
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum 13. febrúar að sveitarfélagið taki 200 milljóna króna lán til næstu 15 ára frá Lánasjóði sveitarfélaga. Lánið tekur sveitarfélagið til að fjármagna framkvæmdir við stækkun Grunnskólans í Borgarnesi, byggingu leikskóla á Kleppjárnsreykjum og vegna lagningar ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins. Lokagjalddagi lánsins er 5. apríl 2034.Lesa meira








