Fréttir

true

Fiskmarkaður Snæfellsbæjar kaupir ísverksmiðjuna

Fiskmarkaður Snæfellsbæjar gekk nýverið frá samningi um kaup á ísverksmiðjunni í Ólafsvík. Seljandi er HG Geisli sem rekinn var af Hjörleifi Guðmundssyni. Andri Steinn Benediktsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar, segir í samtali við Skessuhorn að ísverksmiðjan hafi verið auglýst til sölu en rekstur hennar er nauðsynlegur í Snæfellbæ. Sú hætta hafi verið til staðar að vélarnar…Lesa meira

true

Halda til loðnuleitar í næstu viku

Áætlað er að hefja loðnuleit seinni part næstu viku. Stefnt er að því að Árni Friðriksson RE, rannsóknarskip Hafrannsóknarstofnunar, haldi til loðnuleitar föstudaginn 13. janúar og að því fylgi veiðiskip til aðstoðar við leitina. RÚV greinir frá. Ferðinni er heitið norður fyrir land og leitin hefst á landgrunnsbrúninni fyrir norðan. „Við munum þar fara yfir…Lesa meira

true

Bjarki er íþróttamaður Borgarfjarðar 2019

Fjölmenni var mætt í Hjálmaklett í Borgarnesi síðdegis í gær þegar uppskeruhátíð íþróttafólks fór þar fram á vegum Ungmennasambands Borgarfjarðar. Auk þess sem kjöri íþróttamanns Borgarfjarðar var lýst, veittu nokkur aðildarfélög UMSB og hestamannafélagið Borgfirðingur viðurkenningar. Einnig voru veitt verðlaun úr Minningarsjóði Auðuns Hlíðkvist Kristmarssonar. Það voru þeir Bragi Þór Svavarsson sambandsstjóri og Sigurður Guðmundssonar…Lesa meira

true

Árleg þrettándagleði og kjör Íþróttamanns Akraness

Hin árlega þrettándabrenna verður haldin á þyrlupallinum á Jaðarsbökkum í dag, mánudaginn 6. janúar. Blysför hefst við Þorpið við Þjóðbraut 13 kl. 17:00. Álfar, tröll og jólasveinar munu leiða gönguna að brennunni þar sem jólin verða kvödd. Að venju er það Björgunarfélag Akraness sem sér um brennuna og flugeldasýningu sem hefst um kl. 17.30. Að…Lesa meira

true

Tólf stiga tap eftir hörkuleik

Skallagrímskonur mættu Íslandsmeisturum Vals í fyrsta leik liðsins eftir jólafrí. Leikið var í Reykjavík í gærkvöldi. Um hörkuleik var að ræða, en seint í leiknum náðu meistararnir yfirhöndinni og sigruðu með tólf stigum, 70-58. Leikurinn fór fremur rólega af stað og Valur leiddi með fjórum stigum eftir sjö mínútna leik, 10-6. Þá áttu Skallagrímskonur góða…Lesa meira

true

Kergja veldur því að lítil loðnuleit mun eiga sér stað

Ekkert skip hefur enn haldið til loðnuleitar við Íslandsstrendur. Stjórnvöld hafa ekki yfir fullnægjandi skipakosti að ráða sem þarf til leitar og hyggjast heldur ekki nýta sér aðra kosti í stöðunni, sem þeim þó stendur til boða; það er að semja við aðila um að annast hluta verkefnisins. Slíkt fyrirkomulag er þó vel þekkt. Að…Lesa meira

true

Svala ráðin forstöðumaður Frístundar í Borgarnesi

Svala Eyjólfsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Frístundar í Borgarnesi. Svala er með BA próf í tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur unnið sem yfirmaður Frístundar og einnig sem tómstundafræðingur hjá Grunnskóla Borgarfjarðar frá árinu 2018 auk þess að kenna lífsleikni. Svala starfaði áður í Félagsmiðstöðinni Óðali í Borgarnesi en hún hefur einnig unnið…Lesa meira

true

Mjög djúp vestanlægð væntanleg á þriðjudagskvöldið

Á vefnum Blika.is bendir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á óvenju djúpa lægð sem kemur upp að vesturströnd landsins næstkomandi þriðjudagskvöld. Henni fylgir vestan rok sem getur hæglega verið skeinuhætt víða um vestanvert landið, meðal annars á Akranesi, Mýrum og víðar þar sem vindur stendur beint af flóanum. „Við sjáum í hnattrænu líkönum reiknisetranna lægðarmiðju um 940…Lesa meira

true

Andlát – Magnús Óskarsson

Magnús Óskarsson fyrrverandi kennari og tilraunastjóri  á Hvanneyri er látinn. Hann lést 28. desember, á 93. aldursári. Hann var fæddur á Saurum í Hraunhreppi 9. júlí 1927, sonur hjónanna Óskars Eggertssonar og Guðrúnar Einarsdóttur, en ólst að mestu upp í Kópavogi þar sem faðir hans var bústjóri. Magnús lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1950…Lesa meira

true

Sveit Guðmundar er Vesturlandsmeistari í bridds

Sameiginlegt Vesturlands- og Vestfjarðamót í sveitakeppni í bridds var spilað á Akranesi síðastliðinn föstudag og í gær. Á þessu árlega tveggja daga móti er spilað um titilinn Vesturlandsmeistarar í sveitakeppni, en jafnframt er á mótinu spilað um keppnisrétt á Íslandsmeistaramóti. Þar eiga fimm sveitir af Vesturlandi keppnisrétt og tvær af Vestfjörðum. Úrslit á mótinu urðu…Lesa meira