Fréttir

true

Grái herinn hyggst höfða dómsmál gegn ríkinu

Grái herinn, baráttuhópur innan Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni sem berst fyrir mannsæmandi kjörum og virðingu allra, hefur ákveðið að fara í mál á hendur ríkisvaldinu vegna skerðinga á lífeyrisgreiðslum frá Tryggingastofnun. Helgi Pétursson talsmaður félagins skrifar um málið og segir að það hafi verið í undirbúningi mánuðum saman en nú sjái fyrir…Lesa meira

true

Gul viðvörun um allt land vegna hríðarveðurs

Veðurstofan gerir ráð fyrir að veður versni allverulega í dag og slæmt veður og færð verði fram á morgundaginn hið minnsta. Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir allt landið í dag og til nónbils á morgun, miðvikudag. Djúp og víðáttumikil lægð mun ganga norðaustur yfir landið. Spáð er norðaustan 15-23 m/s norðvestantil á landinu…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík er Íslandsmeistari í innanhússfótbolta

Úrslitakeppnin í Futsal fór fram um síðustu helgi. Keppt var í átta liða úrslitum á föstudagskvöldinu. Þar komust áfram lið Aftureldingar/Hvíta riddarans, Ísbjarnarins, Víkings Ólafsvík og Íslandsmeistararnir 2019 Vængir Júpíters. Fjögurra liða úrslitin voru spiluð á laugardeginum. Þar sló Ísbjörninn út íslandsmeistarana í Vængjum Júpíters með tveim mörkum gegn einu og Víkingur Ólafsvík lagði Aftureldingu/Hvíta…Lesa meira

true

Aukin rafræn þjónusta á vef Borgarbyggðar

Ný heimasíða sveitarfélagsins Borgarbyggðar leit eins og kunnugt er dagsins ljós í haust. Síðan er afrakstur undirbúnings stýrihóps starfsmanna sveitarfélagsins með hliðsjón af ábendingum íbúa og kjörinna fulltrúa. „Vel tókst til og almenn ánægja hefur mælst á meðal íbúa. Starfsmenn sveitarfélagsins þakka öllum þeim sem sendu inn ábendingar, þær hafa gert gæfumuninn við vinnslu síðunnar,“…Lesa meira

true

Jakob Svavar er Íþróttamaður Akraness 2019

Jakob Svavar Sigurðsson, hestaíþróttamaður úr Hestamannafélaginu Dreyra, er Íþróttamaður Akraness 2019. Kjörinu var lýst við hátíðlega athöfn á sjöunda tímanum nú í kvöld, sem fyrr á þrettándanum. Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni varð önnur í kjörinu og Alexander Örn Kárason, kraftlyftingamaður úr Kraftlyftingafélagi Akraness, hreppti þriðja sætið. Jakob Svavar hefur verið í fremstu…Lesa meira

true

Umsækjendur um starf sveitarstjóra Borgarbyggðar

Eins og nýverið var greint frá sóttu 18 um starf sveitarstjóra Borgarbyggðar sem auglýst var í desember síðastliðnum. Þrír þeirra drógu umsóknir sínar til baka og hafa nöfn fimmtán umsækjenda nú verið birt. Um starfið sækja 12 karlar og þrjár konur. Á næstu dögum verður farið yfir umsóknirnar og ákveðið hvaða umsækjendur verða kallaðir í…Lesa meira

true

Þrettándagleði að hefjast á Akranesi

Rétt í þessu var stór hópur ungmenna og annarra bæjarbúa á leið á þyrlupallinn á Jaðarsbökkum þar sem árleg þrettándabrenna og flugeldasýning Björgunarfélags Akraness er að hefjast. Gengið var fylktu liði frá Þjóðbraut 13 í fylgd lögreglu. Fremst í flokki var trommusveit tónlistarskólans, þá álfadrottning og -kóngur, álfar, jólasveinar og glaðir krakkar. Veður er með…Lesa meira

true

Óhöpp og erfið skilyrði á Holtavörðuheiði

Veginum um Holtavörðuheiði var lokað skömmu fyrir klukkan hálf fjögur í dag. Fréttavefur Ríkisútvarpsins greinir frá að þá hefðu nokkrir bílar verið búnir að fara út af veginum. Mikil hálka er á heiðinni og nokkuð hvasst og hefur það gert ökumönnum erfitt fyrir. „Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Norðurlandi vestra fór vörubíll og hestaflutningabílar út…Lesa meira

true

Ráðherra kynnir Hálendisþjóðgarð á fundi á morgun í Borgarnesi

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra fer á næstu dögum í hringferð um landið og kynnir áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs, en frumvarp þar að lútandi er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Fundur hér á Vesturlandi verður haldinn á Hótel Hamri í Borgarnesi þriðjudaginn 7. janúar klukkan 13:30. Fundurinn er öllum opinn og allir velkomnir.…Lesa meira

true

Landsnet óttast samslátt, seltu og ísíngu

„Við hjá Landsneti höfum verið að fylgjast með veðurspám undanfarna daga og undirbúið viðbrögð ef spár ganga eftir. Spáð er djúpri lægð sem kemur yfir landið á morgun og verður viðvarandi fram á fimmtudag. Með lægðinni sem stefnir á Reykjanes á morgun eykst veðuráraun á raforkukerfið. Eldingahætta verður með meginskilum lægðarinnar í fyrramálið einkum suðvestan-…Lesa meira