
Árlegri talningu vetrarfugla er nú nýlokið á Snæfellsnesi. Talið var á 15 mismunandi stöðum. Að þessu sinni sáust 44 fuglategundir en áður höfðu mest sést 39 tegundir í árslok 2011 og 2018. Heildarfjöldi fugla var ríflega 16 þúsund. Langalgengasti fuglinn með vetursetu við Snæfellsnes er æðarfugl, en þvínæst tjaldur, snjótittlingur og sendlingur. Á vef Náttúrustofu…Lesa meira








