Fréttir

true

Töpuðu á endasprettinum

Skallagrímur sat eftir með sárt ennið að loknum spennandi leik í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar mættu þá liði Álftnesinga í Forsetahöllinni á Álftanesi. Eftir jafnan og spennandi leik náðu heimamenn yfirhöndinni á lokamínútunum og sigruðu að endingu með 14 stigum, 97-83. Borgnesingar voru heldur sterkari í upphafi leiks en Álftnesingar fylgdu…Lesa meira

true

Hláka og vatnavextir í Norðurárdal

Vatn er nú farið að seitla yfir Þjóðveg eitt skammt frá Dýrastöðum í Norðurárdal. Rignt hefur talsvert undanfarna tíma og snjó leyst úr fjöllum. Meðfylgjandi mynd tók Gunnar Bender nú rétt í þessu á leið sinni um dalinn. Gul viðvörun er í gildi á öllu landinu til hádegis á morgun vegna hlýrrar sunnanáttar með rigningu…Lesa meira

true

„Verðum að koma þessum vegi í stand“

Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, gerði Skógarstrandarveg að umtalsefni sínu í ræðu á Alþingi í gær. Hann byrjaði á að tala um að Siglufjörður hefði gengið í endunýjun lífdaga. Eftir mögur ár upp úr 1970 væri bærinn aftur kominn á kortið. „Í mínum huga er þar aðallega hægt að benda á góðar samgöngur,“…Lesa meira

true

Gat kom á sjókví með 408 tonnum af laxi

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arctic Sea Farm laugardaginn 1. febrúar um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arctic Sea Farm við Eyrarhlíð í Dýrafirði. Í tilkynningu Matvælastofnunar um atkvikiið segir að gatið hafi uppgötvast við neðansjávareftirlit og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Arctic Sea Farm var gatið um 99 cm rifa á 20 metra dýpi. Í…Lesa meira

true

Leggja til nýja matstækni í stað samræmdra prófa

Starfshópur hefur skilað til menntamálaráðherra tillögum um markmið, hlutverk, framkvæmd og fyrirkomulag samræmdra könnunarprófa í grunnskólum. Í tillögunum felst umtalsverð stefnubreyting frá núverandi fyrirkomulagi samræmdra prófa í grunnskólum. Lagt er til að í stað þeirra verði þróuð ný matstæki í ýmsum námsgreinum með áherslu á fjölbreytt, stutt og hnitmiðuð rafræn próf og verkefni. Í niðurstöðu…Lesa meira

true

Kynntu möguleg úrræði fyrir leigjendur 26 íbúða í tveimur fjölbýlishúsum

Síðdegis í gær boðuðu Verkalýðsfélag Akraness og Akraneskaupstaður íbúa tveggja fjölbýlishúsa á Akranesi til upplýsingafundar á Gamla kaupfélaginu. Tilefni fundarins var að upplýsa fólkið um stöðu mála í ljósi þess að búið er að segja upp öllum leigusamningum í fjölbýlishúsunum Holtsflöt 4 og Eyrarflöt 2. Heimavellir voru eigendur beggja húseignanna. Nú eftir áramótin seldu Heimavellir…Lesa meira

true

Spurði hvernig staðið yrði að krabbameinsleit hjá konum

Halla Signý Kristjánsdóttir alþingismaður (B) lagði á mánudaginn fram munnlega fyrirspurn á þingi til heilbrigðisráðherra um skimun á brjósta- og leghálskrabbameini. „Miklu skiptir að við þessar breytingar, sem framundan eru á skimun eftir krabbameini hjá konum, falli ekki niður sú reynsla og þekking sem byggst hefur upp hjá Krabbameinsfélaginu og best væri að unnið verði…Lesa meira

true

Lífshlaupið sett í dag

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands vekur athygli á að Lífshlaupið heilsu- og hvatningarverkefni verður ræst í 13. sinn í dag í Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði. Markmið með Lífshlaupinu er að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta. „Lífshlaupið…Lesa meira

true

Stýrivextir undir þrjú prósent

Peningastefnunefnd hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25%. Meginvextir bankans, jafnan kallaðir stýrivextir, verða því 2,75%. Hafa vextir bankans aldrei verið lægri frá því verðbólgumarkmiðið var tekið upp árið 2001. Stýrivextir hafa lækkað um 1,75% frá því í maí í fyrra. Merki eru um að hagvöxtur síðasta árs hafi verið heldur meiri en áður…Lesa meira

true

Húsfyllir á fundi um kvótamál

Síðastliðinn laugardag hófst fundaferð um landið á Akranesi með almennum fundi í Gamla kaupfélaginu á Akranesi. Heiti fundanna er: „Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim.“ Á fundinum kom fram sterk undiralda fyrir breytingum á núverandi kvótakerfi í fiskveiðum. Fjölmenni mætti á fundinn. Ögmundur Jónasson fyrrum þingmaður og ráðherra hélt framsögu. Í máli hans…Lesa meira