Fréttir

true

Ætlar sér að ganga keikur inn í sólarlagið

Hann var kjötiðnaðarmaður að ævistarfi en hefur unnið við fjölmargt á lífsins leið. Lauk þátttöku á vinnumarkaði í árslok 2018 og nýtti það sem kallað er snemmtækan lífeyri. Flutti við starfslok heim í litla gula húsið sitt á Akranesi, minnsta skráða íbúðarhúsið á Vesturlandi, einungis tæpir 25 fermetrar að grunnfleti. Sævar Þór Magnússon hefur búið…Lesa meira

true

Engin hlýindi eða rólegheit í kortunum

Kröpp og dýpkandi lægð nálgast nú landið sunnan úr hafi. Af hennar völdum mun hvessa talsvert úr austri og síðan norðaustri og fer að snjóa síðdegis, fyrst syðst á landinu. Í framhaldinu gerir hríðarveður á Suðurlandi og svo á Suðausturlandi og Austfjörðum. Seint í kvöld má einnig búast við hríð á Norðurlandi. Gular viðvaranir hafa…Lesa meira

true

Bæjarstjórn brátt í beinni

Frá því er greint á heimasíðu Stykkishólmsbæjar að til standi að hefja upptökur og beinar útsendingar frá fundum bæjarstjórnar á næstunni. Bæjarstjórn hefur samþykkt að upptökur og útsendingar funda hefjist að loknum breytingum á Ráðhúslofti en þar stendur til að færa fundaraðstöðu bæjarstjórnar og auka skrifstofurými. „Stefnt er að því að vinna við breytingarnar hefjist…Lesa meira

true

Vinkonur, mæður, systur & dætur

Á konudaginn, næstkomandi sunnudag, er konum fagnað um allt land að fornum sið. Hefð er fyrir því að færa eiginkonum blóm eða gera vel við þær með einhverjum hætti en vert er að minnast þess að dagurinn er ekki tileinkaður eiginkonum sérstaklega. Því er ekki úr vegi að konur lyfti sér upp eða geri eitthvað…Lesa meira

true

Borgnesingar sigruðu í Vesturlandsslagnum

Skallagrímur vann góðan sigur á Snæfelli, 74-71, þegar liðin mættust í spennandi Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkveldi. Leikið var í Stykkishólmi. Hólmarar höfðu undirtökin í upphafi og skoruðu fyrstu sjö stig leiksins. Eftir það tóku Borgnesingar góða rispu og komust í 13-15 seint í fyrsta leikhluta. En Snæfell átti lokaorðið í…Lesa meira

true

Niðurstöður skimana birtar rafrænt á island.is

Frá og með deginum í dag mun Leitarstöð Krabbameinsfélagsins birta allar rannsóknarniðurstöður skimana í persónulegu pósthólfi kvenna á island.is. Þetta á jafnt við um niðurstöður úr brjóstamyndatökum Leitarstöðvarinnar og leghálsstrokum óháð því hvar þau eru tekin. “Hingað til hefur Leitarstöðin einungis sent konum bréf með niðurstöðum þegar eitthvað hefur fundist óeðlilegt við skimun fyrir leghálskrabbameini.…Lesa meira

true

Fyrirtækjaþing framundan í Borgarbyggð

Atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd Borgarbyggðar boðar atvinnurekendur til fyrirtækjaþings í Hjálmakletti, þriðjudaginn 25. febrúar nk. kl. 08:30 – 11:00. „Yfirskrift þingsins er „Samtal við atvinnulífið“ og er markmið þess að standa að opinni umræðu um atvinnumál og atvinnuuppbyggingu í Borgarbyggð, bera kennsl á sóknarfæri og hvernig hægt sé að hámarka ávinning þeirra,“ segir í tilkynningu.…Lesa meira

true

Hvetja ráðherra og þingmenn til að fjölga á ný opinberum störfum

Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar í síðustu viku var lögð fram til kynningar áætlun um eflingu starfsemi stofnana sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til ársins 2025. Þær stofnanir eru Fiskistofa, Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun. Um er að ræða verkefni sem unnið hefur verið að frá því í haust að frumkvæði Kristjáns Þór Júlíussonar ráðherra. Áætlunin var…Lesa meira

true

Ný vefsíða Dalabyggðar opnuð

Nýr vefur Dalabyggðar var settur í loftið síðastliðinn fimmtudag, 13. febrúar, og var vefsíðan kynnt á fundi sveitarstjórnar sama dag. Kristján Sturluson sveitarstjóri og Jóhanna María Sigmundsdóttir verkefnastjóri kynntu nýju vefsíðuna fyrir sveitarstjórn. Þar kom fram að aðdragandi að gerð síðunnar hafi verið nokkuð langur en samið var við fyrirtækið Netvöktum um gerð hennar árið…Lesa meira

true

Fundur um kvótamál framundan í Ólafsvík

Laugardaginn 22. febrúar klukkan 14 til 16 verður fundur á veitingastaðnum Skerinu í Ólafsvík undir yfirskriftinni, Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim. Ögmundur Jónasson, fyrrum alþingismaður stýrir fundinum, en inngangserindi flytur Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður. Þetta er fjórði fundurinn í fundaröð um þetta málefni og hafa fyrri fundir allir verið vel sóttir, í…Lesa meira