Fréttir

true

Fangelsi í mánuð fyrir sviptingarakstur

Kona var í Héraðsdómi Vesturlands 24. janúar sl. dæmd til 30 daga fangelsisvistar fyrir sviptingarakstur. Var henni gefið að sök að hafa ekið bifreið svipt ökuréttindum á Snæfellsnesvegi við Mýrar í Grundarfirði þar sem lögregla stöðvaði för hennar. Konan var fjarverandi við þingfestingu málsins. Með vísan til laga þykir mega jafna útivist hennar til játningar,…Lesa meira

true

Virk sprengja til sýnis í fjörutíu ár

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslu Íslands litu við á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi síðastliðinn föstudag. Ekki var aðeins um kurteisisheimsókn að ræða, þar sem þeir höfðu á brott með sér sprengju af safninu sem talin var virk. Sprengjan var úr El Grillo, olíubirgðaskipinu sem sökkt var á Seyðisfirði í síðari heimsstyrjöldinni. „Sérfræðingar frá gæslunni höfðu verið í…Lesa meira

true

Sterkur sigur Skallagríms

Baráttan um sæti í úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik er í algleymingi eftir að Skallagrímur lagði Keflavík, 83-73 í Borgarnesi í gær. Skallagrímskonur byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru mun öflugri í upphafsfjórðungnum. Þær komust snemma leiks í 12-3 og leiddu með tólf stigum eftir fyrsta leikhluta, 27-15. Skallagrímskonur voru áfram sterkari í öðrum leikhluta…Lesa meira

true

Keppast um Íslandsmeistaratitilinn í uppistandi

Íslandsmótið í uppistandi fer fram í Háskólabíói laugardaginn 27. febrúar næstkomandi. Þar munu tíu uppistandarar keppa um hylli dómnefndar og hreppa titilinn Íslandsmeistari í uppistandi 2020. Vestlendingar eiga að sjálfsögðu sína fulltrúa í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn í uppistandi. Það eru þau Ingi Björn Róbertsson, eða Iddi Biddi, Anna Lilja og Lára Magnúsdóttir sem kemur fram…Lesa meira

true

Þungatakmarkanir tóku gildi í morgun

Vegagerðin hefur tilkynnt að ásþungi ökutækja er takmarkaður við 10 tonn á Vestfjarðavegi (60) frá Dalsmynni í Norðurárdal yfir Bröttubrekku og að Bjarkarlundi í Reykhólasveit. Sömuleiðis á Laxárdalsvegi (59). Þessar þungatakmarkanir tóku gildi kl. 08:00 í morgun og gilda þar til annað verður kynnt. Þá var frá sama tíma ásþungi takmarkaður við 7 tonn á…Lesa meira

true

Sjötíu ár frá því leikskólakennarar stofnuðu samtök sín

Hátíðarhöld í Borgarbyggð í dag Óhætt er að segja að Dagur leikskólans sé með ólíku sniði í dag, 6. febrúar. Þennan dag fyrir réttum sjötíu árum stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara sín fyrstu samtök. En nú ber skugga á á höfuðborgarsvæðinu. Leikskólafólk í Reykjavík verður í verkfalli í allan dag, en það er liður í kjarabaráttu félagsmanna…Lesa meira

true

Ók sviptur og undir áhrifum

Karlmaður var í Héraðsdómi Vesturlands dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar og sviptur ökurétti ævilangt fyrir fíkniefnaakstur og sviptingarakstur. Dómur var upp kveðinn 24. janúar síðastiðinn. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa hinn 13. september síðastliðinn ekið bifreið sviptur ökuréttindum og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna um Akrafjallsveg uns lögregla stöðvaði…Lesa meira

true

Mest af ryki úr malbikinu

Ryk í Hvalfjarðargöngum má að mestu rekja til fylliefna í malbiki og eðlilegt að líta svo á að bindiefni malbiks slitni í réttu hlutfalli við við hluta þess á móti hluta fylliefna. „Því má segja að malbikið í göngunum sé langstærsti þáttur í uppruna fallryks í Hvalfjarðargöngum,“ segir í skýrslu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um samsetningu og…Lesa meira

true

Ívar Orri dómari ársins að mati Fótbolta.net

Knattspyrnufréttavefurinn Fótbolti.net valdi Ívar Orra Kristjánsson úr ÍA dómara ársins 2019. Var Ívari veitt viðurkenning þess efnis eftir úrslitaleik Reykjavíkurmótsins á mánudagskvöld. „Ívar, sem er fæddur árið 1989, hefur undanfarin ár verið að klifra hratt og örugglega upp dómarastigann og er í hópi alþjóðlegra dómara hér á landi. Í dag er hann einn okkar besti…Lesa meira

true

Adam og Alexandra eru Bárumótsmeistarar

Í gær fór fram í Bjarnalaug á Akranesi árlegt innanfélagsmót Sundfélags Akraness sem nefnist Bárumótið. Á því keppa krakkar á aldrinum 8-12 ára en á eftir er öllum boðið til pizzuveislu. Allir keppendur fá verðlaunapening fyrir þátttökuna og stigahæsta stelpan og strákurinn fá farandabikara sem gefnir eru til minningar um Báru Daníelsdóttur. „Mótið gekk mjög…Lesa meira