Fréttir

true

Flæði er samsýning kvenna með tengingu við Borgarfjörð

Laugardaginn 11. janúar næstkomandi verður opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar fyrsta samsýning hópsins Flæðis. Í honum eru átta konur sem hittast reglulega og mála saman. Allar hafa þær bakgrunn úr Myndlistarskóla Kópavogs hjá Derek Mundell. Einnig hafa þær sótt námskeið erlendis jafnt sem innanlands hjá kennurum eins og Keith Hornblower, Ann Larsson Dahlin og Bridget Woods.…Lesa meira

true

Fiskverð hátt þegar brælur hamla sjósókn

„Brælur og eintómar brælur,“ segir Sigurður Reynir Gunnarsson hafnarvörður í Rifi einkenna veiðarnar undanfarna daga og býst við að bræla verði út vikuna miðað við afleita veðurspá. Litlu línubátarnir komust á mánudaginn í sinn fyrsta róður á nýju ári og var afli þeirra þokkalegur. Sama má segja um dragnótarbátana, en Egill SH landaði 16 tonnum…Lesa meira

true

Rafmagnslaust á þremur svæðum í Borgarfirði

Samkvæmt tilkynningu frá Rarik er nú straumlaust á þremur línum í Borgarfirði, þ.e. Norðurárdalslínu, frá Eskiholti að Varmalandi og frá Vatnshömrum að Hafnarskógi. Fólk er beðið að láta Rarik vita í bilanasíma 528-9390 hafi það vitneskju um orsök bilananna.Lesa meira

true

Bröttubrekku og Holtavörðuheiði lokað

Vetrarfærð er nú í flestum landshlutum og leiðinleg veðurspá fyrir seinni part dags um land allt, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Búið er að loka veginum um Bröttubrekku og Holtavörðuheiði vegna veðurs.Lesa meira

true

Úrkomusvæðið að færast yfir landið

Veðurstofan gerir ráð fyrir að veður versni allverulega nú þegar líður á daginn og slæmt veður og færð verði fram á morgundaginn hið minnsta. Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir allt landið í dag og til nónbils á morgun, miðvikudag. Djúp og víðáttumikil lægð er að ganga norðaustur yfir landið. Eins og sjá má…Lesa meira

true

Vísað frá vegna vanreifunar

Héraðsdómur Vesturlands vísaði frá dómi kröfum Skagamálunar ehf. á hendur Uppbyggingar ehf., vegna vanreifunar. Dómur var upp kveðinn 16. desember síðastliðinn. Málningarfyrirtækið hafði krafist greiðslu rúmlega 7,6 milljóna króna frá verktakanum vegna óheimillar riftunar verksamnings um málun í fjölbýlishúsi á Akranesi. Einnig krafðist málningarfyrirtækið greiðslu 1,1 milljónar vegna unninnar vinnu við aukaverk. Til vara krafðist…Lesa meira

true

Hross drápust

Veginum um Holtavörðuheiði var lokað um miðjan dag á mánudaginn. Vegna veðurs og færðar höfðu þá fimm bílar farið útaf veginum á skömmum tíma. Mikil hálka var á heiðinni og allhvasst. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Norðurlandi vestra fóru m.a. vörubíll og tveir hrossaflutningabílar útaf veginum. Starfsmenn Vegagerðarinnar fóru á vettvang til að hjálpa þeim…Lesa meira

true

Fjöldahjálparstöð í Klébergsskóla þegar þarf

Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins hefur, í samvinnu við Rauða krossinn, björgunarsveitir og Vegagerðina, sett upp skilti við Vesturlandsveg, sem er fyrsta skilti sinnar tegundar. Það er gert til að beina fólki að fjöldahjálparstöð sem staðsett er í Klébergskóla á Kjalarnesi. Sú fjöldahjálparstöð er hvað oftast opnuð sökum veðurs, að minnsta kosti fimm sinnum á síðasta ári. Nú…Lesa meira

true

Frumsýning þegar 190 ár verða liðin frá síðustu aftökunni

Næstkomandi sunnudag klukkan 14 verður frumsýnd á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi sýningin Öxin – Agnes og Friðrik. Þennan dag 12. janúar eru liðin 190 ár upp á dag frá því að síðasta aftakan fór fram á Íslandi. Þá lét Björn Blöndal sýslumaður hálshöggva þau Agnesi Magnúsdóttur og Friðrik Sigurðsson. Þau voru fundin sek fyrir morðið…Lesa meira

true

Kynningarfundi umhverfisráðherra frestað

Kynningarfundi umhverfis- og auðlindaráðherra um Hálendisþjóðgarð, sem halda átti á Hótel Hamri í Borgarnesi eftir hádegið í dag, hefur verið frestað vegna veðurs. Sömuleiðis hefur fundum sem vera áttu í Húnavatnshreppi, í Reykjadal í S-Þing og á Egilsstöðum í dag og á morgun verið frestað. Nýjar tímasetningar fyrir fundina verða auglýstar á næstu dögum, segir…Lesa meira