Fréttir

true

Brambolt er nýtt ráðgjafa- og tæknifyrirtæki

„Við sinnum þjónustu við miðlunar- og uppgjörskerfið Calypso fyrir fjármálastofnanir, sem felur meðal annars í sér prófanir, forritun, rekstur og almenna ráðgjöf,“ segir Arnfinnur Teitur Ottesen í samtali við Skessuhorn. Hann stofnaði Brambolt, sérhæft ráðgjafa- og tæknifyrirtæki, ásamt Stefáni B. Sigurðssyni í ársbyrjun 2019. Eru þeir tveir eigendur Brambolts. „Ég var að vinna hjá Calypso…Lesa meira

true

Með handáburð, takkasíma og bílastæðakort í veskinu

Þeir voru á öllum aldri gestirnir sem komu við á skrifstofu Skessuhorns í dag og glöddu starfsfólk með söng á öskudaginn. Meðal annarra hún Ragnheiður gamla sem mætti hölt og skökk með göngugrindina sína. Eftir að hafa sungið fyrir húsráðendur sýndi hún hvað hún geymir í veskinu. Þar var meðal annars að finna forláta handáburð,…Lesa meira

true

Býður upp á jógahelgar í Borgarfirði og safaríferðir í Sambíu

Guðný Vilhjálmsdóttir frá Helgavatni í Þverárhlíð er mikil ævintýrakona og þrátt fyrri ungan aldur hefur hún eflaust séð og upplifað meira af heiminum en flestir. Hún hefur síðastu ár ferðast og skoðað heiminn og komið til að minnsta kosti 56 landa. Auk ferðalaga hefur jóga verið mikilvægur hluti af lífi hennar síðustu ár en hún…Lesa meira

true

Feðgar gerðu það gott á Íslandsmótinu

Íslandsmótið í keilu með forgjöf fór fram í Egilshöll dagana 22. til 23. febrúar síðastliðna. Félagar í Keilufélagi Akraness áttu þar titla að verja, en Ágústa K. Jónsdóttir og Guðjón Gunnarsson sigruðu á síðasta ári. Að þessu sinni var það hins vegar Matthías Leó Sigurðsson sem hélt forystu í forkeppninni og hafnaði að lokum í…Lesa meira

true

Birgir Leifur áfram hjá Leyni

Birgir Leifur Hafþórsson verður áfram íþróttastjóri Golfklúbbsins Leynis. Samningur þess efnis milli klúbbsins og Birgis hefur nú verið endurnýjaður. Mun hann alfarið annast þjálfun barna- og unglingastarfs golfklúbbsins og koma að ýmsum verkefnum í samvinnu við framkvæmdastjóra. Auk þess mun hann hafa umsjón með nýliðakennslu klúbbsins, en öllum nýjum meðlimum býðst að sækja stutt námskeið…Lesa meira

true

Héldu fund um atvinnumál í Dölum

Atvinnumálanefnd Dalabyggðar boðaði til funadar í gær með atvinnurekendum og fyrirtækjum á svæðinu. Fundurinn var liður í átaksverkefni til að styðja við hugmyndir og þróun í rekstri fyrirtækja á svæðinu. Á fundinn mætti Stefán Þór Helgason frá ráðgjafasviði KPMG og kynnti sviðsmyndagreiningu um þróun atvinnulífs sem unnin var nýverið fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Í…Lesa meira

true

Andlát – Ragnar Bjarnason söngvari

Ragnar Bjarnason söngvari er látinn á 86. aldursári. Ragnar var einn dáðasti söngvari okkar Íslendinga, hefur skemmt landsmönnum með söng og gamanmálum í sjö áratugi. Fréttavefurinn Visir.is greindi frá andláti hans. Ragnar fæddist í Reykjavík, sonur hjónanna Bjarna Böðvarssonar og Láru Magnúsdóttur sem voru bæði mikið tónlistarfólk. Móðir hans var ein fyrsta dægurlagasöngkona landsins en…Lesa meira

true

Vilja að biðrými verði gerð varanleg

Einnig lagt til að útbúin verði tvö hjúkrunarrými til viðbótar Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Brákarhlíðar í Borgarnesi, hefur sent heilbrigðisráðherra og þingmönnum kjördæmisins minnisblað um stöðu biðlista dvalar- og hjúkrunarheimila í heilbrigðisumdæmi Vesturlandis. Þar ítrekar hann, ásamt Jóni G. Guðbjörnssyni formanni stjórnar Brákarhlíðar, þá ósk stjórnenda Brákarhlíðar að þau biðrými sem falla að óbreyttu út…Lesa meira

true

Boða nýja tíma í starfs- og tækninámi hér á landi

Mikil eftirspurn er eftir starfs- og tæknimenntuðu fólki hér á landi. Hefur skortur á slíkri fagmenntun valdið færnimisræmi á vinnumarkaði. Fyrir vikið er framleiðni á Íslandi undir meðaltali Norðurlandanna, að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar. Í nýlegri skýrslu bendir stofnunin á mikilvægi þess fyrir land og þjóð, að fleiri sæki sér starfs- og tæknimenntun enda verði…Lesa meira

true

Foreldrasamtökin AK-HVA voru formlega stofnuð í gær

Í gærkvöldi var stofnfundur AK-HVA Foreldrasamtakanna haldinn í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Samtökin eru stofnuð af foreldrafélögum grunnskólanna á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit; þ.e. Brekkubæjarskóla, Grundaskóla og Heiðarskóla, í þeim tilgangi að skapa vettvang fyrir samtal og samstarf foreldra á svæðinu. Með því má skapa öflugt tengslanet foreldra barna í þessum þremur skólum svo börnin tengist…Lesa meira