallagrímskonur leiddu 5-11 eftir fjögurra míntútna leik áður en Grindvíkingar komust…Lesa meira

true

Júlíana framundan í Stykkishólmi

Júlíöna, hátíð sögu og bóka, hefst í dga, fimmtudaginn 27. febrúar, í Stykkishólmi og stendur fram á laugardag. Er þetta í áttunda sinn sem hátíðin er haldin en að henni standa þær Dagbjört Höskuldsdóttir, Gréta Sigurðardóttir, Nanna Guðmundsdóttir, Sólrún Sigurðardóttir og Þórunn Sigfúsdóttir. „Það er gleði í okkar herbúðum að Júlíana hátíð hafi verið valin…Lesa meira

true

Geta ekki gert kröfu um starfsstöð í sveitarfélaginu

Kærunefnd útboðsmála úrskurðaði í máli Vátryggingafélags Íslands gegn Borgarbyggð 18. febrúar síðastliðinn. Nefndin úrskurðaði að Borgarbyggð skyldi fella út úr útboðsskilmálum ákvæði um að bjóðandi starfræki starfsstöð í sveitarfélaginu. Borgarbyggð hafði í skilmálum útboðsins gert kröfu um að bjóðandi starfræki starfsstöð í sveitarfélaginu með starfsmanni a.m.k. 16 tíma á viku. Skyldi henni komið á sex…Lesa meira